    <language>is</language>
Gleðilegt ár!
      <description>Óskum lesendum og viðskiptavinum gleðilegs nýs árs!    Þó að fréttaflutningur hafi verið í lágmarki síðustu misseri er ekki þar með sagt að það sé lítið að gera hjá okkur, kannski er vandamálið frekar á hinn veginn..... það er kannski of mikið um að vera :)  Margir hestar hafa skipt um eigendur og verið er að vinna í að uppfæra sölusíðuna og hægt að finna þar áhugaverða gripi fyrir þá sem eru í hestaleit í ýmsum verðflokkum.  Við viljum minna á Fésbókarsíðuna okkar https://www.facebook.com/Alfholar/  en þar detta stundum einhverjar örfréttir inn af starfseminni.Þar sem undirrituð hefur lofað svo oft uppí ermina á sér um að vera meira dugleg í skrifum þá skal það, skal það ógert látið.  Það er kannski ekki alveg hugmyndaleysi um að kenna, heldur meira að hver hugmyndin að góðri færslu flækist fyrir annari, og á endanum verður ekki neitt úr neinu!  Kannski tekst betur til að skipuleggja hausinn á sér á komandi ári, hver veit :) </description>
"Game over?"
      <description>Síðasta mánuðinn hefur mér svoldið liðið eins og ég sé með stein í hjartanu....."Dívan" í hesthúsinu datt úr leik annað árið í röð, snúningurinn á kjúkunni í fyrravetur tók sig aftur upp og ég hef ekki þorað að koma nálægt honum síðan í lok febrúar.  Já það ætlar að verða erfitt fyrir okkur Eldhuga að slá í gegn!   Rétt að bæta því inní fyrir þá sem ekki vita þá slasaðist hann á kjúku um miðjan apríl í fyrra.Þessar myndir voru teknar um jólaleyti.... jú jú maður reyndi að nota allar sólarglætur þennan annars hörmungarveturinn til að taka myndir eða video, kannski hvort sem hrossin voru tilbúin eða ekki, en ég er bara búin að fara 15-20 sinnum á bak þennan veturinn þegar þessar myndir voru teknar ( og reyndar flúði myndatökumaðurinn af vettfangi í tveim síðustu ferðunum án þess að ég vissi af, þegar mér fannst hesturinn loksins orðinn sæmilegur...það var 12 stiga frost þennan daginn) Mér fannst engin af þessum myndum neitt framúrskarandi né segja til fulls hvers konar ævintýramóment hann gat gefið manni, og var alltaf að bíða eftir fallegum degi og helst snjólausum því mér fannst ekki gaman að honum í svona færi.   Ég læt þær samt flakka hérna núna, það er líklega útséð um frekari vitnisburð á framgöngu þessa hests, þennan veturinn held ég.Ég er búin að sýna nokkur hross í 9 fyrir brokk, brokkið í þessu tryppi er eitthvað "way ower that" aldrei setið svona, nema kannski.... pabbi hennar Hrefnu Maríu átti margverðlaunaðan kappreiðarbrokkara undan hinum eina sanna Lýsing frá Voðmúlastöðum, vígahágengan og taktöruggann sem fór ekki upp af brokkinu....ég var reyndar bara 9-10 ára gömul en gersamlega heilluð af þessum ævintýrahesti sem manni fannst þá og eiginlega ekki fyrr en í Eldhuga sem ég þykist finna sambærilegan kraft í spori. Já það tók heil 30 ár að finna annan eins brokkara eins og Ómars-Stjarna ;)  Var spurð að því í vetur af danskri konu sem reið með mér við hlið á harða stökki fyrr í vetur, hvort ég héldi ekki að hann gæti fengið 10 fyrir brokk, og ég sagði nottla kokhraust að það gæti bara alveg verið, hann ætti nú föðurbróður með 10 fyrir brokk!En Elhugi er ekki vandamálalaus frekar en aðrir hestar og það var eitt sem mér stóð oft ekki á sama um, að ég lenti ósjaldan í því að hann gaf sjálfum sér á kjaftinn með hnjánum.... lúxuxvandamál myndu sumir segja, en ég hugsaði stundum um það hvað það væri nú svakalegt ef hann myndi nú rotast við það.... já hvert myndi ég fljúga? ;)Tryppi sagði ég þarna fyrir ofan, já þessi hestur er bara fjögurra vetra tryppi á fimmta vetur, undan Kappa frá Kommu og Gásku frá Álfhólum, svona til upprifjunnar.Eldhugi býr yfir alvöru mýkt á tölti og það er mikil skrokkhreyfing sem gerir hann svo svakalega skemmtilegan ásetu..... eitthvað sem ég vil meina að hann hafi frá móður sinni Gásku.  Rétt að taka það fram að það eru ekki neinar þyngingar á Eldhuga á þessum myndum, enda eru þær algjörlega óþarfar á svona hest.  Ekki það að hann sé klárgengur, því það kom alveg tímabil í vetur sem ég var að hugsa hvort hann yrði vakur líka, eða hvort hann kæmist bara svona svakalega hratt á klárhestabindingi.... alla vega ekki skýr lína þarna á milli, hann skeiðaði mjög mikið fyrstu vikurnar sem folald. Það var aðeins kaldhæðnislegt að ég var varla búin að sleppa orðinu við tamningarkonurnar mínar, hvað ég væri nú alveg svakalega ánægð með að hafa lamið sjálfa mig með tvær af bestu hryssunum okkar undir hann í sumar ( það er svo auðvelt að gleyma þegar maður missir sjónar af hestum), þegar ég fer að vera vör við heltina aftur.  Ég skal nefnilega alveg viðurkenna það að þegar hann var ekki komin með almenninlega vöðvafyllingu til að fylgja hreyfingunum eftir þarna 2 fyrstu mánuðina í þjálfuninni, þá var ég alveg að naga mig í handarbökin annað slagið yfir því að hafa haldið bæði mömmu Dívu og mömmu Þrumufleygs undir þennan titt!  En svo þegar leið á janúar og sérstaklega í febrúar var ég farin að þekkja hann aftur og gott betur, og er full tilhlökkunar að fá undan honum vonandi 4 folöld í sumar.Það kitlar smá að horfa fram eftir makkanum á þessari einu dóttur Eldhuga.  Dimmuborg móðir hennar er búinn að kyssa margan froskinn en það var ekki fyrr en ég hélt henni undir Eldhuga að mér fannst hún eigast afkvæmi sem væri henni sæmandi ;)Og fallegt í henni töltið þó reisingin sé ekki eins og á brokkinu, en hún er aðeins yngri þarna líka.  Þó ég hefði ákveðið að halda Dimmu gömlu undir Eldhuga um veturinn, þá hélt ég að mér höndum til að sjá hvað dóttir hennar myndi gefa.  Og fyrst hún virtist vera koma með sitt besta folald, þá var gefið grænt ljós!Ég var voða glöð að finna nokkrar folaldamyndir hér í albúmi, ég lenti nefnilega í þeim óskupum að tölvan hrundi í haust og flest allt sem í henni var!  Og ekki er ég sú skipulagðasta að taka afrit þannig að manni fannst stór partur af sínu lífi hverfa með, já þetta var alveg töluvert áfall :(   Og kannski er það ástæðan fyrir því að það er fyrst núna sem ég hysja upp um mig og reyna að vekja eitthvað líf á þessari heimasíðu því það vantar ekki að það er nóg að snúast í sveitinni, og vonandi meir um það síðar :)</description>
Gott silfur gulli betra
      <description>Þessir létu ekki úrhelli stöðva sig í spennandi og gríðarsterkum úrsltum B-flokks á sunnudaginn.  Það var verulega gaman að fylgjast með þeim Þrumufleyg og Þorvaldi Árna vaxa með hverri þraut og eiga sína bestu sýningu mótsins á lokasprettinum sem skilaði þeim nokkuð örugglega í annað sætið með hvorki meira né minna en 9.11 í einkunn!  Vá svona einkunn hefði einhvern tímann dugað til sigurs!Vígalegir á brokkinu!Þrumufleygur sýndi strax klærnar í forkeppninni, en sýningin var ekki alveg hnökralaus og hann endaði í sjötta sæti þar.Í milliriðlunum átti hann hins vegar þrælfína sýningu og sigldi örugglega í í A-úrslit með 8.75 í einkunn.Það er búið að vera virkilega gaman að fylgjast með þessum félögum saman á brautinni og kunnum við Þorvaldi Árna bestu þakkir fyrir frábæran árangur með hestinn og aldrei að vita nema að þeir komi fram aftur síðar.Það er líka gaman að minnast á það að þessi fótaburður í Þrumufleyg er að sjálfsögðu frá náttúrnnar hendi og þótt hann sé keppandi í "Sílikonrallý" þá er ekkert slíkt undir hans hófum, aðeins 8mm skeifur, léttir kransar til að dempa höggið og 150 gramma hlífar.En nú taka við sæludagar hjá Þrumufleyg, því honum verður sleppt í hólf hérna í Álfhólum á miðvikudagskvöld og því eru þeir sem eiga pantað undir hann vinsamlega beðnir um að koma hryssum hingað í dag eða morgun ef mögulegt er.  Annars hefur ekki verið neitt mál að bæta inná hann hryssum, sérstaklega ef það eru folaldsmerar og það eru ennþá fáein pláss laus undir hann.</description>
Stóðhestar 2014
      <description>Við verðum með nokkra góða hesta í girðingu í sumar sem hægt verður að leiða hryssur undir.    Þrumufleygur verður í girðingu hjá okkur strax eftir Landsmót. Verð á folatolli með öllu er 125.000 kr.    Hér er video af honum tekið á vordögum:      Hér er annað video af klárnum af æfingu fyrir Stóðhestaveisluna núna í vetur:     Annar spennandi hestur sem verður í girðingu hjá okkur er áðurnefndur Eldhugi frá Álfhólum, undan Kappa frá Kommu sem hefur verið að skila eftirtektarverðum afkvæmum að undanförnu og Gásku frá Álfhólum sem hefur skilað öllum afkvæmum sínum á tamningaraldri í góðan dóm (nema Eldhuga). Afar efnilegur foli sem virðist lofa góðu sem kynbótahestur ef eitthvað er að marka fyrsta afkvæmi hans.  Verð á folatolli með öllu er 70.000 kr.   ATH Áætlað er að Eldhuga verði sleppt í hólf 18 Júní og það væri gott þeir sem eiga pantað komi með hryssurnar sem fyrst.  Gerum samt ráð fyrir því að hægt sé að setja inn til hans.Eldborg Eldhugadóttir undan Dimmuborg frá Álfhólum.  Íkon frá Hákoti verður einnig í girðingu hjá okkur og hægt að leiða undir hann. Verð á folatolli með öllu er 50.000 kr. Dimmir frá Álfhólum er í heimahögunum og verð á folatolli með öllu er 65.000 kr. Hægt að koma með meri hvenær sem er.Djarfur frá Álfhólum er mjög sjarmerandi 3ja vetra foli sem mikil spenna er fyrir, undan Dimmu frá Miðfelli og Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum,  en það gerir hann að hálfbróður Dívu frá Álfhólum og Dimmis.  Hann er búinn að vera í húsnotkun í Hafnarfirði en það verður áfram hægt að komast í húsmál til hans í Sandhólaferju næstu vikuna og hann kemur heim rétt fyrir Landsmót. </description>
Landsmótsfarar 
      <description>Það hefur kannski ekki verið lagt áherslu á magn hrossa í þjálfun þennan veturinn þar sem við báðar frænkurnar höfum jú verið aðeins uppteknar á öðrum sviðum, Hrefna í skólanum og Sara í barnauppeldi :) En það hefur ræst vel úr vorinu og greinilegt að við höfum nú verið að gera ágæta hluti í vetur með okkar hross. Hæst ber að nefna ævintýrahestinn, líkt og Bjarni á Þóroddstöðum kallaði Þrumufleyg okkar frá Álfhólum. Hann fór í úrtöku í B-flokki gæðinga hjá hestamannafélaginu Fáki núna í vor. Stóð efstur þar eftir forkeppni meðal jafningja í fyrna sterkum flokki klárhesta. Hann mun mæta galvaskur í B-flokkinn á LM og vonandi veita keppinautum verðuga keppni. Þorvaldur Árni Þorvaldsson reið Þrumufleyg forkeppni og kunnum við honum bestu þakkir fyrir mjög góða samvinnu og frábæra sýningu á hestinum okkar.   Mynd: Tekin á Stóðhestasýningunni í Ölfusshöll. Ljósmyndari: Gunnhildur Birna. Hrefna María og Kolka hennar frá Hákoti tóku einnig þátt í Gæðingakeppni Fáks og stóðu sig með prýði. Voru 5 eftir forkeppni og tryggðu sér Landsmótssæti með því. Þær létu ekki þar við sitja því eftir nokkra umhugsun var stefnan sett á kynbótadóm aftur. Já margir halda Hrefnuna hálf klikkaða að sýna svona hátt dæmda hryssu aftur ... og aftur.... og jú alltaf hækkar djásnið hennar og töluvert í þetta skiptið!! Þær stöllur áttu frábæra sýningu núna á Hellu í þessari vikur og fóru hvorki í meira en minna í 8,90 fyrir hæfileika og 8,51 fyrir byggingu. Aðaleinkunn upp á 8,74!!! Hrefna tók þá ákvörðun að mæta ekki í yfirlit þar sem hún sýndi seint á fimmtudegi og yfirlit strax á föstudagsmorgni. Þær vinkonur munu mæta á Landsmót ferskar og vonandi að þið munuð finna gustinn af þeim alla leiðina upp í brekku ;)  Stórkostleg meri hún Kolka sem virðist takmarkalaus. SköpulagHöfuð8Háls/herðar/bógar9Bak og lend9.5Samræmi9Fótagerð7.5Réttleiki8.5Hófar8Prúðleiki8Sköpulag8.51KostirTölt8.5Brokk9Skeið9.5Stökk8.5Vilji og geðslag9.5Fegurð í reið9Fet7.5Hæfileikar8.9Hægt tölt8.5Hægt stökk7.5Aðaleinkunn8.74Geisja frá Álfhólum er 6 vetra klárhryssa undan Stála frá Kjarri og Gásku frá Álfhólum. Þær Sara áttu góða forsýningu í kynbótadóm núna á Hellu í þessari viku og bættu um enn betur í yfirliti og nældu sér í Landsmótsfarmiða í 6 vetra hryssum.   Sara var alveg viss um að þessi færi inná mót, því nóttina fyrir yfirlitið dreymdi hana hana Dívu sína og það gat ekki boðað annað en eitthvað gott, því bæði Díva og Geisja eru í sameign með þeim félögum Róberti Veigar Ketel og Sigurði T Sigurðssyni frá Hafnarfirði.Hún hækkaði frá því í fyrra bæði í sköpulagi og hæfileikum. Flottur dómur en við teljum Geisju eiga eitthvað inni enn. Gaman verður að fylgjast með þeim tveimur á LM.  Kannski gaman að nefna það að Geisja er bara með léttustu tegund af hlífum þrátt fyrir að vera mjög opin klárhryssa (sumir vilja meina að hún sé vökur en þjálfarinn hefur ekki látið á það reyna ennþá) en afkvæmi Gásku hafa öll verið eðlishágeng og ekki þurft neina auka hjálp til að lyfta löppunum ;)SköpulagHöfuð7.5Háls/herðar/bógar8.5Bak og lend8.5Samræmi9Fótagerð8Réttleiki8.5Hófar7.5Prúðleiki6Sköpulag8.2KostirTölt9Brokk8.5Skeið5Stökk8Vilji og geðslag9Fegurð í reið9Fet7.5Hæfileikar8.1Hægt tölt9Hægt stökk8Aðaleinkunn8.14Og yfir í yngriflokkana. Álfhólahrossin verða nokkuð sterk í yngriflokkunum þetta Landsmót ef allt gengur eftir. Fyrst ber að nefna hana frænku okkar Selmu Maríu Jónsdóttur sem fékk hana Indíu frá Álfhólum lánaða hjá henni Hrefnu Maríu og reið henni af mikilli snild í efsta sæti í barnaflokki hjá Hestamannafélaginu Fáki í forkeppni og einkunn upp á 8,40 og úrslita einkunn 8,62. Glæsilegt það. Indía er 1stu verðlauna hryssa og farsælt keppnishross hjá þeim mæðgum, Hrefnu Maríu og Rósu. Vonandi eiga þær Selma eftir að láta finna vel fyrir sér í Barnaflokknum þetta Landsmótið. Gaman er að segja frá því að í sömu úrslitum var systir hennar Indíu, undan sömu meri henni Svertu okkar frá Álfhólum, hún Trú frá Álfhólum og náði hún og knapi hennar Sölvi Petersen einnig sér í Landsmótssæti. Aldeilis flottir og duglegir krakkar á fallegum merum :) Sara aðstoðaði 3 unga knapa fyrir úrtöku Geysis og þar eigum við eina flotta frænku hana Heiðu Sigríði Hafsteinsdóttur sem fékk hana Meyju frá Álfhólum lánaða hjá Söru.  Meyja er 6 vetra gripamikil klárhryssa undan Dimmir frá Álfhólum og út af gamla vindótta kyninu í Álfhólum. Fall virtist vera mikill fararheill hjá þeim Meyju og Heiðu en eftir smá hikst í fyrri umferð,  tóku þær stórgóða seinni umferð og náðu sér í örugga miða á LM. 2 sætið og einkunn upp á 8,32. Glæsilegt það, sérstaklega þar sem þær eru báðar algerir nýgræðingar á keppnisvellinum.  Innilega til hamingju Heiða okkar og hlökkum til að horfa á ykkur og hvetja á LM. Og okkur finnst nú við eiga aðeins í þessu pari. Þetta eru þær Sólrún Einarsdóttir og Íkonsdóttir hennar Élhríma frá Hábæ. Þær tóku þátt í ungmennaflokki Geysismótinu og nældu sér í LM miða eftir örugga og kraftmikla sýningu. Sólrún er hjá okkur í Álfhólum núna í sumar. Flottar og hæfileikaríkar báðar tvær. Ef okkur skjátlast ekki eru 2-3 önnur hross frá Álfhólum á leið á Landsmót í yngri flokkum, þau Þórunn Þöll og Mózart frá Álfhólum í ungmennaflokk fyrir Fák, Skyggnir frá Álfhólum og Hulda María Sveinbjörsdóttir í barnaflokk fyrir Sprett.   Svo eru Mökkur frá Álfhólum og Ingibjörg Rut Einarsdóttir séu með farmiða í unglingalokk fyrir Sóta en ekki víst að þau mæti.Ekki með farmiða...Planið með það færu 3 vindóttar inná mót hjá stelpunum hennar Söru stóðst ekki alveg, það vantaði herslumuninn hjá Marie sem er búin að vinna á Álfhólum í vetur og Mánaglóð, eða kannski aðeins meiri þjálfun saman en hún hafði bara prófað hana 2svar eða 3svar fyrir mót en hún skrapp heim til Þýskalands í frí í tæpar 2 vikur og kom ekki aftur fyrr en tveimur dögum fyrir úrtöku.  Marie er fyrsti varaknapi í ungmennaflokk hjá Geysi svo það er ekki öll nótt úti enn ;)Eðalgripurinn Sólarorka stóð sig vel í vor, vann fjórganginn í opnum flokki á WR móti í Spretti á sínu fyrsta móti utanhúss.  Hún var einni kommu frá því að komast inná Landsmót fyrir Sprett með 8.44 í einkunn og þremur kommum frá því að komast inná mót sem kynbótahross en hún var sýnd af Söru í vikunni sem leið með 8.12 í aðalenkunn.  SköpulagHöfuð7Háls/herðar/bógar8Bak og lend8.5Samræmi8Fótagerð8.5Réttleiki8.5Hófar8.5Prúðleiki6.5Sköpulag8.09KostirTölt9Brokk9Skeið5Stökk8Vilji og geðslag9Fegurð í reið8.5Fet8.5Hæfileikar8.14Hægt tölt8.5Hægt stökk8.5Aðaleinkunn8.12Og stærsta vonarstjarnan hennar Söru hann Eldhugi (hálfbróðir Geisju) fer heldur ekki á neitt Landsmót heldur þetta árið.  Hann heltist úr lestinni í bókstaflegri merkingu í lok apríl, sneri sig á kjúku sem vonandi kemur ekki til með að há honum í framtíðinni. Hrikalega svekkjandi, en hann virðist allavega orðinn óhaltur núna og getur tekið á móti hryssum í Álfhólum í sumar.  Nokkrar brokkmyndir sem voru teknar í byrjun apríl.</description>
