Færslur: 2012 Júní

18.06.2012 00:23

Kolka hæst dæmda hryssa ársins!!

Hrefna var alveg ákveðin í því að halda Kolku geldri síðasta sumar og ríða henni þennan veturinn. Margir töldu hana hafa misst vitið þar sem hryssan var afar hátt dæmd síðasta sumar og Landsmótssigurvegari í sínu flokki 5 vetra hryssum. En eitthvað innra með Hrefnu sagði henni að Kolka hefði ekki toppað sig enn og ætti eftir að sýna meira og ekki síst þá vorum við aldrei ánægð með hálseinkunnina á henni, en hún á auðvitað borðleggjandi níuna skilið þessi drottning!



Kolka og Hrefna áttu magnaða sýningu á Gaddstaðaflötum í seinni vikunni.  Þær svifu átakalalaust hnarreistar eftir brautinni á öllum gangtegundum og Kolka fékk hvorki meir né minna en 8.85 fyrir hæfileika og hæst 9.5 fyrir vilja og geðslag, eitthvað sem þetta geðprýðishross stendur fyllilega undir.   Ég er ekki sammála þeim sem segja að öll hross sem eru að fara í 9.5 og 10 fyrir vilja séu spennuviljug hross sem sé á fárra færi að ríða.....



IS2006286428 Kolka frá Hákoti
Örmerki: 968000001802023
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Ræktandi: Halldóra Hafsteinsdóttir, Markús Ársælsson
Eigandi: Hrefna María Ómarsdóttir, Rósa Valdimarsdóttir
F.: IS2002186435 Íkon frá Hákoti
Ff.: IS1996187336 Töfri frá Kjartansstöðum
Fm.: IS1994286104 Bella frá Kirkjubæ
M.: IS1995286428 Frá frá Hákoti
Mf.: IS1989184551 Þorri frá Þúfu í Landeyjum
Mm.: IS1990286414 Feykja frá Hala
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning á Gaddstaðaflötum
Mál (cm): 141 - 137 - 63 - 142 - 28,5 - 17,5
Hófa mál: V.fr.: 9,0 - V.a.: 8,9
Sköpulag: 8,0 - 9,0 - 9,5 - 9,0 - 7,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 = 8,44
Hæfileikar: 9,0 - 9,0 - 8,5 - 8,5 - 9,5 - 9,0 - 7,5 = 8,85
Aðaleinkunn: 8,69      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Hrefna María Ómarsdóttir



Svona skal sitja þegar riðið er í 8.85 ;)

2 + 2 verða ekki alltaf 4

Kolka kemur efst allra hryssna inná Landsmót með 8,69 í aðaleinkunn.  Hún er glæsileg alhliðahryssa, spekúlantar tala hreyknir um að hér sé verðugur fulltrúi íslenska ræktunartakmarksins, sem er glæsilegur hestur með 5 gangtegundir, klárhross með skeiði.  Gott og vel..... það er hins vegar svoldið athyglisvert að rýna í ættartré Kolku og skoða hvað er að finna þar og hvernig hross, því stór hluti af hennar forfeðragarði eru klárhestar en eins og væntanlega fleiri en ég hafa tekið eftir þá eiga klárhross minni og minni möguleika á því að láta ljós sitt skína sem Kynbótahross á Landsmóti.

En ég ætla að rýna aðeins í ættartölu Kolku til gamans..... og þar tek ég fyrstan fyrir hann Íkon kallinn frá Hákoti, rúman töltara, og hver vill standa á því fastar á fótunum að hestar með 7.5 fyrir háls geti ekki gefið glæsihross?!   Íkon kemur undan tveimur klárhrossum, Bellu frá Kirkjubæ landsmótssigurvegara í 4 vetra flokki 1998 og Töfra frá Kjartansstöðum.  Bella er undan frægum klárhesti, Loga frá Skarði, ef mig misminnir ekki þá var klárgangur afar ríkjandi í hans afkvæmum en Brella móðir hennar bjó yfir dálitlu skeðspori samkvæmt Worldfeng.  Töfri er svo undan heldur klárgengri klárhryssu ef ég skil rétt, Ternu frá Kirkjubæ og Óð frá Brún sem hafði allar 5 gangtegundirnar.  Þannig í föðurlegginn finnast ekki fimmgangshross fyrr en í þriðja ættlið.

