Færslur: 2013 Október
10.10.2013 22:19
Sprengigígurinn sem hvellsprakk...eða?
Það er alltaf skemmtilegt þegar að hestar rísa uppúr öskustó, eins og þessi blesótti hefur sannarlega risið í áliti hjá mér. Hann fekk það mikla nafn Sprengigígur þegar hann var folald og átti heldur betur að sprengja skalann sem kynbótahestur enda vígalegur með eindæmum, en það er óhætt að segja það að hann hafi hvellsprungið í byrjun tamningar á fjórða vetur og eistun fóru í hundana!
Blesi var saltaður í meir en ár og var svo tekinn til handargagns 5 vetra, aðallega notaður í hrossasmalamennsku af henni Verenu svona ef það ske skildi að það væri hægt að kveikja eitthvað á honum. Jú eitthvað hækkaði hann í áliti hjá mér þegar ég tók hann út hjá henni um haustið, en ég fór ekkert sjálf í hnakk á þessum tíma af skiljanlegum ástæðum og prófa hann ekkert fyrr en í byrjun ágúst sl. Hann var þá búinn að vera þjálfaður síðustu 8 mánuðina eða svo af henni Söru Rut en hún lék sér aðeins með hann í 5 gang í sumar. Tilefnið var að það átti að sölusýna hann og ég varð eiginlega svoldið hissa þegar ég kom á bak, því síðasta minningin var nú ekki beisin úr hnakknum ;)
Alla vega, ég varð voðalega fegin að hann skildi ekki henta í þetta verkefni sem var verið að hugsa um hann í, því ég fann strax að þarna var hægt að gera alveg fullt í viðbót fyrst að viljinn var loksins kominn og fór aðeins að kíkja betur á hann í haust. Hann var alltaf magnaðri og magnaðri með hverri vikunni, samt fór ég ekki oftar en 1 sinni til 2svar á bak honum í viku (merkilegt hvað þeir þjálfast stundum vel í haganum líka ;) og honum hefur alveg tekist að fá hárin á mér til að rísa í reiðtúrum, og það tekst fáum!
Og svo er ekki verra að hann er alveg aulaheldur á skeiði (er virkilega engin betri þýðing á idjot proofed!) Hann hefur líka svaka góða beisliseiginleika, en þar sker oft á milli hvort manni hversu vel manni líkar við hrossin.
Hvað getur maður svo lært af þessu? Taka mark á folöldum og gefast ekki upp þó útlitið sé kolsvart um tíma? Umm jamm allavega í þessu tilfelli :)
Já og af því að athyglisbrestur getur háð mér verulega þessa dagana þá gleymdist að setja allar upplýsingar á vieoið, en Sprengigígur er sem sagt 6 vetra gamall undan Glym frá Skeljabrekku og Gýgur frá Ásunnarstöðum. Sú var undan Blakk 999 frá Hafnarnesi þannig að það er dass af hornfirsku blóði þarna. Það gat líka ekki annað verið að hann yrði viljugur hann Sprengigígur því þetta var alveg ofsaviljug hryssa. Gýgur er fallin en undan henni er ein hryssa í ræktun, Herská Parkersdóttir, ekki hátt dæmd frekar en móðir sín, en hágeng og ég hafði oft mjög gaman af henni.
Skrifað af Söru Ástþórsdóttur
01.10.2013 20:37
Leggð´ann
Við stelpurnar skelltum okkur á frumtamninga sýnikennslu hjá Iben Andersen á sunnudaginn til að fá smá uppfærslu á tamningaraðferðinar okkar. Mjög lærdómsríkt og skemmtilegt bara þó margt hafi maður séð áður og reynt en annað ekki, eins og t.d það að leggja tryppin í byrjun tamningar, sem hún segir að stytti ferlið og skilst að það henti einkar vel á erfiða hesta (verð að játa það að ég missti nú aðeins úr því ég var með afleggjarann með mér og þrátt fyrir mikla þolinmæði, þá var hún kannski ekki alveg 100% allan tímann)........ En alla vega, það er svo gaman við að fá svona innblástur, að þá brunar maður af stað og vill prófa.....og við erum svo heppnar hérna að það er ekki alveg búið að temja öll tryppin.