"The horse on fire"
      <description>Þessi færsla átti upphaflega að heita "ég held ég gangi heim"  því þannig var það sem mér hefur liðið eftir síðustu reiðtúra á þessum fola því eins og gömlu mennirnir sögðu, það á að stíga af baki þegar folinn er bestur. Það er reyndar hlutur sem ég hef alltaf í huga við þjálfun, að hætta leik þegar hæst stendur en það er önnur saga sem verður ekki sögð hér.....  Það má eiginlega segja að það sé komin ný "drottning" í húsið, nema í þetta skiptið er það graðhestur og þetta er 3ja vetra foli undan Kappa frá Kommu og Gásku frá Álfhólum.  Eldhugi kom til tamingar í fyrstu eða annari vikunni í nóvember og varð strax í uppáhaldi hjá Verenu tamningakonu. Hann slasaðist á fæti í lok sumars og því þurfti að bíða frameftir með tamningu á honum.Ég tek svo við honum þegar nokkuð var liðið á janúar til að gangsetja hann.  Ég vissi nú að hann væri alveg opinn enda fluggekk hann oft í taumi, en fann fljótlega fótaburðurinn var eitthvað að flækjast fyrir honum á gamalli járningunni og reif því undan honum eftir viku og hafði hann járnalausan í 10-12 daga á meðan hann var að læra taktinn almenninlega.  Um síðustu helgi komu nokkrar píur úr bænum til að fara á Þorrablót og við það tilefni var lagt á gripinn sem er að fara þarna í þriðja reiðtúrinn eftir að hafa verið járnaður að nýju.  Þetta trippi virðist ætla að verða alveg með einstakt jafnvægi á tölti svona miðað við stutta tamningu, og það ætti að sjást vel á efstu myndinni, léttleiki, burður, taktur og að ég held mikið rými. Og ekki spillir grunnurinn fyrir honum, hátt stökkið og skrefamikið brokkið.Sara Rut (nú Hólanemi) sem fékk að prófa hann hafði það á orði að þetta væri eins og að sitja á ljóni, kraftmiklu og mjúku.Ég var minna kát þegar Eldhugi fæddist, hann átti að verða svartskjóttur hestur (því jú mig langar alltaf í stóðhest með þennan einstaka léttleika móður sinnar) og varð því frekar súr þegar ég sá rauðan stóran sláp hlaupandi klaufalegan í mýrinni á stórstígu lulli á eftir mömmu sinni!  En hann varð seinna skemmtilegur á að horfa og mér er minnistætt eitt skipti fyrsta veturinn eftir að hann fæddist, að ég labbaði um stóðið og hugsaði með mér.....skyldi ég vera með eitthvað í stóðinu sem kemst með tærnar þar sem Díva hefur hælana, eitthvað sem getur tekið við, og þá flýgur sá rauði framhjá, svona lofthár, myndarlegur og léttstígur, og ég hugsa, já það er kannski von og fyrirgaf honum að vera svona rosalega rauður á litinn!En ég á ekki mikið af rauðum ræktunarhryssum svo þetta sleppur kannski alveg, já eins og heyra má er ég alveg farin að undirbúa mig fyrir að nota þennan grip ef heldur áfram með hann sem horfir og á þegar von á einu undan honum og Dimmuborg Braga og Dimmudóttur næsta sumar.En það er eitt að vera efnilegur og annað að verða góður og það er bara eitthvað sem framtíðin getur sagt til um, og eins og er þá getur maður bara leyft að hlakka til gleðilegra vinnustundanna með þessum fola og sér síðan til hvert það leiðir.Og heiðurinn af nafninu á hún Gróa vinkona hennar Hrefnu Maríu eftir að ég var búin að vera að brjóta heilann endalaust og ekkert nafn nógu gott á þann eldrauða,... en ELDHUGI skal hann heita ;)</description>
Ágætis byrjun
      <description>  Það er alveg hægt að segja að Landeyjarnar eigi sér tvær hliðar, önnur birtist manni þegar maður horfir niður eftir frá þjóðvegi 1 og mörgum finnst það heldur óspennandi sýn að horfa til suðurs eftir þeim, allt flatt og fátt um kennileiti.  Hins vegar snýst teningurinn við þegar komið er niður eftir og fjallasýnin blasir við í góðu veðri eins og var hér á dögunum en það hefur nú viðrað að mestu vel á nýja árinu.     Ekki var síður fallegt veður þegar sjónvarpið bar að garði fyrir tveimur árum og var að taka upp þátt fyrir Meistaradeildina.  Engin ástæða að láta þetta video safna ryki í tölvunni eins og svo margt annað gerir hjá mér þessa dagana.  Hryssan sem skokkar svo þjál í kringum mig heitir Meyja og er af góða vindótta kyninu okkar og undan Dimmi frá Álfólum.Ágætis byrjun er fyrirsögnin og á að virka hvetjandi fyrir bloggandann sem hefur farið lítð fyrir á þessum bænum enda í mörg horn að líta að venju.  En það er margt spennandi í gangi, mikið af hrossum í brúkun, góð söluhross, efnileg keppnis og kynbótahross héðan og þaðan.Og svo af því að betra er seint en aldrei, þá óska ég öllum velfarnaðar það sem eftir lifir árs ;)</description>
Sprengigígurinn sem hvellsprakk...eða?
      <description>     Það er alltaf skemmtilegt þegar að hestar rísa uppúr öskustó, eins og þessi blesótti hefur sannarlega risið í áliti hjá mér.  Hann fekk það mikla nafn Sprengigígur þegar hann var folald og átti heldur betur að sprengja skalann sem kynbótahestur enda vígalegur með eindæmum, en það er óhætt að segja það að hann hafi hvellsprungið í byrjun tamningar á fjórða vetur og eistun fóru í hundana!    Blesi var saltaður í meir en ár og var svo tekinn til handargagns 5 vetra, aðallega notaður í hrossasmalamennsku af henni Verenu svona ef það ske skildi að það væri hægt að kveikja eitthvað á honum.  Jú eitthvað hækkaði hann í áliti hjá mér þegar ég tók hann út hjá henni um haustið, en ég fór ekkert sjálf í hnakk á þessum tíma af skiljanlegum ástæðum og prófa hann ekkert fyrr en í byrjun ágúst sl. Hann var þá búinn að vera þjálfaður síðustu 8 mánuðina eða svo af henni Söru Rut en hún lék sér aðeins með hann í 5 gang í sumar.  Tilefnið var að það átti að sölusýna hann og ég varð eiginlega svoldið hissa þegar ég kom á bak, því síðasta minningin var nú ekki beisin úr hnakknum ;)    Alla vega, ég varð voðalega fegin að hann skildi ekki henta í þetta verkefni sem var verið að hugsa um hann í, því ég fann strax að þarna var hægt að gera alveg fullt í viðbót fyrst að viljinn var loksins kominn og fór aðeins að kíkja betur á hann í haust.  Hann var alltaf magnaðri og magnaðri með hverri vikunni, samt fór ég ekki oftar en 1 sinni til 2svar á bak honum í viku (merkilegt hvað þeir þjálfast stundum vel í haganum líka ;) og honum hefur alveg tekist að fá hárin á mér til að rísa í reiðtúrum, og það tekst fáum!      Og svo er ekki verra að hann er alveg aulaheldur á skeiði (er virkilega engin betri þýðing á idjot proofed!) Hann hefur líka svaka góða beisliseiginleika, en þar sker oft á milli hvort manni hversu vel manni líkar við hrossin.Hvað getur maður svo lært af þessu?  Taka mark á folöldum og gefast ekki upp þó útlitið sé kolsvart um tíma?  Umm jamm allavega í þessu tilfelli :)Já og af því að athyglisbrestur getur háð mér verulega þessa dagana þá gleymdist að setja allar upplýsingar á vieoið, en Sprengigígur er sem sagt 6 vetra gamall undan Glym frá Skeljabrekku og Gýgur frá Ásunnarstöðum.  Sú var undan Blakk 999 frá Hafnarnesi þannig að það er dass af hornfirsku blóði þarna.  Það gat líka ekki annað verið að hann yrði viljugur hann Sprengigígur því þetta var alveg ofsaviljug hryssa.  Gýgur er fallin en undan henni er ein hryssa í ræktun, Herská Parkersdóttir, ekki hátt dæmd frekar en móðir sín, en hágeng og ég hafði oft mjög gaman af henni.</description>
Leggð´ann
      <description>Við stelpurnar skelltum okkur á frumtamninga sýnikennslu hjá Iben Andersen á sunnudaginn til að fá smá uppfærslu á tamningaraðferðinar okkar.  Mjög lærdómsríkt og skemmtilegt bara þó margt hafi maður séð áður og reynt en annað ekki, eins og t.d það að leggja tryppin í byrjun tamningar, sem hún segir að stytti ferlið og skilst að það henti einkar vel á erfiða hesta (verð að játa það að ég missti nú aðeins úr því ég var með afleggjarann með mér og þrátt fyrir mikla þolinmæði, þá var hún kannski ekki alveg 100% allan tímann)........  En alla vega, það er svo gaman við að fá svona innblástur, að þá brunar maður af stað og vill prófa.....og við erum svo heppnar hérna að það er ekki alveg búið að temja öll tryppin.Byrjuðum á 3 vetra gröðum Kjerúlfsyni undan Móeiði, hann kom inn á sunnudaginn, var svoldið bandvanur en ekki full leiðitamur þó..... Það var farið hratt og örugglega yfir hann og Verena reið honum hringinn í gerðinu án mikillar aðstoðar frá mér...en þetta er geðgóður og sjálftaminn hestur og ekkert að marka það þó það hafi gengið svona fljótt ;)Næst tókum við 3 vetra nýlega geltan fola undan Fróða og Mónu, hann var ennþá hrárri og var aðeins lengur að átta sig á öllu, en eftir svipaðan tíma (ca hálftíma-40 mín) var búið að ríða honum í gerðinu líkt og þeim fyrri.... Jæja en hvorugan hestinn sáum við ástæðu til að leggja, okkur fannst þeir bera nægilega virðingu fyrir okkur eftir alla spottaleikfimina.Nýlega fékk eignaðist ég gráan fola frá Kanastöðum, algerlega ósnertan, nema hann hafði verið geltur, en annars látinn afskiptalaus.  Stelpurnar voru búnar að reyna að mýla hann fyrir nokkru en gefist upp við það, hann var ansi mikið laus upp að framan og styggur..... Þetta var sem sagt alveg tilvalið verkefni til að sannreyna hvort þessi tamningaraðferð sé gagnleg eða ekki. Gráni var rekinn fram á gang, gamlan skellti múlnum á hann og svo var hann rekinn inní hringgerði, kenndar svona helstu æfingar í hendi og svo lagður í orðsins fyllstu, hljómar svoldið ógnvekjandi, en fer allt voða vel og eiginlega alveg ótrúlega átakalítið fram.  Valið einfalt, annað hvort að vappa um á 3 fótum eða leggja sig....(og vert að taka það fram að Gráni litli er skítugur af því að velta sér í höllinni blautur um morguninn, ekki það að hann sé svitastorkinn búinn að veltast þarna um!  Oft svitna tryppi og verða móð þegar þau eru að takast á við spottann í fyrstu skiptin, en það var varla að hann hitnaði þessi). .... sem var mikið ákjósanlegra, tók fáeinar mínútur að átta sig á því........ tók aðrar fáeinar mínútur að telja Grána á að leggja sig alveg........og fá krús og klapp frá Verenu í staðinn.  Þetta er svoldið magnað að sjá hvað hann var fljótur að sætta sig við óvenjulegar aðstæður og kjammsaði þarna liggjandi flatur.  "Hvernig getur hann vitað að við ætlum bara ekki að borða hann" sagði ég við Verenu ;)En traustið var unnið...sáttur við þyngdina frá öllum hliðum....Hann þurfti þó ekki að standa upp með Verenu á baki... En hún stökk berbakt á bak þegar Gráni stóð upp og reið berbakt við einteyming af stað nokkur skref.... spennandi að sjá hvernig gengur á morgun!  Skildi þetta bara vera aðferð sem virkar vel?Verðið að afsaka gæði myndanna, en þær eru teknar á síma.</description>
Síðbúin vorsýningarfrétt
      <description>Líklega hefur maður aldrei komið jafn litlu í verk eins og þennan veturinn enda dagarnir ansi fljótir að líða með lítinn snáða á handleggnum stóran hluta dagsins, en ekki ætla ég að kvarta yfir eða sjá eftir þeim tíma í það fer, síður en svo enda litli drengurinn sem hefur fengið nafnið Hrafnar Freyr algert draumabarn ;) En engu að síður reynir maður að stelast í hesthúsið þegar hægt er og með dyggri aðstoð Söru Rut sem hélt öllu í horfinu meðan ég komst ekki í hnakkinn og í allan vetur þá tókst að halda hlutunum gangandi, nokkur hross skiptu um eigendur og nokkrar hryssur voru sýndar í vor.  Nú er reyndar að koma inn skemmtilegu hestaárgangarnir þar sem meirhlutinn af folöldunum 3 ár í röð voru hestar, þannig að það er nóg úrval af geldingum á tamningaaldri, úff!Já, það var fínt að komast loksins í hnakkinn 11 febrúar, rúmum mánuði eftir að ég átti, eftir 7 mánaða pásu, en ég hætti að ríða út strax eftir landsmót í fyrra. Var reyndar orðin áhugalaus í meira lagi með hrossin fyrir þann tíma, síþreytt og pirruð og var dauðfegin þegar landsmótið var yfirstaðið, þá þyrfti ég ekkert að pína mig meir í hnakkinn ;)  En til allrar hamingju kom áhuginn til baka þegar litli guttinn fæddist og maður er hægt og rólega að komast í fyrra form.En eins og áður sagði þá voru nokkrar hryssur mátaðar á brautinni í vor.Sólarorkan hans Valdimars stóð sig vel á Gaddstaðaflötum og kom út í 8, klárhryssa með 8.5 á línuna nema 9 fyrir stökk.  Sólarorka er 6 vetra undan Kraft frá Neðri-Þverá og Sóldögg, sem sagt sammæðra Sóllilju.  Hún átti folald 4 vetra sem hún missti, og frumtamin þá um haustið. Stór og myndarleg skrefamikil jafnvíg opin fjórgangshryssa, traust og samvinnufús.Mánaglóð er algert uppáhald hjá húsráðanda í augnablikinu, skemmtileg klárhryssa eðlishágeng og verulega gaman að vera í hnakknum á þessari, hún er ennþá að vaxa og á mikið inni, efnilegur fjórgangari eins og mörg systkyni hennar undan Mónu og ekki er faðirinn af verri endanum, HM farinn Bragi frá Kópavogi.  Það var ekki hægt að láta Söru Rut enda veturinn án þess að máta kynbótabrautina og þær voru sætar saman Sara Rut og Mánaglóð. Sara fékk strax fyrstu níuna í hús, fyrir hægt stökk, 8.5 fyrir fet, stökk og fegurð í reið og 8 fyrir annað.  Þetta var þeirra beggja fyrsta ferð á kynbótabrautina.Geisja er léttstíg og kát, fékk ekki alveg allt sem ég ætlaði henni í þetta skiptið, en það er nógur tími, enda er hún bara 5 vetra. Hún er undan Gásku og Stála frá Kjarri.  Forsýningin var kannski ekki alveg nógu sannfærandi og hún hækkaði örlítið á yfirlitinu, fannst nú heldur lítið gefið fyrir brokk samt.... en eins og ég segi hún er ung og spræk og á framtíðina fyrir sér!  Fékk 8.5 fyrir tölt stökk vilja og fegurð í reið, 7.84 í aðaleinkunn, klárhryssa.Svo er það hin sprengviljuga Frostrós undan Þyrnirós og Hrym frá Hofi, ég ætlaði sko heldur betur að bæta dóminn á henni síðan í fyrra, en það gekk ekki alveg upp í þetta skiptið, forsýninginn fór út og suður en yfirlitið gekk hins vegar vel þó hækkunin væri lítil, hún endaði í 7.68.  Ætla samt að telja mér það til tekna að ég náði ekki að prófa þessa hryssu almenninlega fyrr en í lok maí, rétt fyrir sýningu, og var svo aðeins að "delera" með járninguna á henni, en stefni á að máta brautina aftur með hana í sumar. Það er svaka mikið í þessari meri, mikill kraftur og rými á tölti og brokki, býr yfir einhverju skeiði líka, finnst nú reyndar skemmtilegra að reisa hana uppúr herðum og láta hana fljúga á yfirferðartölti frekar :P Verena sem hefur verið að vinna hjá mér á þessa hryssu en við sáum um hana í vetur meðan hún ferðaðist vítt og breitt um heiminn.</description>
Opps they did it again ... 