Móðirin Frá frá Hákoti er alhliða hryssa, svoldið athyglisvert að rýna í tölurnar á henni, 9.5 fyrir vilja og geðslag en engin gangtegund upp á hærra en 8.5, það hefur skinið af henni gæðingsbragur.   Ætla mætti að Kolka hefði bygginguna frá móður sinni en svo er ekki því hún er ennþá lægra dæmd fyrir byggingu heldur en Íkon, en hefur þó 8 fyrir háls og herðar.  Frá er þó sögð myndarhryssa af þeim sem hana þekkja. sem stigast samt ekki vel.  Hún er undan Þorra frá Þúfu sem er alhliða og Feykisdótturinni Feykju frá Hala sem ég hef eftir fyrstu hendi að var mjög klárgeng í gangsetningu, fékk engu að síður 5.5 fyrir skeið, en miðað við hvað tölteinkunn var lág hjá henni grunar manni að hún hafi fengið þessa kommu fyrir klárhestabinding.   Þokkadís móðir hennar var síðan klárhryssa einnig, en Feykir alhliða eins og margir vita.  Og það þarf ekki að taka fram að Orri faðir Þorra er rúmur opinn klárhestur.

Jahá, mér þótti svoldið athyglisvert að fara í gegnum ættartréð hjá Kolku..... getur verið að við getum nálgast hið íslenska ræktunartakmark, klárhestinn með skeiði án þess að rækta eingöngu með íslenska ræktunartakmarkinu?   Hvað gerist ef við ætlum að útrýma notkun á klárhestum af því að þeir fá ekki að sjást á stærri mótum nema þá í B-flokki gæðinga og tölti.  Skyldum við nálgast ræktunartakmarkið hraðar..... eða skyldum við fjarlægjast það, sitja uppi með of geng og flókin hross sem henta fáum nema flinkustu reiðmönnum???????  Ég þarf vart að taka það sérstaklega fram að mér hugnast þessi þróun alls ekki.  Hrossarækt er margslungin og flókin og eins og ég sagði hér að ofan þá verða 2+2 sjaldnast 4, stundum kemur bara 1 og svo geturðu fengið 10.  Við megum ekki missa fjölhæfnina úr hrossastofninum og í mínum huga er fjölhæfni eins og ég hef oft sagt.... mismunandi hestar með mismunandi ganglag því sá hestur sem hentar einum hugnast ekki alltaf öðrum. 



Þrátt fyrir að Kolka væri í þjálfun í vetur, fékk hún líka að auka kyn sitt með hjálp fósturvísaflutninga og það kom lítill laglegur svartstjörnóttur hestur út úr því, og faðirinn er hinn fótlipri Þrumufleygur.  Hrefna pantaði útlitið frá móðurinni og fótaburðinn frá föðurnum og það er aldrei að vita nema sú pöntun hafi verið rétt móttekin, hann er allavega myndarlegur sá litili :)


                                                                                                                           Sumarið 2011

Síðasta hrossið sem fékk sinn Landsmótsfarmiða frá Álfhólum er frænka hennar Kolku, hún Sólllilja en hún varð sjötta í úrtöku hjá Geysi með 8.54. en Þorri frá Þúfu er afi þeirra beggja.   Mikið af góðum hrossum kepptu um 6 sæti Geysis og baráttan svakalega hörð og hrossin í fjórða til áttunda sæti voru frá 8.53 til 8.55 þannig að maður þurfti að taka á sínum stóra til að höndla spennuna þarna í lokin og ekki auðvelt að vera næstum síðust inná seinni daginn verandi búin að horfa á alla hina fara uppfyrir sig, en ég var með 8.50 fyrri daginn en það er tvöföld úrtaka hjá Geysi.  Ég hefði komið ágætlega út úr því ef það hefði verið einföld úrtaka, því eftir fyrri daginn var Dimmir í sjötta sæti í A-flokk, en ég gerði ógilt í seinna skiptið, því hann hélst ekki á brokki hjá mér og þar með var sá draumur úti.

Það er ótrúlega stutt í Landsmót, manni finnst vorið bara vera nýbyrjað og það er að detta á hásumar og heyskapur að bresta á en fyrstu túnin voru felld hér í dag.....Allt að gerast!