Byrjuðum á 3 vetra gröðum Kjerúlfsyni undan Móeiði, hann kom inn á sunnudaginn, var svoldið bandvanur en ekki full leiðitamur þó..... Það var farið hratt og örugglega yfir hann og Verena reið honum hringinn í gerðinu án mikillar aðstoðar frá mér...en þetta er geðgóður og sjálftaminn hestur og ekkert að marka það þó það hafi gengið svona fljótt ;)
Næst tókum við 3 vetra nýlega geltan fola undan Fróða og Mónu, hann var ennþá hrárri og var aðeins lengur að átta sig á öllu, en eftir svipaðan tíma (ca hálftíma-40 mín) var búið að ríða honum í gerðinu líkt og þeim fyrri.... Jæja en hvorugan hestinn sáum við ástæðu til að leggja, okkur fannst þeir bera nægilega virðingu fyrir okkur eftir alla spottaleikfimina.
Nýlega fékk eignaðist ég gráan fola frá Kanastöðum, algerlega ósnertan, nema hann hafði verið geltur, en annars látinn afskiptalaus. Stelpurnar voru búnar að reyna að mýla hann fyrir nokkru en gefist upp við það, hann var ansi mikið laus upp að framan og styggur..... Þetta var sem sagt alveg tilvalið verkefni til að sannreyna hvort þessi tamningaraðferð sé gagnleg eða ekki. Gráni var rekinn fram á gang, gamlan skellti múlnum á hann og svo var hann rekinn inní hringgerði, kenndar svona helstu æfingar í hendi og svo lagður í orðsins fyllstu, hljómar svoldið ógnvekjandi, en fer allt voða vel og eiginlega alveg ótrúlega átakalítið fram.
Valið einfalt, annað hvort að vappa um á 3 fótum eða leggja sig....(og vert að taka það fram að Gráni litli er skítugur af því að velta sér í höllinni blautur um morguninn, ekki það að hann sé svitastorkinn búinn að veltast þarna um! Oft svitna tryppi og verða móð þegar þau eru að takast á við spottann í fyrstu skiptin, en það var varla að hann hitnaði þessi).
.... sem var mikið ákjósanlegra, tók fáeinar mínútur að átta sig á því...
..... tók aðrar fáeinar mínútur að telja Grána á að leggja sig alveg.....
...og fá krús og klapp frá Verenu í staðinn. Þetta er svoldið magnað að sjá hvað hann var fljótur að sætta sig við óvenjulegar aðstæður og kjammsaði þarna liggjandi flatur. "Hvernig getur hann vitað að við ætlum bara ekki að borða hann" sagði ég við Verenu ;)
En traustið var unnið...sáttur við þyngdina frá öllum hliðum....
Hann þurfti þó ekki að standa upp með Verenu á baki...
En hún stökk berbakt á bak þegar Gráni stóð upp og reið berbakt við einteyming af stað nokkur skref.... spennandi að sjá hvernig gengur á morgun!
Skildi þetta bara vera aðferð sem virkar vel?
Verðið að afsaka gæði myndanna, en þær eru teknar á síma.
Skrifað af Söru Ástþórsdóttur
- 1
Eldra efni
- 2024
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2023
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2022
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2021
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2020
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2019
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2018
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2017
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2016
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2015
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2014
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2013
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2012
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2011
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2010
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2009
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2008
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
- 2007
- Desember
- Nóvember
- Október
- September
- Ágúst
- Júlí
- Júní
- Maí
- Apríl
- Mars
- Febrúar
- Janúar
Flettingar í dag: 1495
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 6950
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 1627969
Samtals gestir: 100807
Tölur uppfærðar: 8.12.2024 14:34:22
ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | [email protected]