      <description>Gæðingshryssan Kolka frá Hákoti var á húsi og hefur Hrefna María þjálfað hana að kappi í vetur. Þjálfunin gekk vel og hafði Hrefna strax orð á því að henni finndist hryssan töluvert sterkari og beittari þetta árið. Enda væri kannski annað óeðlilegt að hryssan myndi ekki bæta sig frá ári til árs líkt og önnur hross því enn er hún ung á árum einungis á 7 vetri, þó að hún hafi í raun toppað sig og allt sem hægt er að toppa síðast liðin ár. Hæst dæmda 5 vetra hryssan 2011 á LM sigurvegari og hæst dæmda 6 vetra hryssan í heiminum 2012. Stefnan var tekin á að koma fram með hana í A - flokki gæðinga hjá Fáki í vor. Mynd tekin í forsýningu A-flokks. Nú í lok maí var Gæðingakeppni Fáks haldin og stóðu þær stöllur sig vel í frumraun sinni á hringvelli. Forsýningin gekk ljómandi vel og uppskáru 8,49 - margir sem sáu sýninguna voru aðeins hissa á að talan hafi ekki verið hærri því sýningin var mjög góð. En eftir að hafa rýnt í dómarablöðin var nokkuð augljóst að fet einkunin var það sem dró hana mikið niður. :)En Kolka og Hrefna náðu sér í úrslitasæti og mættu galvaskar í úrslitin sem voru gríðarlega hörð og spennandi þar sem ofboðslega sterkir hestar átu kappi saman. Mynd Kolka og Hrefna á brokki í úrslitum. Auðvitað fór knapinn í sitt fínasta púss hvítar og tjaldaði var til öllum semilíusteinum sem finnast getur á beisli og hjálm :) Úrslitin gengu vel og skilaði Kolka öllu sínu eins og henni er einni lagið - fullum afköstum á öllum gangtegunum, jákvæð og ótrúlega skemmtileg. Hrefna María setti inn status á facebook sem tilvalið er að birta hér og lýsir kannski hryssunni og upplifuninni að sitja svona gæðing vel :,,Er búin að eiga frábæran vetur með þessu gulli. Hver einasti reiðtúr verið einstakur og oftast endað einhver staðar lengst frá húsi því ég hef ekki tímt að sitja á henni lengur og fengið mér göngutúr heim. Vinir mínir fengið ófá símtöl og ég segi þeim að ég sé í "algjöri losti yfir hryssunni" og þurfi að "frysta mómentið" og hvað eina... Ég varð aðeins klökk eftir úrslitin í A-flokki á laugardaginn þegar ég rölti með hana heim eftir að hún skilaði öllu sínu eins og henni er lagið, full af orku og þjálni á öllum gangtegundum. Við vorum meðal bestu A-flokkshesta landsins og var þetta frumraun hennar á hringvelli, einkunn 8,67 og 4 sæti. Tveir stóðhestar með yfir 8,90 í hæfileikum voru á undan okkur, Gróði og Ágústínus, og svo legend-ið hann Stakkur frá Halldórsstöðum. Eftir okkur voru einnig frábærir hestar. En það lang BESTA var... tilfinning að sitja á þessari hryssu, hún var ólýsanleg, mikið ofboðslega var þetta gaman! Fúsleikinn og sálin hennar er eitthvað sem ég hef aldrei kynnst og hugsa að ég kynnist bara einu sinni á ævinni í hrossi... eins og ég hef oft sagt í vetur þegar ég kem heim í hús "hross eru bara ekki svona" !! Hef aldrei trúað sérstaklega á að til séu sálufélagar og annað slíkt... en eitthvern vegin finnst mér eins og Kolka mín og ég komumst nálægt því... Og það sé fyrir ástæðu sem þessi hryssa endar í höndunum á mér... gæti verið örlög??Var að reyna útskýra þetta fyrir einni vinkonu minni og þá datt mér í hug kvikmyndin Avatar... "það er bara eins og flétturnar okkar tengist saman"... finnst ég geta séð á henni þegar ég horfi á hana hvernig henni líður inní hesthúsi, veit yfirleitt hvernig hún er áður en ég fer á bak, ég finn hvað hún er að hugsa þegar ég sit á henni og hún finnur strax ef það er rólegur dagur og hvenar orkan á að vera uppi. Tala svo við hana í huganum þegar hún bíður mér of mikla orku og hún skilur mig. Geðslagið og fúsleikinn í þessari svörtu drottningu er það sem fær mitt hjarta til að slá hraðar"Hrefna og Kolka á fljúgandi skeiðsiglingu. Einkunnir Kolku voru mjög jafnar fyrir allar gangtegundir og skorið iðulega milli 8,6-8,8 fyrir allt. Loka einkunin var 8,67 og 4. sætið á eftir gríðarlega sterkum hestum og ekki má gleyma þeim sem eftir komu. Kynbótadómur 2013Eftir gæðingakeppnina fékk hún gott frí í eina og hálfa viku eða svo. Þegar Hrefna byrjaði að trimma hana aftur var Kolkan heldur betur í stuði og eftir "örlitlar" vangaveltur var eins og það eina rétta væri að renna henni í kynbótadóm aftur... Já afhverju ekki ? Hrefna var sannfærð um að hún hafi aldrei verið betri og ætti hún að þekkja hana orðið þónokkuð vel. En hvað ætlaru að bæta ?? Hún er svo hátt dæmd!! .. já heyrðist á mörgum stöðum. Tilfinningin hennar Hrefnu sagði henni að hún getur farið í 9 fyrir nánasta allar gangtegundir samtímis á góðum degi. Hrefna heldur í Kolku í byggingardómi Hella 2013. Svarta drottningin. Hrefna fór með Kolku á kynbótasýningu í loka vikunni á Hellu núna í byrjun júní. Hryssan var fílefld. Glansandi og vel sæl. Vonast var til að hún myndi hækka jafnvel fyrir hófa en úr var að hún hélt sinni byggingareinkunn óbreyttri sem er ekkert slor 8,44 - þar af 9 fyrir háls og samræmi og 9,5 fyrir bak og lend.  Kolka í fordóm á tölti 8,5 fyrir tölt. 9 fyrir fegurð í reið. Í brautinni var hryssan góð, kraftmikil og örugg. Greinlega orðin að fullorðu hrossi. Útgeislun og fas vantaði ekki sem og kraft. Frábærar gangtegundir skiluðu henni í 8,81 í hæfileikum og þar af 9,5 fyrir vilja og geðslag. Í fyrra hlaut hún 8,85 en það sem breytist nú var að hún hlaut 9 fyrir skeið og hækkaði þar um hálfan en lækkaði um hálfan fyrir tölt í 8,5 úr 9. Og brokk 9. Hefur alltaf fengið 9 fyrir brokk. 9,5 fyrir Vilja og geðslag. Aðaleinkunn 8,66Sköpulag: 8,44Kostir: 8,81Höfuð: 8,0   5) Myndarlegt   Háls/herðar/bógar: 9,0   1) Reistur   5) Mjúkur   6) Skásettir bógar   Bak og lend: 9,5   2) Breitt bak   3) Vöðvafyllt bak   7) Öflug lend   8) Góð baklína   Samræmi: 9,0   1) Hlutfallarétt   2) Léttbyggt   4) Fótahátt   5) Sívalvaxið   Fótagerð: 7,0   I) Votir fætur   Réttleiki: 8,5   Afturfætur: 1) Réttir   Hófar: 8,0   3) Efnisþykkir   I) Slútandi hælar   Prúðleiki: 8,0Tölt: 8,5   2) Taktgott   3) Há fótlyfta   Brokk: 9,0   1) Rúmt   2) Taktgott   5) Há fótlyfta   Skeið: 9,0   1) Ferðmikið   2) Takthreint   3) Öruggt   Stökk: 8,5Vilji og geðslag: 9,5   2) Ásækni   4) Þjálni   5) Vakandi   Fegurð í reið: 9,0   1) Mikið fas   3) Góður höfuðb.   4) Mikill fótaburður   Fet: 7,5Hægt tölt: 8,5Hægt stökk: 7,5Svifmikið brokk!Yfirlitsýningin gekk ágætlega þó svo ekki varð úr hækkun. En Hrefnu langið að breyta nokkrum tölum og í draumaheimi hefði hryssan dottið aftur í 9 tölt eins og hefur fengið, síðan finnst okkur brokkið alveg getað borið 9,5 eins og á yfirlitsýningunni og svo hefði verið afskaplega skemmtilegt að sjá 10-una fyrir vilja og geðslag. Okkar mat er að hún getur alveg borið þessa stóru tölu líkt og aðrir gæðingar sem hafa hlotið hana. Hún hefur komið 5 sinnum fram á braut og aldrei hefur sýning klikkað,  LM sigurvegari 2011 og hæst dæmda hryssan 2012 og sýnist stefna í það sama 2013!!  Eyrun fram og ávalt fjör og jákvæð lund. "Gaman að neita að vera í Landsliðinu 2 ár í röð!" sagði Hrefna um daginn hlægjandi eftir að hringt var í hana henni boðið sæti sem kynbótahross, það gerist nú ekki á hverjum degi. En svona er þetta og aldrei að vita hvað árið 2014 ber í skauti sér. Stefnan er tekin á LM 2014 með Kolkuna. :))) Mynd tekinn í gær af Kolku - Enjoying life!  Já hún er að hafa það huggulegt þessa dagana, fær að vera ein með nokkrum nýköstuðum úti á túni bak við hús. Ánægð með lífið og tilveruna og fær að borða fylli sína á hverjum degi og ráðsmennskast með hinar hryssurnar eins og henni er einni er lagið.  Ekkert vallar skak í bráð hjá henni ... eða hvað? Aldrei að vita hvaða flugu eigandinn fær í hausinn!  #simplythebest</description>
Hesthúsið tekið í gegn
      <description>Nú er ekki leiðinlegt að hefja sumartamningarnar á fullu. Ráðist var í að taka hesthúsið í gegn frá A til Ö síðustu daga og þar með talið reiðhöllina líka. Byrjað var að taka upp gólfið og þrífa reiðhöllina. Hér er verið að taka gólfið :)Og hafist handa við að þrífa höllina :) Síðan tókum við og hreinsuðum allt hesthúsið, mokað út og allt þrifið hátt og lágt, alla króka og kima. Sara Rut með háþrýstiþvottinn á hreinu eins og svo margt annað :)Reiðhöllin eftir þvott og fyrir málningu! Að lokum voru veggirnir í reiðhöllinni málaðir hvítir og erum við afskaplega ánægðar með þá útkomu. Verkstjórinn lét ekki sitt eftir liggja hér á fullu að mála reiðhöllina ! Hér er loka útkoman, Sara Rut með pensilinn í hendi. Það birtir mikið yfir öllu með svona sumar hreingerningu og er ekki frá því að það birti bæði yfir mönnum og dýrum í svona hreinni og fínni aðstöðu, góður stemmari í dag að reka reiðhrossin og tamningatryppin inn :) Annars er heilmikið að frétta og vonust við til að geta fært ykkur þær beint í æð núna í sumar! Bestu kveðjur frá stelpunum í Hólunum ;) </description>
Gleðilegt Sumar !
      <description>   Gleðilegt sumar kæru vinir!  Yndislegasti tími ársins genginn í garð, fölöld og lömb að fæðast, dagarnir lengjast og grösin grænka ;)    Mynd: Rósa Valdimars að spjall við ungviðin.    Do silly stuff and be happy ;)))  Verum glöð og njótum hestana okkar.       </description>
Lítill Álfhólaprins fæddur
      <description>Þessi dásamlegi drengur, sonur Söru, fæddist 8. janúar. Deilir því afmælisdegi með merkismönnum líkt og Elvis Presley og David Bowie. Hér er hann 10 daga gamall. Drengurinn dafnar vel og bjartir tímar eru framundan í hólunum þar sem karlmaður hefur bæst í kvennafans Álfhólana. Undanfarið höfum við því kannski verið aðeins annars hugar en við hestana og því ekki af ástæðulausu. En hestamennskan heldur áfram hjá okkur Hrefna María er komin á fullt skrið í Víðidalnum og Sara Rut stendur plikktina vel sem yfirþjálfari og bústjórinn á Álfhólum þessa stundina... svona alla vegna þangað til að mæðginin snúi aftur heim. Mynd: Hrefna María og Silfurrún í Víðidalnum í vikunni. Silfurrún er til sölu, alþæg og skemmtileg fjórgangsmeri.Fleiri myndir af Silfurrún HÉR Í ALBÚMI. </description>
Merry Christmas and happy new year!