04.06.2012 01:32

3 x 9,5!!! - Góð byrjun á Kynbótasýningum



Þrumufleygur á hægu tölti í yfirliti! 9 fyrir hægt og 9,5 fyrir Tölt!

Þrumufleygur skyrpti vel úr hófunum á Selfosssýningunni á dögunum og uppskar hvorki meir né minna en 3 x 9.5, fyrir Tölt, Brokk og Vilja og geðslag.  Ekki amalegt það, en þó dugar þessi einkunn honum ekki inná Landsmót sem kynbótahesti sem sýnir það svart á hvítu hvað klárhross eiga erfitt með að fóta sig í kerfinu þó að þau séu afbragðsgóð, nema að byggingareinkunn sé í hæstu hæðum.  Ekki það að Þrumufleygur býr klárlega yfir skeiði, sýndi það í uppvexti þar sem hann ferjaði sig oft á milli staða á flugaskeiði og á fyrri árum tamningar.  En það hefur gengið erfiðlega að sýna það á hvítum vikurvelli og því var bara ákveðið að setja fimmta gírinn í salt og leggja upp með aðrar áherslur.


En Þrumufleygur er engu að síður kominn með farmiða á Landsmót í B-flokki fyrir Fák og svo herma nýjustu fréttir að Álfhólar verði með Ræktunarbússýningu á ný og svona apparat er nottla ómissandi á þeim vettvangi :)



IS2006184674 Þrumufleygur frá Álfhólum
Örmerki: 352206000061211
Litur: 2520 Brúnn/milli- stjörnótt
Ræktandi: Rósa Valdimarsdóttir
Eigandi: Rósa Valdimarsdóttir
F.: IS1999188801 Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Ff.: IS1987187700 Oddur frá Selfossi
Fm.: IS1984287011 Hlökk frá Laugarvatni
M.: IS1996284669 Þyrnirós frá Álfhólum
Mf.: IS1993184988 Ögri frá Hvolsvelli
Mm.: IS1979284670 Vaka frá Álfhólum
Mál (cm): 141 - 130 - 136 - 63 - 143 - 38 - 47 - 43 - 6,6 - 29,0 - 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,7 - V.a.: 8,5
Sköpulag: 7,0 - 7,5 - 9,0 - 8,0 - 8,5 - 7,0 - 9,0 - 8,5 = 8,04
Hæfileikar: 9,5 - 9,5 - 5,0 - 8,5 - 9,5 - 9,0 - 7,0 = 8,43
Aðaleinkunn: 8,27
Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson




Og hér má svo sjá Videó úr forsýningunni.



Litla systir Þrumufleygs stóð sig líka svaka vel og næli sér 5 vetra gömul í 3 níur, fyrir tölt, vilja og fegurð í reið, auk þess 9 fyrir hægt tölt.  Hún er í eigu þeirra Húsafellsfélaga, Róberts og Sigurðar sem eiga t.d helminginn í Dívunni.  Má segja að þeir félagar séu þokkalega hestheppnir ;)

IS2007284669 Álfarós frá Álfhólum
Örmerki: 352206000055986
Litur: 3500 Jarpur/milli- einlitt
Ræktandi: Sara Ástþórsdóttir
Eigandi: Róbert Veigar Ketel, Sigurður Tryggvi Sigurðsson
F.: IS2000125300 Bragi frá Kópavogi
Ff.: IS1986186020 Geysir frá Gerðum
Fm.: IS1983210001 Álfadís frá Kópavogi
M.: IS1996284669 Þyrnirós frá Álfhólum
Mf.: IS1993184988 Ögri frá Hvolsvelli
Mm.: IS1979284670 Vaka frá Álfhólum
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Selfossi
Mál (cm): 143 - 138 - 64 - 143 - 27,0 - 17,0
Hófa mál: V.fr.: 8,8 - V.a.: 8,0
Sköpulag: 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 7,5 - 7,0 = 8,00
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,5 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 7,5 = 8,22
Aðaleinkunn: 8,13      Hægt tölt: 9,0      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson





Og önnur Bragadóttir nældi sér í farmiða á Landsmót, en það er hún Eldglóð 5 vetra undan Gásku gömlu.  Hún var seld í fyrrahaust, og hann var ekki minna heppinn eigandinn, Gísli á Geirlandi sem eignaðist þessa stóru og stæðilegu alhliða hryssu. 