Meir af fólki en hestum - Álfhólar tilnefndir
      <description>Uppskeruhátíðin var haldin með pompi og pragt á Broadway aðra helgina í Nóvember, þar var aðallega uppskorin gleði með góðum vinum en það kom okkur líka skemmtilega á óvart að Álfhólar fengu tilnefningu til þess að vera Keppnishestabú ársins, gaman að því :)Partýbomburnar Hrefna María og Sara Rut brostu sínu blíðasta.  Hrefna er núna búin að venda sínu kvæði í kross og sest á skólabekk, tæklar Viðskiptafræðina í HR með miklum móð, en mun þó halda áfram að þjálfa og temja í Víðidalnum í vetur meðfram skólanum.  Sara Rut er hins vegar orðin yfirtamningamaður á Álfhólum og verður í vetur, mikill fengur í henni :)Helgina eftir var svo uppskeruhátíð hjá Geysi og þar fengum við Díva líklega síðasta bikarinn á þessum vettvangi, Mjölnisbikarinn sem var gefin því pari sem stóð sig best á töltbrautinni innan félagsins.  Enginn fór heim þó hlaðinn jafn mörgum verðlaunum og Sæli frændi í Fróðholti og Anna Fía konan hans en þau hrepptu öll ræktunarverðlaunin.  Hansi var svo kosinn knapi ársins. </description>
Vaknað úr dái!
      <description>Já það var eiginlega ekki hægt að kalla þessa færslu neitt annað, því heimasíðan hefur verið ansi líflaus uppá síðkastið, og skrifast það algerlega á andleysi undirritaðar (væri kannski gott að kenna Hrefnu Maríu um, að vera komin í háskóla og hafa ekki lengur tíma til að nauða í mér að uppfæra síðuna ;) Kannski það sé líka kominn tími á að loka á Feisbúkk en það er merkjanleg samsvörun á milli notkunar á þeim miðli og lélgrar virkni hérna megin! En alla vega, "back to business" og núna er vonandi ritstíflan brostin!Ætla að byrja á að skutla hérna inn tveimur stuttum videoum síðan á Landsmótinu í sumar sem ég vann loksins eftir dúk og disk en þau eru frá Ræktunarbússýningunni okkar, en eins og flestir vita sem voru þar þá tókum við þátt, og viti menn..... við vorum aftur valin áfram sem annað besta ræktunarbúið til að koma aftur fram á laugardeginum annað árið í röð.  Erum ákaflega stolt af þeim heiðri enda virkilega flott bú að keppa!       Frá Sýningunni á Föstudeginum. Okkur kveið samt dáldið fyrir að koma þessu öllu heim og saman, hrossin voru misjafnlega vel á sig komin.  Ég lenti í því að sveitatútturnar mínar sem komu í menninguna fengu múkk, mis mikið en enginn undanskilin, ekki einu sinni Dívan, eitthvað sem við þekkjum ekki héðan úr sveitinni :/Og svo var algerlega óvíst hvort Þrumufleygur gæti tekið þátt, því hann slasaðist á kerru á leiðinni í bæinn, var dreginn úr keppni í B-flokknum og tvísýnt með hann fram á síðustu stundu hvort við gætum lagt á hann að vera með.   En þetta small svo saman undir dynjandi takti ofurskvísunnar Jennifer Lopez og greinilega fallið vel í kramið og við þökkum bara kærlega fyrir veittan stuðning! Og síðast og ekki síst þökkum við þeim knöpum sem gerðu þetta að veruleika innilega fyrir hjálpina auk allra annara sem aðstoðuðu okkur við að koma þessu heim og saman :)     Frá Laugardagssýningunni.Við skemmtum okkur örugglega ekkert minna en áhorfendur og við öttum kappi við Blesastaði, þar sem við þurftum að láta í minni pokann fyrir misjafnlega brúnum kroppum berum að ofan ;) Strákarnir í hópnum okkar voru hálf svekktir við mig á eftir að ég skildi ekki hafa rekið þá úr öllu, þeir hefðu pottþétt látið vaða, og við þá að sjálfsögðu unnið hehe ;)                                                                                                                                                                       Mynd Inga Dröfn Á Flugi!  Siggi Sig var snöggur að fatta takkaborðið á Dimmir og þetta er nú bara ein sú allra besta skeiðmynd sem ég hef séð í seinni tíð!                                                                                                                                                        Mynd Inga DröfnIndía hennar Hrefnu Maríu er hross sem vex með hverju árinu sem líður.                                                                                                                                              Mynd Herdís ReynisdóttirSóllilja heillaði Sigga Matt í vetur eins og svo marga aðra sem hafa kynnst henni, því var auðsótt mál að plata hann á bak og vera með í fjörinu!                                                                                                                                    Mynd Valgerður ValmundsdóttirFlott lína á föstudag, Siggi og Sóllilja, Hansi og Gáta, Elvar og Álfarós, Hrefna og Indía.                                                                                                                                  Mynd Valgerður ValmundsdóttirGáta sperrt hjá Hans Þór Hilmarssyni!                                                                                                       Mynd Magnús Ingi MássonÁ laugardeginum var Saga vinkona svo elskuleg að lána okkur Myrkvu sína ferska inní hópinn, sem Elvar Þormarson reið í stað Álfarósar sem var orðin frekar þreytt eftir síendurtekinn þeyting á Landsmótinu.                                                                                                                                   Mynd Anna Linda GunnarsdóttirÞrumufleygur var boðinn og búinn að gera sitt besta þrátt fyrir undangengna erfiðleika, með knapa sinn John Kristinn Sigurjónsson.                                                                                                                  Mynd Inga DröfnKveðjustund, við stöllurnar búnar að eiga margar ógleymanlegar stundir í gegnum árin og það verður ekki auðvelt að finna annan eins gæðing til að fylla hennar skarð, ekki bara á keppnisbrautinni heldur bara sem frábæran reiðhest og gleðigjafa.  Takk Dívan mín! </description>
Fréttir af Þrumufleygs afkvæmum 
      <description>Þó nokkur afkvæmi Þrumufleygs hafa litið dagsins ljós hér í Álfhólum og víðar nú í sumar og síðasta. Þau eiga það sameiginlegt að vera afar rúm á gangi, stórstíg og auðvitað virkilega hágeng! Á síðu Þrumufleygs HÉR er Hrefna María búin að taka saman í fréttir af þeim. Þrumufleygs sonurinn Eyvar frá Álfhólum veturgamall núna vorið 2012. </description>
Stóðhestum sleppt í hólf
      <description>Þrumufleyg frá Álfhólum verður sleppt í hólf í Álfhólum á laugardaginn. Verð 100 þús með öllu. Fyrri pantanir óskast staðfestar og nokkur pláss laus ennþá. Upplýsingar gefur Hrefna María 8611218.Gæðingnum Dimmi frá Álfhólum verður sleppt í hólf í Álfhólum um helgina. Fyrri pantanir óskast staðfestar.  Verð 60 þús með öllu. Upplýsingar gefur Sara 898-8048.Íkon frá Hákoti verður sleppt í hólf í nágrenni Álfhóla á næstu dögum. Verð 60 þús með öllu. Upplýsingar gefur Hrefna María 86112118. (Mynd Kolka dóttir Íkons).Einnig verður hægt að hleypa inn á hestana ef svo ber undir. </description>
Kolka hæst dæmda hryssa ársins!! 
      <description>Hrefna var alveg ákveðin í því að halda Kolku geldri síðasta sumar og ríða henni þennan veturinn. Margir töldu hana hafa misst vitið þar sem hryssan var afar hátt dæmd síðasta sumar og Landsmótssigurvegari í sínu flokki 5 vetra hryssum. En eitthvað innra með Hrefnu sagði henni að Kolka hefði ekki toppað sig enn og ætti eftir að sýna meira og ekki síst þá vorum við aldrei ánægð með hálseinkunnina á henni, en hún á auðvitað borðleggjandi níuna skilið þessi drottning!Kolka og Hrefna áttu magnaða sýningu á Gaddstaðaflötum í seinni vikunni.  Þær svifu átakalalaust hnarreistar eftir brautinni á öllum gangtegundum og Kolka fékk hvorki meir né minna en 8.85 fyrir hæfileika og hæst 9.5 fyrir vilja og geðslag, eitthvað sem þetta geðprýðishross stendur fyllilega undir.   Ég er ekki sammála þeim sem segja að öll hross sem eru að fara í 9.5 og 10 fyrir vilja séu spennuviljug hross sem sé á fárra færi að ríða.....IS2006286428 Kolka frá HákotiÖrmerki: 968000001802023Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlittRæktandi: Halldóra Hafsteinsdóttir, Markús ÁrsælssonEigandi: Hrefna María Ómarsdóttir, Rósa ValdimarsdóttirF.: IS2002186435 Íkon frá HákotiFf.: IS1996187336 Töfri frá KjartansstöðumFm.: IS1994286104 Bella frá KirkjubæM.: IS1995286428 Frá frá HákotiMf.: IS1989184551 Þorri frá Þúfu í LandeyjumMm.: IS1990286414 Feykja frá HalaFORSKOÐUNARDÓMURHéraðssýning á GaddstaðaflötumMál (cm): 141 - 137 - 63 - 142 - 28,5 - 17,5Hófa mál: V.fr.: 9,0 - V.a.: 8,9Sköpulag: 8,0 - 9,0 - 9,5 - 9,0 - 7,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 = 8,44Hæfileikar: 9,0 - 9,0 - 8,5 - 8,5 - 9,5 - 9,0 - 7,5 = 8,85Aðaleinkunn: 8,69      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5Sýnandi: Hrefna María Ómarsdóttir Svona skal sitja þegar riðið er í 8.85 ;)2 + 2 verða ekki alltaf 4Kolka kemur efst allra hryssna inná Landsmót með 8,69 í aðaleinkunn.  Hún er glæsileg alhliðahryssa, spekúlantar tala hreyknir um að hér sé verðugur fulltrúi íslenska ræktunartakmarksins, sem er glæsilegur hestur með 5 gangtegundir, klárhross með skeiði.  Gott og vel..... það er hins vegar svoldið athyglisvert að rýna í ættartré Kolku og skoða hvað er að finna þar og hvernig hross, því stór hluti af hennar forfeðragarði eru klárhestar en eins og væntanlega fleiri en ég hafa tekið eftir þá eiga klárhross minni og minni möguleika á því að láta ljós sitt skína sem Kynbótahross á Landsmóti.En ég ætla að rýna aðeins í ættartölu Kolku til gamans..... og þar tek ég fyrstan fyrir hann Íkon kallinn frá Hákoti, rúman töltara, og hver vill standa á því fastar á fótunum að hestar með 7.5 fyrir háls geti ekki gefið glæsihross?!   Íkon kemur undan tveimur klárhrossum, Bellu frá Kirkjubæ landsmótssigurvegara í 4 vetra flokki 1998 og Töfra frá Kjartansstöðum.  Bella er undan frægum klárhesti, Loga frá Skarði, ef mig misminnir ekki þá var klárgangur afar ríkjandi í hans afkvæmum en Brella móðir hennar bjó yfir dálitlu skeðspori samkvæmt Worldfeng.  Töfri er svo undan heldur klárgengri klárhryssu ef ég skil rétt, Ternu frá Kirkjubæ og Óð frá Brún sem hafði allar 5 gangtegundirnar.  Þannig í föðurlegginn finnast ekki fimmgangshross fyrr en í þriðja ættlið.Móðirin Frá frá Hákoti er alhliða hryssa, svoldið athyglisvert að rýna í tölurnar á henni, 9.5 fyrir vilja og geðslag en engin gangtegund upp á hærra en 8.5, það hefur skinið af henni gæðingsbragur.   Ætla mætti að Kolka hefði bygginguna frá móður sinni en svo er ekki því hún er ennþá lægra dæmd fyrir byggingu heldur en Íkon, en hefur þó 8 fyrir háls og herðar.  Frá er þó sögð myndarhryssa af þeim sem hana þekkja. sem stigast samt ekki vel.  Hún er undan Þorra frá Þúfu sem er alhliða og Feykisdótturinni Feykju frá Hala sem ég hef eftir fyrstu hendi að var mjög klárgeng í gangsetningu, fékk engu að síður 5.5 fyrir skeið, en miðað við hvað tölteinkunn var lág hjá henni grunar manni að hún hafi fengið þessa kommu fyrir klárhestabinding.   Þokkadís móðir hennar var síðan klárhryssa einnig, en Feykir alhliða eins og margir vita.  Og það þarf ekki að taka fram að Orri faðir Þorra er rúmur opinn klárhestur.Jahá, mér þótti svoldið athyglisvert að fara í gegnum ættartréð hjá Kolku..... getur verið að við getum nálgast hið íslenska ræktunartakmark, klárhestinn með skeiði án þess að rækta eingöngu með íslenska ræktunartakmarkinu?   Hvað gerist ef við ætlum að útrýma notkun á klárhestum af því að þeir fá ekki að sjást á stærri mótum nema þá í B-flokki gæðinga og tölti.  Skyldum við nálgast ræktunartakmarkið hraðar..... eða skyldum við fjarlægjast það, sitja uppi með of geng og flókin hross sem henta fáum nema flinkustu reiðmönnum???????  Ég þarf vart að taka það sérstaklega fram að mér hugnast þessi þróun alls ekki.  Hrossarækt er margslungin og flókin og eins og ég sagði hér að ofan þá verða 2+2 sjaldnast 4, stundum kemur bara 1 og svo geturðu fengið 10.  Við megum ekki missa fjölhæfnina úr hrossastofninum og í mínum huga er fjölhæfni eins og ég hef oft sagt.... mismunandi hestar með mismunandi ganglag því sá hestur sem hentar einum hugnast ekki alltaf öðrum. Þrátt fyrir að Kolka væri í þjálfun í vetur, fékk hún líka að auka kyn sitt með hjálp fósturvísaflutninga og það kom lítill laglegur svartstjörnóttur hestur út úr því, og faðirinn er hinn fótlipri Þrumufleygur.  Hrefna pantaði útlitið frá móðurinni og fótaburðinn frá föðurnum og það er aldrei að vita nema sú pöntun hafi verið rétt móttekin, hann er allavega myndarlegur sá litili :)                                                                                                                           Sumarið 2011Síðasta hrossið sem fékk sinn Landsmótsfarmiða frá Álfhólum er frænka hennar Kolku, hún Sólllilja en hún varð sjötta í úrtöku hjá Geysi með 8.54. en Þorri frá Þúfu er afi þeirra beggja.   Mikið af góðum hrossum kepptu um 6 sæti Geysis og baráttan svakalega hörð og hrossin í fjórða til áttunda sæti voru frá 8.53 til 8.55 þannig að maður þurfti að taka á sínum stóra til að höndla spennuna þarna í lokin og ekki auðvelt að vera næstum síðust inná seinni daginn verandi búin að horfa á alla hina fara uppfyrir sig, en ég var með 8.50 fyrri daginn en það er tvöföld úrtaka hjá Geysi.  Ég hefði komið ágætlega út úr því ef það hefði verið einföld úrtaka, því eftir fyrri daginn var Dimmir í sjötta sæti í A-flokk, en ég gerði ógilt í seinna skiptið, því hann hélst ekki á brokki hjá mér og þar með var sá draumur úti.Það er ótrúlega stutt í Landsmót, manni finnst vorið bara vera nýbyrjað og það er að detta á hásumar og heyskapur að bresta á en fyrstu túnin voru felld hér í dag.....Allt að gerast!</description>
3 x 9,5!!!  - Góð byrjun á Kynbótasýningum 
      <description> Þrumufleygur á hægu tölti í yfirliti! 9 fyrir hægt og 9,5 fyrir Tölt!Þrumufleygur skyrpti vel úr hófunum á Selfosssýningunni á dögunum og uppskar hvorki meir né minna en 3 x 9.5, fyrir Tölt, Brokk og Vilja og geðslag.  Ekki amalegt það, en þó dugar þessi einkunn honum ekki inná Landsmót sem kynbótahesti sem sýnir það svart á hvítu hvað klárhross eiga erfitt með að fóta sig í kerfinu þó að þau séu afbragðsgóð, nema að byggingareinkunn sé í hæstu hæðum.  Ekki það að Þrumufleygur býr klárlega yfir skeiði, sýndi það í uppvexti þar sem hann ferjaði sig oft á milli staða á flugaskeiði og á fyrri árum tamningar.  En það hefur gengið erfiðlega að sýna það á hvítum vikurvelli og því var bara ákveðið að setja fimmta gírinn í salt og leggja upp með aðrar áherslur.En Þrumufleygur er engu að síður kominn með farmiða á Landsmót í B-flokki fyrir Fák og svo herma nýjustu fréttir að Álfhólar verði með Ræktunarbússýningu á ný og svona apparat er nottla ómissandi á þeim vettvangi :)   IS2006184674 Þrumufleygur frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000061211Litur: 2520 Brúnn/milli- stjörnóttRæktandi: Rósa ValdimarsdóttirEigandi: Rósa ValdimarsdóttirF.: IS1999188801 Þóroddur frá ÞóroddsstöðumFf.: IS1987187700 Oddur frá SelfossiFm.: IS1984287011 Hlökk frá LaugarvatniM.: IS1996284669 Þyrnirós frá ÁlfhólumMf.: IS1993184988 Ögri frá HvolsvelliMm.: IS1979284670 Vaka frá ÁlfhólumMál (cm): 141 - 130 - 136 - 63 - 143 - 38 - 47 - 43 - 6,6 - 29,0 - 18,0Hófa mál: V.fr.: 8,7 - V.a.: 8,5Sköpulag: 7,0 - 7,5 - 9,0 - 8,0 - 8,5 - 7,0 - 9,0 - 8,5 = 8,04Hæfileikar: 9,5 - 9,5 - 5,0 - 8,5 - 9,5 - 9,0 - 7,0 = 8,43Aðaleinkunn: 8,27Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,0Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson   Og hér má svo sjá Videó úr forsýningunni.Litla systir Þrumufleygs stóð sig líka svaka vel og næli sér 5 vetra gömul í 3 níur, fyrir tölt, vilja og fegurð í reið, auk þess 9 fyrir hægt tölt.  Hún er í eigu þeirra Húsafellsfélaga, Róberts og Sigurðar sem eiga t.d helminginn í Dívunni.  Má segja að þeir félagar séu þokkalega hestheppnir ;)IS2007284669 Álfarós frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000055986Litur: 3500 Jarpur/milli- einlittRæktandi: Sara ÁstþórsdóttirEigandi: Róbert Veigar Ketel, Sigurður Tryggvi SigurðssonF.: IS2000125300 Bragi frá KópavogiFf.: IS1986186020 Geysir frá GerðumFm.: IS1983210001 Álfadís frá KópavogiM.: IS1996284669 Þyrnirós frá ÁlfhólumMf.: IS1993184988 Ögri frá HvolsvelliMm.: IS1979284670 Vaka frá ÁlfhólumFORSKOÐUNARDÓMURHéraðssýning SelfossiMál (cm): 143 - 138 - 64 - 143 - 27,0 - 17,0Hófa mál: V.fr.: 8,8 - V.a.: 8,0Sköpulag: 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 7,5 - 7,0 = 8,00Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,5 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 7,5 = 8,22Aðaleinkunn: 8,13      Hægt tölt: 9,0      Hægt stökk: 8,0Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson Og önnur Bragadóttir nældi sér í farmiða á Landsmót, en það er hún Eldglóð 5 vetra undan Gásku gömlu.  Hún var seld í fyrrahaust, og hann var ekki minna heppinn eigandinn, Gísli á Geirlandi sem eignaðist þessa stóru og stæðilegu alhliða hryssu. Skemmtilegt dæmi um það að 2+2 verða ekki alltaf 4, en Gáska hefur aldrei átt fimmgangs hross með nýtanlegt skeið fyrr en þessa hryssu.  Bragi var ekki sá vakrasti í bransanum, fór að mig minnir hæst í 7 fyrir skeið.  Annars er þetta 3ja Gáskuafkvæmið sem fer í fyrstu verðlaun, búið að sýna allt undan henni sem tamið er, 6 stykki, hin 3 eru klárhross rétt fyrir neðan áttuna öll með 8.5 fyrir tölt og fegurð í reið svo dæmi sé tekið.IS2007284672 Eldglóð frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000056416Litur: 1610 Rauður/dökk/dr. skjóttRæktandi: Sara ÁstþórsdóttirEigandi: Geirland ehfF.: IS2000125300 Bragi frá KópavogiFf.: IS1986186020 Geysir frá GerðumFm.: IS1983210001 Álfadís frá KópavogiM.: IS1995284672 Gáska frá ÁlfhólumMf.: IS1973135980 Gáski frá HofsstöðumMm.: IS1990284669 Blíða frá ÁlfhólumFORSKOÐUNARDÓMURHéraðssýning SelfossiMál (cm): 145 - 141 - 64 - 147 - 28,0 - 17,5Hófa mál: V.fr.: 8,6 - V.a.: 8,2Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 9,0 - 7,0 - 8,0 - 7,0 = 8,06Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,0 = 8,22Aðaleinkunn: 8,15      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5Sýnandi: Sara Ástþórsdóttir Það var greinilega alveg óvitlaus ákvörðun að nota Braga á sínum tíma, og ég stend í þeirri trú að ég eigi bestu Bragadóttirina eftir þó ég hafi selt tvær góðar.  Sú er sammæðra Dívu undan Dimmu frá Miðfelli og fékk strax nafnið Dimmuborg sem folald, það var eitthvað svo stórkostlegt við hvernig hún bar sig að en því miður fer sú gersemi aldrei undir hnakk en sem betur fer get ég ræktað undan henni þrátt fyrir að hún sé úr mjaðmalið.Það stóð til að Mánasteinn færi í dóm, allavega framan af vetri.  Þegar harðanði undir, fór gamalkunnug helti í afturfæti að gera vart við sig, en hann svaraði beygjuprófi á kjúku á vinstri aftur í fyrra sumar.  Ég barði hausnum samt í steininn og hélt kannski að hann hefði stigið á stein þegar hann kom haltur úr reiðtúr einhverju sinni, og sendi hann í sund meðan hann væri að jafna sig. Kom voða flottur úr þeirri þjálfun og í svaka stuði fyrsta skiptið sem ég lagði á hann, en svo fór allt niðurá við aftur og Guðmar tók á honum beygjupróf sem hann svaraði enn og aftur greinilega.  Þá nennti ég ekki meir og setti hann í saltpækilinn, fór svo með hann í byggingardóm í vor og hann kom bara þokkalega út úr því eins og ég bjóst við eða 8 slétta, hæst 8.5 fyrir samræmi og fætur. Reyndar kom höfuðeinkunnin mér mjög á óvart, hefði frekar búist við 8.5 en 7.5 og útskýringuna slök eyrnastaða get ég ekki með nokkru móti skilið!  Hann er að verða hálfgert olnbogabarn þessi blessaði hestur, sem er alger synd því það er svo mikið í honum og tryppin undan honum líta vel út líka.IS2006184667 Mánasteinn frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000046915Litur: 8600 Vindóttur/mó einlittRæktandi: Sara ÁstþórsdóttirEigandi: Sara ÁstþórsdóttirF.: IS1986186025 Tígur frá ÁlfhólumFf.: IS1979184667 Nátthrafn frá ÁlfhólumFm.: IS1979284670 Vaka frá ÁlfhólumM.: IS1998284673 Móeiður frá ÁlfhólumMf.: IS1989176289 Kjarkur frá EgilsstaðabæMm.: IS1986284671 Móna frá ÁlfhólumMál (cm): 140 - 128 - 136 - 62 - 143 - 39 - 45 - 41 - 6,3 - 30,0 - 18,5Hófa mál: V.fr.: 8,1 - V.a.: 7,6Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 - 7,5 - 7,5 = 8,00Hæfileikar: Aðaleinkunn: Hægt tölt:       Hægt stökk: Sýnandi: Sara ÁstþórsdóttirNýjustu fréttirnar eru að hún Indía Leiknis og Svertudóttir, í eigu Hrefnu Maríu, fór í fyrstu verðlaun núna í seinni vikunni á Hellu, fyrir yfirlit stendur hún með 8.10 í aðaleinkunn.  Hún ætlar að erfa það frá móður sinni, Rósu að vera hestheppin því þær tvær hryssur sem hún hefur ræktað eru báðar komnar í fyrstu verðlaun.Dómur fyrir yfirlit.IS2005284670 Indía frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000061253Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlittRæktandi: Hrefna María ÓmarsdóttirEigandi: Hrefna María ÓmarsdóttirF.: IS1999181675 Leiknir frá VakurstöðumFf.: IS1985157020 Safír frá ViðvíkFm.: IS1988258049 Lyfting frá Ysta-MóiM.: IS1991284671 Sverta frá ÁlfhólumMf.: IS1986186025 Tígur frá ÁlfhólumMm.: IS1981284667 Mugga frá ÁlfhólumMál (cm): 142 - 138 - 64 - 144 - 28,0 - 18,0Hófa mál: V.fr.: 8,5 - V.a.: 7,8Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 = 8,24Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 6,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,0 = 8,01Aðaleinkunn: 8,10Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0Sýnandi: Hrefna María ÓmarsdóttirOg talandi um Rósu, þá stóð efstur í unglingaflokki Fáks á dögunum, hann Íkon frá Hákoti undir stjórn Rakelar Jónsdóttur frænku okkar. Frábært hjá þeim og spennandi að fylgjast með gangi mála hjá þeim á Landsmóti.  Það er að fæðast talsvert af folöldum undan Íkon hérna á Álfhólum þessa dagana og þetta eru allt léttbyggð og reisuleg folöld, gaman að því.  Hef trú á því að þessi hestur sé frábær söluhestafaðir með sitt einstaka geðslag, auðvelda ganglag og rúma, mjúka tölt.Díva fékk sinn Landsmótsmiða á dögunum á Reykjavíkurmeistaramótinu.  Ég var reyndar lítið stolt með þá sýningu, miklir feilar í öllum atriðum og einkuninn eftir því, 7.70 sem er nú heldur lítið á hennar mælikvarða. En það er svona þegar maður stekkur beint út úr fjárhúsinu á miðjum sauðburði og ætlar að gera stóra hluti óæfður og undirbúinn, þá er ekki við miklu að búast þó hrossið sé gott ;)  En við ætlum okkur að standa okkur töluvert betur á stóru mótunum í sumar, það er verið að fara yfir tæknileg atriði og undirbúningur gengur bara vel :)Og svona í lokin af því að ég kom inná sauðburðinn, þá var þetta alger metsauðburður, þurfum að panta 20 merki í viðbót og vorum samt með 20 auka merki miðað við í fyrra, þannig að það komust um það bil 40 lömbum fleira á legg í vor en í fyrra, 280 lömb í stað 240, samt hefur fénu ekki fjölgað meir en kannski um 5-8 stykki (ásetningurinn varð aðeins ríflegur og einhverjar kindur sluppu undan manninum með ljálinn). Gemsarnir voru óvenju frjósamir, báru allir nema 1 (35 af 36) og stór hluti þeirra tvílemdur!  Og eldri skjáturnar skiluðu sér flestar með 2-3 lömb, tvær hafa ekki borið enn, kemur í ljós hvort þær koma með óvæntan glaðning í réttir í haust eða eru geldar.Daddara...... sem sagt allt að gerast þó að lífið á heimasíðunni hafi verið lítið undanfarið :)</description>
Meistaradeildin
      <description>Það var í byrjun október að ég fékk símhringingu frá Sigga Matt og boð um að vera með þeim í liði Ganghesta Málningu, á komandi keppnistímabili í Meistaradeildinni. Þó svo að það hefði alveg blundað í mér löngun til að vera með, verandi með góð hross undir höndum þessi misserin, þá þurfti ég smá umhugsunarfrest til að velta þessu fyrir mér, hvort ég væri að nenna þessu og svo er ekki eins og olían sé ókeypis þessa dagana! En ákvað svo að slá til reyndar með því skilyrði að ég mætti sleppa því að keppa í skeiðgreinunum.Keppnishryssurnar Díva og Sóllilja voru svo teknar inn í byrjun nóvember eftir að hafa verið í fríi frá því í lok júlí og því ekki seinna vænna en að fara að dusta af þeim rykið og senda þær í bootcamp eftir allt hamborgaraátið í mýrinni! Og auðvitað fór ég í bootcamp líka því það er ekki nóg að hrossið sé í góðu formi ef knapinn er það ekki ;)  Ég var nú ekki alls ekki með nein markmið í sambandi við að vinna deildina enda fyrsta skipti sem ég tek þátt, en við einstakar greinar hafði ég sett mér háleit markmið, sérstaklega í töltinu og slaktaumatöltinu sem var þó algerlega óskrifað blað fyrir mig. Gæðingafimin var líka spennandi grein, og ég hafði trú á að ég gæti gert ýmislegt af mér þar.  Fyrir mér var hins vegar fjórgangurinn úrslitamót því ef mér tækist vel upp þar, þá ætti ég kannski raunhæfan möguleika á því að komast í toppbaráttuna, ef ekki, þá væri á mjög brattan að sækja þar sem í skeiðgreinunum er ég langt frá því skarpasti hnífurinn í skúffunni og með algerlega tóman reynslubanka.                                                                                                                 Mynd Valgerður Valmundsdóttir  Fyrsta mótið í röðinni var fjórgangur og þar lá þunginn á Sóllilju. Hún var mjög góð á æfingum og það eina sem þurfti að pússa fyrir mót að manni fannst voru gangskiptingarnar.  Mótinu var svo frestað um viku og ég veit ekki hverju var um að kenna, en hún náði ekki sama flugi á mótinu og hún hafði verið á æfingum og einkuninn uppá 6.5. Þær voru svakalega misjafnar einkunirnar á henni, frá 5.9 sem mörgum fannst nú hreinasti dónaskapur uppí 6.9. Og einkunnir fyrir einstaka gangtegundir, voru t.d frá 6 uppí 8.5 fyrir stökk, flestir í 7,5 og fet frá 4 til 6, þannig að dómarar voru ekki alveg sammála um það hvernig átti að meðhöndla okkur.   En mestu munaði um töltið sem átti að vera nokkuð öruggt, að fyrir bæði hægt og hratt var einkunnin í kringum 6, sem var langt undir hennar getu, enda hefur hún sýnt það og sannað á mótum seinna í vetur að hún getur vel farið yfir 7 í tölti! Þannig að já, fjórgangangskeppnin olli mér vissum vonbrigðum...... en áfram skyldi haldið....... en ekki í hvítu reiðbuxunum, þær voru bara ávísun á "Bad Luck"!!   Næsta mót var gæðingafimi og það var ekki mikill undirbúningstími fyrir það útaf seinkun fjórgangasmótsins. Fyrir fjórganginn þá fannst mér 50/50 hvort ég færi með Dívu eða Sóllilju á í gæðingafimina, þar sem mér fannst full mikið að leggja það á Dívu að koma fram á þremur mótum í röð svona snemma að vetri. Díva er auðvitað mikið meira show hross, en Sóllilja gæti hentað í allskonar krúsidúllureið og slöngulínur og orðin nokkuð sleip í fimiæfingum.                                                                                                Mynd Eiðfaxi En eftir fyrstu æfingu á laugardeginum var ekki aftur snúið..... "ÞÚ BLASTAR ÞAKIÐ AF HÚSINU" sagði Edda Rún við mig og sagðist aldrei hafa lent í því að hafa fengið gæsahúð á æfingu!  