Skemmtilegt dæmi um það að 2+2 verða ekki alltaf 4, en Gáska hefur aldrei átt fimmgangs hross með nýtanlegt skeið fyrr en þessa hryssu.  Bragi var ekki sá vakrasti í bransanum, fór að mig minnir hæst í 7 fyrir skeið.  Annars er þetta 3ja Gáskuafkvæmið sem fer í fyrstu verðlaun, búið að sýna allt undan henni sem tamið er, 6 stykki, hin 3 eru klárhross rétt fyrir neðan áttuna öll með 8.5 fyrir tölt og fegurð í reið svo dæmi sé tekið.

IS2007284672 Eldglóð frá Álfhólum
Örmerki: 352206000056416
Litur: 1610 Rauður/dökk/dr. skjótt
Ræktandi: Sara Ástþórsdóttir
Eigandi: Geirland ehf
F.: IS2000125300 Bragi frá Kópavogi
Ff.: IS1986186020 Geysir frá Gerðum
Fm.: IS1983210001 Álfadís frá Kópavogi
M.: IS1995284672 Gáska frá Álfhólum
Mf.: IS1973135980 Gáski frá Hofsstöðum
Mm.: IS1990284669 Blíða frá Álfhólum
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Selfossi
Mál (cm): 145 - 141 - 64 - 147 - 28,0 - 17,5
Hófa mál: V.fr.: 8,6 - V.a.: 8,2
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 9,0 - 7,0 - 8,0 - 7,0 = 8,06
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,0 = 8,22
Aðaleinkunn: 8,15      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Sara Ástþórsdóttir

Það var greinilega alveg óvitlaus ákvörðun að nota Braga á sínum tíma, og ég stend í þeirri trú að ég eigi bestu Bragadóttirina eftir þó ég hafi selt tvær góðar.  Sú er sammæðra Dívu undan Dimmu frá Miðfelli og fékk strax nafnið Dimmuborg sem folald, það var eitthvað svo stórkostlegt við hvernig hún bar sig að en því miður fer sú gersemi aldrei undir hnakk en sem betur fer get ég ræktað undan henni þrátt fyrir að hún sé úr mjaðmalið.



Það stóð til að Mánasteinn færi í dóm, allavega framan af vetri.  Þegar harðanði undir, fór gamalkunnug helti í afturfæti að gera vart við sig, en hann svaraði beygjuprófi á kjúku á vinstri aftur í fyrra sumar.  Ég barði hausnum samt í steininn og hélt kannski að hann hefði stigið á stein þegar hann kom haltur úr reiðtúr einhverju sinni, og sendi hann í sund meðan hann væri að jafna sig. Kom voða flottur úr þeirri þjálfun og í svaka stuði fyrsta skiptið sem ég lagði á hann, en svo fór allt niðurá við aftur og Guðmar tók á honum beygjupróf sem hann svaraði enn og aftur greinilega.  Þá nennti ég ekki meir og setti hann í saltpækilinn, fór svo með hann í byggingardóm í vor og hann kom bara þokkalega út úr því eins og ég bjóst við eða 8 slétta, hæst 8.5 fyrir samræmi og fætur. Reyndar kom höfuðeinkunnin mér mjög á óvart, hefði frekar búist við 8.5 en 7.5 og útskýringuna slök eyrnastaða get ég ekki með nokkru móti skilið!  Hann er að verða hálfgert olnbogabarn þessi blessaði hestur, sem er alger synd því það er svo mikið í honum og tryppin undan honum líta vel út líka.