En svo kom höfuðverkurinn að setja upp prógramm sem hentar Dívu, það er jú töluvert stressandi að mæta með hross á mót með tvær tíur í farteskinu, var eiginlega auðveldara hérna áður þegar hún var ekki svona hátt dæmd sko! Þannig að ég las mér til um reglur og leiðara og sá að gangtegundir og flæði fleytir manni býsna langt þanng að ég ákvað að stilla hlutum upp þannig að hryssan myndi njóta sín sem best, og ekki vera að flækja hana í miklum æfingum, baugum eða slöngulínum og tapa á því fasi.  Það er ljótt að segja það, en það eru alltaf einhverjir sem bíða eftir mistökum og það að góð hross komi ekki svo góð fram, bara til þess að smjatta á því.  Það var því einkar ánægjulegt að fyrrverandi kennarinn minn frá Hólum hringdi í mig eftir mótið, ánægður með okkur og hvað það væri gaman að sjá hross koma fram og standa við tíurnar sínar, en hlaupa ekki i felur eins og stundum er gert með hross sem fá gríðar háa dóma :)       Það var bara sett eitt markmið fyrir þessa grein.... og það var að hafa gaman :D                                                                                                                               Mynd Gígja Einarsdóttir  En, já við enduðum sem sagt i öðru sæti eftir fágaðri sýningu Artemisar og Korgs, "Girlpower"!   Næst á dagskrá var töltkeppnin, þar átti að gera stóra hluti og því mikið svekkelsi að forkeppnin gekk illa, 7.63 í einkunn þar. Ég var búin að breyta hjá mér beislabúnaðinum í von um betra "touch" en það varð til þess að það varð ekkert "touch" þannig að fyrir úrslit var honum breytt aftur, og allt small saman og óhætt að segja að þar hafi verið nokkur yfirburðarsigur, þar sem Díva klikkti út með 9.5 fyrir yfirferðartölt og endaði í 8.72 í lokaeinkunn, rúmlega heilum hærri en í forkeppninni. Þar með var ég komin í toppbaráttuna í heildarstigasöfnunni á eftir Jakop og Artemisu.                                                                                                  Mynd Gígja Einarsdóttir   Kjempakátar eftir sigurinn í tölti, tja eða ég allavegana, veit ekki um Dívuna ;)    Slaktaumatöltið var svo þriðja mótið okkar Dívu og ég hafði tvær vikur til að beisla orkuna í henni til að ná að stjórna henni án taumsambands.  Og það voru margir sem höfðu ekki mikla trú, tja eða vonuðu að ég gæti ekki sleppt taumnum á þessari fjörbombu án þess að fara á fulla ferð, en í T2 er beðið um tölt á slökum taum frá hægu upp í milliferð. Ég vissi að ég var undir smásjá, var alveg búin að fá að heyra það útundan mér, og því sigldi ég öruggu leiðina í forkeppninni og náði öðru sæti rétt á hæla fyrrverandi Íslandsmeistara, Jakops og Als frá Lundum. Í úrslitum, lét ég svo gamminn geysa, allt að vinna og keppnin gat varla verið meira spennandi því eftir hæga töltið og frjálsu ferðina vorum við Kobbi jöfn. En slaki taumurinn vegur tvöfalt og hann réði úrslitum, þar vann Díva og lokaeinkunn 8.54. Ekki svo slæmt að vinna örugglega fyrsta T2 mótið sem ég á ævinni tek þátt í :) Sem sigurvegari ætti ég ekki að vera að væla neitt yfir dómgæslunni, en mér fannst samt skrítið að ég fékk lægra fyrir hæga töltið í T2 heldur en T1, því tilfinning mín var allt önnur.  Mér fannst hún svo miklu jafnari og betri á hægu í Slaktaumatöltinu.... en já já kannski hafa dómararnir séð eitthvað sem ég ekki fann.... en annars ætti að liggja betur fyrir henni að fá að fara aðeins hraðar á hæga töltinu eins og má í T2, því Díva er stór og löng og eins og einhver sagði á æfingu þegar það var verið að skamma mig fyrir að ríða of hratt á hægu.... "common ef hún fer mikið hægar þá er hún komin niður á fet"        En það er allt önnur saga sem  verður ekki sögð hér...... En hins vegar má alveg segja þá sögu að ég var svo sniðug að halda undir snilldartöltarann Tón frá Melkoti í fyrrasumar og á von á tveimur folöldum!      Stelpurnar sem áttu að taka upp fyrir mig töltúrslitin máttu ekkert vera að því fyrir fagnaðarlátum og það var svoldið mikið um hálfar ferðir, vantaði niðurhæingarnar og svona ýmislegt, en ég reyndi samt að klippa það eitthvað saman.  Annars er hér annað video með öllum hestunum frá Hestafréttum  http://www.youtube.com/watch?v=yLCUNJt_EEE   Og hér er upptaka frá Hestafréttum af úrslitum í T2   Eftir slaktaumatöltið var ég orðin efst í deildinni, en ég hló nú bara að því og sagði að það yrði nú bara í hálftíma eða þangað til að skeiðinu væri lokið. Ég var þó komin með fína meri í hendurnar, Zeldu frá Sörlatungu sem ég þekkti þó lítið nema að ég var búin að komast að því að henni var sérstaklega illa við haglél, sem var ekki alveg nógu sniðugt því úti geysaði stormur með stórhríð og Hagléli!!!!  Ég náði einum sprett en eftir nokkrar stökkskiptingar og hopp og skopp fyrir utan reiðhöllina svo tíminn var dapur.   En aðalkeppinautarnir náðu heldur ekki stigum svo viti menn, ég fékk að vera stigahæst í heilar tvær vikur, ekki bara hálftíma....wúhúú!   Ég hélt áfram að bambast á þessari skeiðhryssu hvað sem verða vildi. Ég gerði nokkrar heiðarlegar tilraunir til að komast hjá því að mæta á skeiðmótið í Ármóti, því það hefði jú verið inní samningum í upphafi að ég hafi ALLS EKKI ætlað að taka þátt í skeiðinu. En ég lét undan, gat ekki verið þekkt fyrir annað fyrst ég var orðin efst í deildinni, varð að þykjast berjast allavega. Ég afréð að gera aðra tilraun með Zeldu og fara með hana í 150 metrana og þ.a.l fyrsta skipti sem ég hleypi út úr boxi (Siggi var reyndar búinn að vara mig við því að Zelda væri inní boxi eins og hún væri í hagléli, svo það hljómaði ekkert sérlega uppörvandi fyrir jómfrúarferðina ;) Fyrri umferð gekk fínt, nema ég fór of pent í hvatningarnar og fékk enga keppni frá hestinum sem var hleypt með. Og svo átti sko að gefa allt í botn í seinni umferð, en hún stóð ekki nógu vel í básnum og stökk út á kusu og þar með var það "game ower".  Munaði samt sorglega litlu að ég næði inn stigum því hesturinn í 9. sæti fór bara tveimur sekúndubrotum hraðar en ég, ellefta sæti varð því niðurstaðan...... En jæja,  nú er ég búin að prófa að hleypa úr boxi og læra hvernig hestur á að standa í boxi,  það er það jákvæða við allt saman..... aldrei að vita nema maður prófi það aftur einhverntíman síðar!      Ég var búin að fara nokkra hringi með val á hesti í gæðingaskeið, en var í lokin komin með þá skoðun að ég færi með Dimmi, enda ætti ég að þekkja hann best. Vandamálið var hins vegar að eftir að hafa verið frábær í janúar og febrúar, þá var hann ekki eins frábær í mars, og það skrifast að hluta á mig og mínar járningartilraunir en nokkrum dögum fyrir mótið set ég hann á orginal járningu og hann fór að verða eins og hann átti að sér að vera....þetta video tekið kvöldið fyrir mótið.... Það böggaði mig samt að hann var jafn reynslulaus í þessari grein og ég.    Siggi var nokkrum sinnum búinn að bjóða mér Birting sinn við litlar undirtektir, því ég vissi að hann var að fara á honum í 150 metrana og vildi ekkert vera að hringla inní því dæmi og fannst það ekki við hæfi.  En á mótsstað fór hausinn á mér að snúast í hringi og ég ákvað að prófa gamla snillinginn sem gekk bara svona voða fínt, og ákvað því að leyfa Jarpi mínum að bíða bara inní húsi.  En gamli var nú ekki lengi að fatta að meistari Sigurður var ekki lengur við stjórnvölinn og tók góðan snúning á mér, svo við riðum ekki feitum hesti frá þeirri keppni. Og til að toppa daginn, lagði ég á Dimmi eftir mótið uppí Ármóti, lagði hann upp afleggjarann þar og hann nottla eins og hugur minn..... ég ætla ekki að hafa eftir hvað ég blótaði sjálfri mér mikið eftir hringlandaháttinn í mér!      Rétt áður en Birtingurinn ákvað að leika á mig ;)   Fyrir lokamótið, fimmganginn fékk ég lánaðan reiðhestinn hans Ragga Hinriks, Völ frá Árbæ rétt fyrir mót. Loðinn og krúttlegur innan um alla "spikk and span" graddana skilaði hann sínu með sóma fékk 6.50 í einkunn sem væri á venjulegu móti hin fínasta einkunn og í fyrra hefði dugað í B-úrslit í Meistaradeildinni. En það var öðru nær í ár á þessu firnasterka móti þar sem dramatíkin og spennan réði ríkjum til enda. John tók heldur betur glæsilegan endasprett í deildinni þegar hann vann sig upp úr 10unda sæti í það fyrsta á Konsert frá Ármóti, sem ég á "by the way" glæsilegt folad undan síðan í fyrra :)     Konsert sonurinn. Heildarstigakeppnin í deildinni fór þannig að Misa vann verðskuldaðan og öruggan sigur.Artemisia Bertus  lið Hrímnis 48,5Jakob Svavar Sigurðsson lið Top Reiter / Ármót      41Sigurbjörn Bárðarson Lýsi 36John Kristinn Sigurjónsson Lýsi 35Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning      34      En það að vera í Meistaradeild kallar líka á fjölmiðlathygli og endalaus viðtöl, sérstaklega þegar vel gengur... og þó maður geti á stundum verið málglaður, þá langar manni líka stundum bara til að þegja og getur alveg lent í því að verða algerlega andlaus þegar ætlast er til annars.    Um miðjan marsmánuð fékk ég bæði hressar Eiðfaxa konur og hressan Samúel Örn í heimsókn á fallegum fimmtudegi og málbeinið var alveg sæmilega laust ;)  Sjónvarpsþáttinn má sjá hér:   http://www.ruv.is/sarpurinn/meistaradeild-i-hestaithrottum/21032012 og Eiðfaxann má kaupa útí búð eða í áskrift á netinu.  Það er náttúrulega frábært þegar almennir fjölmiðlar sýna hestasportinu áhuga, Morgunblaðið hefur líka komið að fréttaflutningi frá stærstu mótum vetrarins og bara vonandi að fjölmiðlar haldi áfram að veita þessu eina vinsælasta sporti þjóðarinnar athygli og helst enn meiri.      Montrassgatið sem skottaðist í kringum mig á hólnum í lok sjónvarpsþáttarins er hryssa á fjórða vetur sem ég hef töluverða trú á, Meyja undan Dimmir og Mær Mónudóttur opin og skemmtileg klárhryssa. Hún fékk líka þann heiður að verða forsíðufyrirsætan í Eiðfaxa! Það er búið að vera frábær reynsla að taka þátt í Meistaradeildinni í vetur og hefur ýtt manni verulega út fyrir þægindaramman að keppa í fullt af nýjum greinum sem ég hef hingað til ekki haft nokkurn áhuga á og hefur haldið manni við efnið dimmustu mánuði vetrarins. Ég þakka liðsfélögum mínum kærlega fyrir samveruna í vetur, þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt og gefandi að vinna með ykkur, takk fyrir mig!  </description>
Svellkaldar!
      <description>Veturinn í vetur hefur verið viðburðarríkur og af mörgu af að taka. Það hefur heldur ekki verið auðvelt að hafa eirð í sér og setjast fyrir framan tölvuna og blogga auk þess sem tölvan fór í smá mótþróastuð þegar ég ætlaði að setja hérna inn myndir fyrir nokkru.... en hún virðist hafa jafnað sig á því blessunin svo enga hef ég afsökunina lengur!17. mars mættum við gallvaskar á ísmótið Svellkaldar konur. Sóllilja fór þar með í sína fyrstu töltkeppni og við fengum 7.23 í forkeppni.  Úrslitin voru aðeins daprari, en ég kenni tilraunastarfsemi minni algerlega um það, því ég ákvað að skera undan henni botnana sem hún var með í hléinu og það gekk erfiðlega að finna réttan takt fyrst eftir það, en við enduðum í fimmta sæti og bara vel ásættanlegur árangur það á fyrsta töltmótinu.Rósa mætti til leiks á nýrri litfagri hryssu frá Hrefnu og Jonna, Dís frá Jaðri. Dís er undan Þrist frá Feti. Þær komust inn í B-úrslit og gerðu sér lítið fyrir og unnu þau með meistarabrag, en þreytan farin að segja aðeins til sín í A-úrslitum og þær enduðu því í 6 sæti. Glæsilegt það!  Aðstoðartamingarkonurnar mínar þreyttu frumraun sína á svellinu og Andrea náði 5.sæti á hryssunni sinni Kátínu frá Grímsstöðum og Verena 6.sæti á Hjaltalín frá Reykjavík í sínum flokki.Hrefna María og Hugleikur frá Fossi, góður hestur sem Hrefna hefur nýlega fengið í sölumeðferð fengu ágætis einkunn 6,30 en það dugði þó ekki í úrslit.Það verður kannski eins og að bera í bakkafullan lækinn að tala um meistaradeildina sem hefur verið mikill tímaþjófur í vetur, en það verður samt gert á næstunni :)   </description>
Ármótstíðindi - Þyrnirós að skila
      <description>Það var einn daginn í febrúar mánuði að Hrefna María skrapp í heimsókn til síns heitt elskaða í Ármót og fór yfir stöðuna hjá honum og hrossunum. Enda gengur það ekki til lengdar að leyfa honum leika lausum hala þar niðurfrá án þess að Bossinn (Hrefna María) viti hvað er í gangi og hafi stjórn á hlutunum. Staðan á hrossunum hjá honum var góð enda nú ekki við öðru að búast. John Kristinn er afar flinkur tamningamaður og þjálfari. Þolinmóður, næmur og flinkur, laðar það besta fram í trippunum á þeirra forsendum, ríður þeim fram með léttleika og lipurð.  Álfarós frá Álfhólum er ung hryssa á 5 vetur. Hún er undan Þyrnirós frá Álfhólum og Braga frá Kópavogi. Álfarós er því hálfsystir Þrumufleygs. John tamdi hana í fyrra og var hún komin nokkuð langt í tamningu en tekin sú ákvörðun að leyfa henni að þroskast aðeins meira áður en farið væri með hana í dóm. John byrjaði svo með hana núna í Janúar aftur. Hún er svo sannarlega að blómstra þessa dagana og heyrðist í Johnna í gær að hryssan væri "alveg svakaleg" meira segja í þessu drullufæri sem búið er að vera. Hún er mjög rúm og afar hreingeng og mikið fas og rými. Frábært tölt og mikið brokk, örugglega alhliða hryssa.    Hrefna hafði orð á því að myndirnar náðu ekki að fanga fasinu nægilega vel og að hún lúkkaði betur "live" en á myndum. "Hún er bara ótrúlega líka Þrumufleyg, með þetta svakalega mjúka tölt, rými og vilja og svona flengi rúm á brokki" sagði Hrefna. Álfarós er í eigu Róberts og Sigurðar Húsafellshesta félaga og ekki fyrsti gæðingurinn sem þeir pikka út úr stóðinu á Álfhólum!John er núna með 3 hálfsystkyni í tamningu öll undan Þyrnirós. Þau Þrumufleyg, Álfarós og svo er hann með einn fola á 4 vetur, Þrumu-Þór, sem er undan Leikni frá Vakurstöðum. Þrumu-Þór var gerður reiðfær fyrir áramót þegar þessi mynd var tekin og var sérlegur aðstoðamaður Johns fengin í verkið að sýna okkur hann. Enda er John búin að læra taktana vel af Hafliða, að hann þurfi sko að standa með gestum og lýsa nákvæmlega hvað ber fyrir augu auðvitað með miklum tilþrifum! Kári Steins er flinkur tamningamaður sem starfar með John Kristni á Ármóti. Tíminn verður að leiða það í ljós hvernig hestur Þrumu-Þór verður en hann er stór og þroskamikill hestur sem er núna í gangsetningu og gengur ágætlega, þó svo að á tímabili í Janúar hafi hann fengið viðurnefnið "Stjörnukíkir" , það nafn hefu þó núna rjátlast af honum enda John ekki þekktur fyrir að hafa hrossin sín eins og endur á oddaflugi !  :) </description>
Landsmótsbreytingar
      <description>Held að það fari ekki framhjá neinum í hestaheiminum þessar heitu umræður um kynbótasýningarfyrirkomulag á landsmótum, sem mörgum finnst illa ígrundaðar þó það megi sjá jákvæða punkta í þeim.Núningur innan stéttarinnar er ekki hestaheiminum hérna til framdráttar, en stundum finnst manni ekki alveg nógu góð tengsl milli þeirra sem ráða og þeirra sem vinna á akrinum.  Og þó maður mæti á fundi, og tjái sig þar, þá er ekki alltaf haft rétt eftir manni eða orðin mistúlkuð.... en það er önnur saga.Ég var spurð útí þessa hringvallarreið af hestafréttum fyrir nokkru og ég ætla ekkert að útlista það aftur hér en ummæli mín má lesa hérna.Ráðunautur hefur miklar áhyggjur af því að hrossin okkar séu ekki nógu góð til að vera á hringvelli eða illa tamin eða þjálfuð.  Knapar hafa aftur á móti meiri áhyggjur af framkvæmd dóma, að ekkert fari fram hjá dómurum, af því að einungis 8 ferðir voru riðnar í forsýningu og ekki ólíklegt að eitthvað fari úrskeiðis, því þrátt fyrir að hrossin okkar séu vel tamin og þjálfuð, þá erum við með lifandi dýr og það getur alltaf eitthvað komið uppá.  Ekki er ólíklegt að óánægjuraddirnar með hringvallarreiðina á yfirliti séu enn hærri einmitt af því að það er búið að klippa af ferðunum.  Sumir segja að 8 ferðir séu nóg af því að Spuni gat farið 8 ferðir og fengið topp einkunn..... ok, það tókst vel til en það eru ekki öll hross eins góð og Spuni og ekki allir sýnendur jafn reynslumiklir og Þórður Þorgeirs. Væntanlega viljum við hafa breidd í knapaflórunni sem sýnir kynbótahrossin, ekki bara að taumurinn sé réttur örfáum knöpum á brautarenda.  Ég horfði á mikla fagmenn fara mislukkaðar ferðir í forsýningu á síðasta landsmóti, oftar en einu sinni og oftar en tvisar og ef einungis 8 ferðir hefðu verið farnar, hefði hrossið komið inná yfirlit með dapran hæfileikadóm.Ef að fagráð hefði ekki alveg farið offari í þessum breytingum sínum, hefði kannski ekki orðið meiri sátt?   Ef þeir hefðu haldið ferðunum í forsýninunni í 10 ferðum og einungis gert breytingar á yfirlitssýningunni?   Það er nú auðvitað svo að menn reyna að ná öllu sem hægt er í forsýningu og ekki að treysta á hækkanir á yfirliti.  En til þess þarf líka að hafa aukaferðir fyrir þær sem klikka, það er ekkert sem má klikka ef riðnar eru bara 8 ferðir, og ég vil árétta það enn og aftur, sama hvað hross eru vel tamin og þjálfuð, þá geta alltaf orðið mistök.Það versta í þessu er að það er ekkert víst að það sé nokkur tímasparnaður sem felst í þessu nýja fyrirkomulagi yfirlitssýningarinnar.   Það tekur tíma að fara 3 hringi og tvær ferðir á beinu brautinni, það er í raun búið að fjölga ferðum á yfirliti úr 6 í 8 ef við tölum um eina langhlið sem eina ferð. Svo þess fyrir utan er hellings úttekt úr hrossi að ríða í afköstum 3 hringi og eiga svo orku eftir í að sýna afköst á beinu brautinni.  Vil minna á að það er bannað samkvæmt lögum að ríða 4 vetra hrossum á hringvelli í keppni, þannig að þetta skýtur skökku við!Ég er búin að vera að hugsa þetta aðeins eftir að þetta kom upp, og er komin á þá niðurstöðu að ef forsvarsmenn vilja endilega breyta formi yfirlitssýninga, þá verði forsýningin að fá að halda sér eins og hún er, 10 ferðir, það verður ekki sátt um annað held ég.   Og yfirlitið yrði 2 hringir á hringvelli í stað þriggja og tvær ferðir á beinu brautinni, og knöpum væri í sjálfsval sett hvort þeir byrjuðu eða enduðu sýninguna á hringvellinum en hollið verður að vera samtaka í því.  Ég er ekki á því að það eigi að vera opið inná hringvöll og menn geti farið þangað ef þeir vilja einhversstaðar í sýningunni, það gengur ekki upp að það sé riðið bæði á hringvelli og beinu brautinni í einu, því þá geta knapar verið að ríða á móti hvor öðrum.  Yfirltssýningin myndi klárlega styttast eitthvað við þetta frá núverandi fyrirkomulagi, forsýningin heldur sér, og ég sé ekki stóra vandamálið í því hvort 7 v hryssur byrji á sunnudegi eða mánudagsmorgni.  Forsýningar eiga að fá að taka sinn tíma, en rennslið þarf að vera gott frá fimmtudegi til sunnudags þegar flestir eru í brekkunni, hvort sem það yrði með betra utanumhaldi núverandi fyrirkomulags t.d með takmörkun á fetreið, ákvörðun í hvaða ferð það megi vera riðið og stjórnanda við hvorn brautarenda sem passar uppá flæðið, eða ef að menn vilja brydda uppá einhverju nýju.  Það verður þá að passa að nýungarnar verði til batnaðar og hugsa þær til enda.</description>
Nýir eigendur 
      <description>Nýja árið tekur á móti okkur með rysjóttu veðri, en afar fallegum dögum inná milli.  Árið 2011 hefur verið viðburðarríkt en að fara að gera það sérstaklega upp er að bera í bakkafullann lækinn því flestum stórviðburðum hafa verið gerð góð skil í fyrri fréttum.   Salan var ekkert til að hrópa húrra fyrir framan af ári en þó var að fara eitt og eitt hross fram á sumar.  En þegar haustaði hljóp heilmikið líf í hana og mörg hross skiptu um eigendur og hér eru nokkur dæmi:        Xenia og móðir hennar Dr. Anja eignuðust Vöku hennar Hrefnu Maríu núna í haust. Þær mægður hafa verið í sambandi við okkur og gengur vel með Vöku í útlandinu sem er alltaf gaman að heyra.     Hér er video af Vöku og Hrefnu síðan á Ístölti 2011              Kraftur frá Strönd skipti líka um eigendur og er á leið til Swiss núna í vetur. Hann verður þó framan af í þjálfun þangað til hann fer út.        Hinn stóri og myndarlegi Solandus er kominn út til Slóveníu.  Solandus er albróðir bleikblesóttu Sóllilju. Traustur og góður fjóragangari. Hér er skemmtilegt video af honum á youtube.      Sóldís var að lenda í Swiss núna í vikunni ásamt Hilmi frá Álfhólum sem því miður engin mynd er til af. Góð reiðhross sem eflaust eiga eftir að gleðja hina nýju eigendur mikið enda með eindæmum elskuleg og góð hross.        Kathy góð vinkona okkar frá Þýskalandi féll fyrir frábærri hryssu hjá vinum okkar í Ármóti. Ása frá Ármóti er hrikalega efnileg alhliða hryssa sem eflaust á eftir að vera mjög sterk í sportinu í framtíðinni. Hún er alsystir Ás frá Ármóti. Hér er mynd af henni og Ásu og John.         ...og hér er nýr eigandi kominn á bak. Ása fer utan núna í febrúar.        Og Katharina vinkona Kathy fann sína draumahryssu í hesthúsinu á Álfhólum í sömu ferð, hina léttu og litfögru Litbrá frá Baldursshaga.       Og maður verður víst að týma einu og einu uppáhalds....Eldglóð Gásku og Bragadóttir fer þó ekki lengra en í næstu sýslu, en verður hér fram á vor fram yfir sýningar.       Fyrstu verðlauna hryssan Vaka frá Kanastöðum fór síðsumars.       Víkingssonurinn Nói vakti lukku hjá nýjum eigendum sínum í Þýskalandi, en það fuku nokkrir svona reiðhestar og hryssur hingað og þangað. Yljar manni alltaf um hjartarætur þegar maður fær email og skilaboð frá nýjum eigendum "Er ist ein tolles Pferd!! :)"  ... I love him to death, he is so nice...    Við leggjum okkur í líma við að bjóða aðeins góð, traust, vel tamin hross sem okkur líka vel við sjálfum, til sölu og reynum að finna rétta hestinn handa hverjum. Við teljum það vera grunninn að að góðu orðspori.  Við hikum ekki við að neita að selja, ef okkur finnst áhugasamur kaupandi ekki passa fyrir hestinn sem við bjóðum.  Það er svo mikilvægt þegar mikið er selt í gegnum netið að það ríki fullkomið traust og það sé ekki stokkið á hverja einustu sölu sem kemur upp, án þess að spá í hvort hrossið komi til með að henta viðkomandi.   En það kemur hestur í hests stað og hérna fyrir neðan eru nokkur dæmi um hross sem eru á sölu hjá okkur...       Ketill frá Vakurstöðum, frábær fjórgangari og töltari sem hentar öllum. Mikið unninn hestur með einstakt geðslag og farsælan ferill í keppni að baki. Meira um Ketil HÉR.        Einn af Söru uppáhalds, Gaukur frá Strandarbakka, klárlega efni í alvöru fimmgangshest.  Video HÉR og HÉR       Stormur frá Kanastöðum, traustur, risastór og skreffallegur alhliða hestur, Eðlistöltari. Meira um Storm  HÉR   Svo fyrir þá sem vilja komast hratt á tölti í framtíðinni er hér ein undan Asa frá Kálfholti, hryssa á sjötta vetur, Lind frá Baldurshaga.  Video HÉR  tekið eftir 3 vikna vetrarþjálfun en hún var þá búin að vera í fríi frá því í Júlí með tilheyrandi aukakílóum.  Var fyrst tamin í fyrravetur og á mikið inni.  Allar upplýsingar alfholar@alfholar.is </description>
Gleðileg Jól  -   Holiday Greetings
      <description>Kæru vinir nær og fjær!Eigið yndislega jólahátið og megi nýja árið færa ykkur gleði, gæfu og góða heilsu. Þökkum samveru og góðar stundir á liðnu ári. Hittumst heil á því nýja!Jólakveðja frá okkur öllum á Álfhólum!Dear friends, Merry Christmas to you all near and far. Wishing you good times, good cheer and a happy new year!Holiday greetings from everyone at Álfhólar!</description>
Meiri snjó, meiri snjó....
      <description>        Var að vafra á netinu um daginn, og fannst ekki vera neinar fréttir neins staðar..... gleymdi alveg að líta í eigin barm enda kominn mánuður síðan eitthvað kom hérna inn!   Eftir rigningarsamt en hlýtt haust skipaðist skjótt veður í lofti.  Svo fljótt að það munaði minnstu að ég missti af flugvélinni 25 nóvember til Þýskalands þar sem ég var boðuð með námskeið, vegna þess að ég þurfti að keyra undir löglegum hraða á Reykjanesbrautinni vegna hálku!  Alveg með eindæmum hvað maður lætur veturinn alltaf koma sér á óvart þótt það sé langt liðið á hann ;)   En vá, loksins fylgdi skemmtilegt útreiðarfæri vetrinum.  Það hefur nefnilega oft verið svo að hér hefur bara fryst á auða jörð og allt gaddfreðið og útreiðarfærið núll spennandi!       Það er verst ef að það hvellspringur á hrossunum hjá manni þegar það þiðnar!  Annars erum við frekar mikið að nota reiðhöllina þrátt fyrir færið, en það er gaman að láta skyrpa úr hófum á mjúkum snjónum annað slagið.  Allavega leiðiðst  Sóllilju  það ekki og mér leiðist það enn minna að ástarfundur hennar og ónefnds stóðhests hafi ekki gengið upp í sumar enda bara gaman að hafa þessa kátu pæju undir hnakk :)         Ég ætlaði líka að taka ægilega myndasyrpu af Mánastein nýjárnuðum... svona áður en hann yrði enn og aftur haltur á einhverri löpp...... en það gleymdist víst að kenna myndatökumanninum á myndavélina, svo hann missti af öllum bestu mómentunum.  Hann fékk svo að heyra það eftir á að maður heldur takkanum inni, en ýtir ekki á við hverja mynd, þetta er sko vél sem á að taka 8 ramma á sekúndu en ekki bara einn!!! ;)   En kappinn hangir enn á löppunum og bætir sig vonandi bara fram að næstu myndatöku.  Hann er búinn að vera hálfgerð óheillakráka þessi hestur, slasaður á framlöpp á fjórða vetur, hóstandi langt fram eftir vetri í fyrra, og svo loksins þegar hann hætti að hósta fór hann að fá dularfulla helti í afturfót sem ekki fannst nein skýring á, nema við komumst að því að hann svaraði beygjuprófi á kjúku.  En hann á langt í land með rétt rúma 4 mánuði í tamningu þegar allt er talið og kominn á sjötta vetur :/       Það var aðeins grænna úti í Þýskalandi síðustu helgina í Nóvember þar sem ég dvaldi í boði Kathrin Kasper sem keypti hann Andvara Eldvakason fyrir einu ári síðan.  Þar var ég með helgarnámskeið fyrir ca 10 manns, ágætis tilbreyting :)       En þessi snemmbúni vetur hefur sína ókosti, því aldrei hefur þurft að byrja að gefa hrossum eins snemma.  Systurnar Gáta og Gæska passa vel uppá hvor aðra í stóðinu.  Það er reyndar búið að skilja þær að núna því Gáta er komin inná hús en Gæska er fylfull við Kraft frá Strönd.  Hún kom geld heim frá hesti í haust, og það var örþrifaráð þegar langt var liðið á september að halda henni og Kraftur sá hestur sem var ekki náskyldur henni og var innan seilingar.   Hvort það er gáfulegt að starta 1st verðlauna hryssu svona seint verður bara að koma í ljós.... en mér hefur tekist að rétta af hryssu sem var haldið um miðjan september fyrir fjórum árum en kastaði um miðjan júní í sumar, og hef ég þó ekki alltaf náð henni á folaldagangmáli.    Og svo var ég að dusta rykið af Gauk frá Strandarbakka eftir eins og hálf mánaðar hvíld.  Það voru meiri mistökin hjá eigandanum að setja þennan hest til mín í þjálfun með sölu í huga.... ég tími bara ekkert að selja hann!  Með skemmtiegri fimmgangshestum sem ég hef verið með, hefur hreinar og rúmar gangtegundir, og rífur vel í skeið þó það sé lítið þjálfað, enda hesturinn ekki tamin nema nokkra mánuði.Nú, svo vonar maður að snjórinn fari hvergi og það verði flennifæri frameftir vetri :)</description>
Fjör, Fas og Fótaburður!