IS2006184667 Mánasteinn frá Álfhólum
Örmerki: 352206000046915
Litur: 8600 Vindóttur/mó einlitt
Ræktandi: Sara Ástþórsdóttir
Eigandi: Sara Ástþórsdóttir
F.: IS1986186025 Tígur frá Álfhólum
Ff.: IS1979184667 Nátthrafn frá Álfhólum
Fm.: IS1979284670 Vaka frá Álfhólum
M.: IS1998284673 Móeiður frá Álfhólum
Mf.: IS1989176289 Kjarkur frá Egilsstaðabæ
Mm.: IS1986284671 Móna frá Álfhólum
Mál (cm): 140 - 128 - 136 - 62 - 143 - 39 - 45 - 41 - 6,3 - 30,0 - 18,5
Hófa mál: V.fr.: 8,1 - V.a.: 7,6
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 - 7,5 - 7,5 = 8,00
Hæfileikar: 
Aðaleinkunn: 
Hægt tölt:       Hægt stökk: 
Sýnandi: Sara Ástþórsdóttir



Nýjustu fréttirnar eru að hún Indía Leiknis og Svertudóttir, í eigu Hrefnu Maríu, fór í fyrstu verðlaun núna í seinni vikunni á Hellu, fyrir yfirlit stendur hún með 8.10 í aðaleinkunn.  Hún ætlar að erfa það frá móður sinni, Rósu að vera hestheppin því þær tvær hryssur sem hún hefur ræktað eru báðar komnar í fyrstu verðlaun.

Dómur fyrir yfirlit.

IS2005284670 Indía frá Álfhólum
Örmerki: 352206000061253
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Ræktandi: Hrefna María Ómarsdóttir
Eigandi: Hrefna María Ómarsdóttir
F.: IS1999181675 Leiknir frá Vakurstöðum
Ff.: IS1985157020 Safír frá Viðvík
Fm.: IS1988258049 Lyfting frá Ysta-Mói
M.: IS1991284671 Sverta frá Álfhólum
Mf.: IS1986186025 Tígur frá Álfhólum
Mm.: IS1981284667 Mugga frá Álfhólum
Mál (cm): 142 - 138 - 64 - 144 - 28,0 - 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,5 - V.a.: 7,8
Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 = 8,24
Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 6,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,0 = 8,01
Aðaleinkunn: 8,10
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Hrefna María Ómarsdóttir




Og talandi um Rósu, þá stóð efstur í unglingaflokki Fáks á dögunum, hann Íkon frá Hákoti undir stjórn Rakelar Jónsdóttur frænku okkar. Frábært hjá þeim og spennandi að fylgjast með gangi mála hjá þeim á Landsmóti.  Það er að fæðast talsvert af folöldum undan Íkon hérna á Álfhólum þessa dagana og þetta eru allt léttbyggð og reisuleg folöld, gaman að því.  Hef trú á því að þessi hestur sé frábær söluhestafaðir með sitt einstaka geðslag, auðvelda ganglag og rúma, mjúka tölt.

Díva fékk sinn Landsmótsmiða á dögunum á Reykjavíkurmeistaramótinu.  Ég var reyndar lítið stolt með þá sýningu, miklir feilar í öllum atriðum og einkuninn eftir því, 7.70 sem er nú heldur lítið á hennar mælikvarða. En það er svona þegar maður stekkur beint út úr fjárhúsinu á miðjum sauðburði og ætlar að gera stóra hluti óæfður og undirbúinn, þá er ekki við miklu að búast þó hrossið sé gott ;)  En við ætlum okkur að standa okkur töluvert betur á stóru mótunum í sumar, það er verið að fara yfir tæknileg atriði og undirbúningur gengur bara vel :)

Og svona í lokin af því að ég kom inná sauðburðinn, þá var þetta alger metsauðburður, þurfum að panta 20 merki í viðbót og vorum samt með 20 auka merki miðað við í fyrra, þannig að það komust um það bil 40 lömbum fleira á legg í vor en í fyrra, 280 lömb í stað 240, samt hefur fénu ekki fjölgað meir en kannski um 5-8 stykki (ásetningurinn varð aðeins ríflegur og einhverjar kindur sluppu undan manninum með ljálinn). Gemsarnir voru óvenju frjósamir, báru allir nema 1 (35 af 36) og stór hluti þeirra tvílemdur!  Og eldri skjáturnar skiluðu sér flestar með 2-3 lömb, tvær hafa ekki borið enn, kemur í ljós hvort þær koma með óvæntan glaðning í réttir í haust eða eru geldar.

Daddara...... sem sagt allt að gerast þó að lífið á heimasíðunni hafi verið lítið undanfarið :)

  • 1

Eldra efni

Flettingar í dag: 1465
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 6950
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 1627939
Samtals gestir: 100807
Tölur uppfærðar: 8.12.2024 14:11:00

ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | [email protected]