      <description>    Það er alveg á hreinu að hápunkturinn hjá Álfhóla "crewinu" í sumar var að taka þátt í ræktunarbússýningunni á Landsmótinu.  Það var ákveðið með frekar stuttum fyrirvara að vera með því okkur hafði ekki hugnast tímasetningin fyrir ræktunarbússýningar, en þær áttu upphaflega að vera um miðjan dag á fimmtudag.  En Maggi Ben fékk því breytt og taldi okkur á að koma og vera með, því hann hafði trú á því að við hefðum fullt erindi.   Þeir sem voru eitthvað svekktir út í mig að hafa ekki mætt með Dívu í töltið á Landsmótinu, þögnuðu alveg, því þeir fengu alveg nóg að sjá af henni og hreint ekki léleg skipti að fá að þeyta henni trekk í trekk eftir beinu brautinni þar sem fasið og frelsið í henni nýtur sín best.  Og Díva fékk nóg að snúast, kom líka fram með föður sínum Arð á Laugardag, sem tók við fyrsta sætinu fyrir fyrstu verðlauna afkvæmahesta.  Það voru sumir hissa á því af hverju ég reið henni ekki í veðlaunaafhendingunni í 7 vetra flokknum.... Mér þótti tvær innkomur sama daginn vera meir en nóg á hrossi sem gefur allt í botn þegar beðið er um.    Þrumufleygur fékk líka heldur betur að snúast og auk yfirlitsýningar á föstudeginum var hann líka í Þóroddshópnum, en hann stóð sig vel og engan bug að sjá á honum þó lagt væri á hann í þriðja sinn á föstudagskvöldið. Hann var eitt af flaggskipum hópsins þó aðeins fimm vetra sé!!       Dimmir tók hraustlega á því á skeiðinu hjá Leó, svona allavega þegar hann skeiðaði, því kallinn átti til að kynda full mikið undir kötlunum ;)         Klárhryssurnar í hópnum. Hans Þór á Indíu, Janus á Gjósku og Hrefna María á Sóllilju.Það var smá hausverkur að finna knapa fyrir sýninguna, en 4 þessara hrossa höfðu varla fengið annan knapa á bak sér nema mig sjálfa.  Tveir vinir Jonna voru til í "geim" og svo var reynt að raða öllu saman eins og best þótti passa.  Þökkum þeim félögum Janusi og Hansa Hvergerðingum kærlega fyrir hjálpina :) :Þær voru kátar Hrefna og Sóllilja ;) "Svona hlýtur Beyoncé að líða eftir hverja tónleika hehehe" kom upp úr Hrefnu eftir laugardagskvöldið. "Þvílíkt kikk að láta 6000 þús mans klappa í takt og hrópa stuðnings orðum að manni!!" Gjóska og Janus stóðu sig vel.Og Hansi fór vel á Leiknisdótturinni Indiu.   Það eru sumir sem segja að það sé lítið að marka svona ræktunarbússýningar, hrossin séu öll yfir viktuð á botnum og 300 gramma hlífum. Það er því gaman að segja frá því að öll hrossin okkar voru á 8 mm skeifum fyrir utan Indiu sem var á léttu fylliefni að auki.  Þyngstu hófhlífarnar voru 200 grömm en allflest voru með 120-155 gramma hlífar.       Þar kepptu 12 frábær ræktunarbú um þann heiður að fá að koma fram á Laugardagssýningunni. Eftir föstudaginn kom í ljós að það voru tvö bú jöfn að stigum og var þeim att saman í einvígi á laugardagskvöldið, en auk Álfhóla voru það Syðri-Gegnishólar sem var valið hrossaræktunarbú 2010. Skeiðgaffallinn hjá þeim á Laugardagskvöldið var vígalegur og urðum við því að lúta í lægra haldi í þessu einvígi.En við vorum engu að síður hæst ánægð með árangurinn og stuðning þeirra sem kusu okkur og veittu okkur þann heiður og gleði að vera með á laugardagskvöldinu.  Löngu síðar er maður að hitta fólk á förnum vegi sem lýsir yfir ánægju sinni með ræktunarbúsýningarnar sem sumum þótti toppurinn á mótinu....ekki leiðinlegt að vera þátttakandi í því :DLæt hér fylgja með nokkur video af stemmingunni.      Skemmtilegt video af bæði Álfhólum og Efri-Gegnishólum á laugardagskvöldið.      Sýningin okkar á föstudaginn.        Sýningin á Laugardaginn.    Takk fyrir okkur þetta var magnað!!   Og svona í lokin er hér video af afkvæmasýningu Arðs frá Brautarholti.Ætli það sé ekki toppurinn á tilverunni að þjóta áfram á fljúgandi tölti án þess að þurfa að halda í tauma, mér finnst það allavega ;)Það má í lokin geta þess að Díva á von á fósturvísafolaldi með áðurnefndum Þrumufleyg sem mun væntlanlega líta dagsins ljós í maí á næsta ári ef allt gengur upp.    Díva sjálf heimsótti Óm frá Kvistum seinnipartinn í ágúst, en það stopp hefur líklega verið of stutt, því það bar engan ávöxt, enda kannski svoldið seint í rassin gripið og kannski má kalla það græðgi að heimta tvö folöld undan sömu merinni á ári.  Hún kom því á hús fyrir viku síðan, eiganda sínum til ánægju og yndisauka og byrjar betur en nokkru sinni fyrr, það er varla að maður þori á bak svo maður skemmi ekki neitt ;)Gjóska er hinsvegar fylfull, líka við Þrumufleyg, verður gaman að sjá og bera saman hálfsystkinin undan þessum jafnöldrum, Dívu og Gjósku. En að setja upp svona sýningu er ekki bara að sitja á hrossunum og gott aðstoðarfólk er gulls ígildi. (Skrifað af Hrefnu Maríu).Þó við vorum einungis með 6 hross og 6 knapa þá er heilmikið umfang að koma öllu af stað og hafa allt klárt á réttum tíma, finna reiðtygi og hafa búningana klára. Strákarnir voru nú ekkert yfirsig ánægðir þegar þeir sáu mig (Hrefnu) koma með allt siflurskrautið og byrjaði að festa það allt á jakkana og ekki má gleyma silfurglans bindinu!!! Sagði þeim bara að finna Diskó-Pallann í sér því þetta væri sko Gordjöss!! ... Þeir voru nú ekki alveg á þessu en eftir að ég kom þeim öllum í gallann fengu þeir Módjóið aftur...  og held ég í margfölduðu veldi í þessum líka gordjös búningum!!Guðrún Elín ein af hjálparhellunum fékk ekki verra hlutverk en að passa Thunderinn :) Thanx!Þessi sá um að allir væri í góða skapinu og engin "smala/stress" veiki færi um mannskapinn og jú að allir væri stífbónaðir! Thanx Jódís mín ;) Allt komið á fullt. Rakel frænka sér hér um að taglið á Dimmi sé rétt kembt :)Mamma (Rósa) sá um að Janni væri tiptop á Gjósku, taglið verður bara að vera í lagi!Díva... þó þú sért díva færðu bara gamlan, ljótan, gulan múl á hausinn!!! ... hmmm... Sara á ég ekki að gefa þér glimmer múl á hana í Jólagjöf??Mesti tíminn hjá mömmu fór nú reyndar í að dást að Fleygunum sínum :) ... ótrúlega skiljanlegt svo sem. Rakel með Sóllilju... ekkert unglinga vesen á þessari ungu stelpu. Hjálpaði okkur mikið sem og hinar góðu vinnukonurnar okkar í sumar. Takk stelpur Andrea, Nína, Þórunn, Rakel og ekki síst Hjördís sem var hægri hönd Söru á Landsmótinu.  Þær eiga mest allan heiðurinn af videounum og myndum af atriðinu okkar.  Þruman góða!! Mestu rokkarar kvöldsins klárlega ;) Þessi fékk örlítin einkenni "smala veikinnar" jájá bara svona meðan allir vour að fá axlarpúðana sína, bindin, réttu hófhlífarnar, efrimúl, neðrimúl, skáreim.... og hvað ekki hvað... en það þarf nú eitthver að sjá um að allt sé í topp lagi hehehe.. Mamma og Jódís tilbúnar í geimið .... og við líka ;)))Hópurinn komin á bak og reddí að rokka !! -Álfhólar, Hrefna María out-</description>
Létt yfirlit ársins 2011
      <description>Var í gamni að flétta upp í World Feng og skoða árangur okkar þetta árið.  Verð að viðurkenna að ég spái yfirleitt lítið í einkunnir fyrir þetta hitt, heldur reyni að gera mitt besta í það og það skiptið.Fannst t.d frekar fyndið í vor þegar vinur minn hringdi í mig og sagði mér að ég mætti sko alls ekki sýna hryssuna sem ég var að fara að sýna, ég væri með svo hátt meðaltal á sýndum hrossum. Hann vissi nefnilega að ég hafði sagt að hún væri ekki tilbúin og færi ekki í fyrstu verðlaun þetta skiptið. Ég hló bara og sagðist ekkert vera að spá í því og sýndi hryssuna í sína 7.80 :)   Reyndar komst ég samt á lista, 3-4 sæti, í vor yfir þá knapa sem höfðu hæsta meðaltalið yfir sýnd hross, getum sagt að þar hafi verið gæði umfram magn, því hrossin voru ekki nema 7, annars er gömul frétt um þetta hér   http://eidfaxi.is/frettir/2011/06/mette-med-haesta-medaltal-thordur-med-flest-hrossÉg komst líka að því í þessari stuttu rannsókn að ég er ekki nema hálfdrættingur á við Hrefnu Maríu, en meðaltal hennar í kynbótasýningum ársins er tæplega 8.21.  Hún sýndi 3 hross Kolku frá Hákoti, Eirvör frá Hamrahóli og Grím frá Vakurstöðum, tvö alhliða hross og eitt klárhross.Rúmlega 8.05 var hinsvegar meðaltal hjá mér á 8 sýndum hrossum sumarsins, en hlutfall klárhestana var hærra eða 5 á móti 3 alhliðahrossum. Svo fór ég að skoða hrossin frá Álfhólum og komst að því að það eru 11 hross sýnd á árinu með 8.01 í meðaleinkunn.  Tólfta hrossið Frumraun einnig skráð frá Álfhólum en er ræktuð af og í eigu Danna Smára og tilheyrir strangt til tekið ekki ræktun fjölskyldunnar og er því ekki tekin inní þennan útreikning.Meðaltal hæfileika er 8.05, byggingu 7.94.  7 þessara hrossa eru klárhross, 4 með skeiðeinkunn. Af einstökum einkunnum er gaman að nefna að meðaltalið fyrir tölt er 8.68 :)Meðalaldurinn er hins vegar ekki hagstæður í útreikningum og munar þar um 11 vetra gamla hryssu Flugu sem lækkar í dóm, og það gerir reyndar Gáski frá Álfhólum líka, 8 vetra gamall, en þessi hross eru fyrir löngu komin úr okkar eigu. Meðalaldurinn sýndra hrossa er því nokkuð hár, 6.90.Svo maður haldi áfram að leika sér að tölum og tökum þau hross út sem við höfðum með að gera, þá voru það 8 hross og meðaltalið tæplega 8.10 í Aðaleinkunn, meðalaldurinn kominn niður í 6.25 og þar af eru 5 klárhross og 3 með skeiðeinkunn. Hæfileikaeinkuninn tæplega 8.14 og bygging 8.03.  Dimmir hafði ekki farið í dóm síðan fimm vetra gamall þar til í sumar, en hann hækkar töluvert nú 8 vetra gamall, endar í 8.29 og með 8.57 fyrir hæfileika og er þ.a.l með hæstu hæfileikaeinkunn búsins og er annað hæst dæmda hross frá Álfhólum þó byggingareinkunn hjálpi lítið til við það.Díva hálfsystir hans er hæst dæmda hrossið, en aðaleinkunn hennar var 8.33 og þar munaði um tíutvennuna fyrir tölt og vilja, 8.54 fyrir hæfileika. Klárhryssan Gjóska hækkar og fær 8 í einkunn, 8.05 fyrir hæfileika.Sóllilja 6 vetra klárhryssa sýnd í fyrsta skipti með 8.15, 8.14 fyrir hæfileika.Gæska 6v klárhryssa sýnd í fyrsta skipti vetra með 8.00Indía 6 vetra  sýnd í fyrsta skipti 7.92Þrumufleygur er 5 vetra hækkar dóm sinn frá því fjögurra vetra töluvert og hefur þriðju hæstu aðaleinkuninna 8.27, 8.42 fyrir hæfileikaKlárhryssan Gáta 5 vetra sýnd sína fyrstu ferð í 7.80Þetta eru ekki hávísindalegir úteikningar en það getur verið gaman að spá í þetta. Kannski eru einhverjar vitleysur í þessum útreikningi, því talnagreind er greind sem mér var ekki gefið sérlega mikið af ;)Já og vindótta folaldið efst á síðunni, er "wannabe star" undan Þrumufleyg og Móey Eldjárnsdóttur, hestfolald.</description>
Hámarks hagnaður hlutabréfa!
      <description>Smásaga um Rósu hestheppnu og hrossakaupin hennar. Kona sem hefur aldrei tapað á hestakaupum! Skrifað af Hrefnu Maríu.    Það var einn sumardag að við sátum inn í kaffi í Álfhólum, farið var yfir stöðuna í hrossamálum, spáð og spekúlerað í stóðhestum og hryssum eins og gengur og gerist meðal hestamanna á þessum tíma ársins. Íkon hennar mömmu (Rósa Valdimars, móðir systir Söru) barst þá í tal og var mamma með það á hreinu að hann væri besti hestur á Íslandi... hún lét dæluna ganga um að þetta væri sko mesti og besti gæðingur sem hún hafi nokkurn tíman komið á bak, rýmið og gangtegundirnar væru bara engu líkar og í ofan á lagt væri hann traustasti hestur sem hún færi á bak. Geðslagið frábært. Þegar kellingin byrjar á þessu mali sínu um hestinn sinn eigum við bara til að loka eyrunum og nennum ekkert að spá í þessu rausi henni meir.  Mamma endar svo á því að spyrja Leó Geir sem sat þarna yfir kaffibolla með okkur, "Andskotinn Leó  ég verð að eignast annað svona hross! Er ekki til eitthvað undan honum ?".       Rósa á Íkon sínum, þarna sigurvegarar Firmakeppni Fáks 2011     Leó seldi okkur á sínum tíma hann Íkon þegar hann var aðeins 5 vetra. En Leó og Markús í Hákoti eru góðir vinir og auðvelt að forvitnast um Hákotshrossin í gegnum hann. Þá hrynur í Leó... " hmm Rósa það er til ein brún hryssa undan honum, niður í Þykkvabæ. Hún er 2 vetra og undan góðri hryssu !!  "Ertu í alvörunni að meina þetta?  'Eg get þá athugað þetta fyrir þig"      Þá kviknar í gömlu eitthver neisti og hún segir já athugaðu hvort hún sé föl og svo framvegis.  Svo líður og bíður og þetta mál er hálf gleymt í nokkrar vikur. Þangað til mamma fer að lofa hestinn sinn aftur og fer að spyrja um hryssuna.  Leó segist þá fara í málið að alvöru.     Samið var um verð og við Sara voru hreint og beint lítið hrifnar... "Hvað er kellingin að fara kaupa eitthvað djöf... trippi í kartöflugörðunum óséð á jú ágætispening miðað við aðstæður" ... heyrðist nokkrum sinnum í Söru " Geturu ekki bara keypt eitthvað af mér, þarftu að vera spreða peningunum í einhvern annan?"... og svo í framhaldi hjá mér "Mamma ég nenni ekkert að vera temja eitthvað dót sem þú ert að kaupa, ég hef nóg að trippum að sinna!"    Það leið svo að hausti 2008 að mamma átti að fara gera upp merina, eitthvað dróst það þangað til Leó fór að rukka frúna, þá dreif hún sig út í banka og losaði út nokkur hlutabréf sem hún hafði átt í bönkunum og greiddi merina. Einungis nokkrum dögum síðar hrundi bankakerfið á Íslandi og í staðinn fyrir að eiga innistæðulausan hlutabréfapappír átti hún núna hana KOLKU!    Þann sama dag og mamma greiddi hryssuna hringdi Leó í þá gömlu í vinnuna en hún náði ekki símanum og las inn á símsvarann hjá henni "Rósa þetta er gjöf en ekki sala"!!! ...Kokhraustur var hann en hlýtur að hafa meint að hryssan væri svona gríðarlega góð, en Rósa var ennþá grunlaus um þetta happ að hafa borgað hryssuna með peningum sem annars væru horfnir og hryssan í sjálfu sér gjöf :)     Kolka fékk að ganga heima í heimahögum þar til hún komst á tamningaaldur. Um haustið 2009 dreif ég mig svo niður í Þykkvabæ að sækja hryssuna þegar hún var 3 vetra og átti að byrja í frumtamningu. Gleymi því ekki að ég var svona ´´nett" pirruð að þurfa vera vesenast þetta fyrir hana móður mína að sækja eitthvað helv... trippi sem henni hefði dottið í huga að kaupa... óséð... og enginn hafði trú á fyrir utan hún og Leó.     Þegar ég kom á staðinn hélt Markús í þessa undurfögru skepnu, risastór og gullfalleg biksvört hryssa sem minnti helst á arabískan gæðing. Augun duttu nánast út úr andlitinu á mér "ER ÞETTA HRYSSAN?!"  uhhh " Já takk við tökum þessa, takk!"    Kolka kom úr heimahögunum vel væn, stór og þroskuð. Frumtamningin gekk afar hratt og endaði ég með að hringja í Markús og fullvissa mig um að ég væri með rétt hross og þá hvort hann væri örugglega ekkert búin að eiga við hana. Hún hagaði sér eins og nokkuð tamið hross og tók öllum þáttum tamningarinnar eins og stálpað tamið hross. Nema það var svolítið fyndið að það var eiginlega ekki hægt að hringteyma hana, henni fannst það bara eitthvað fáránlegt að hlaupa svona í hringi og þá var bara ekkert annað í stöðunni heldur að leggja á og skella sér á bak og elta sem henni fannst mun skemmtilegra og sótti strax mikið fram :)    Kolka var afar fljót til og minnist ég þessa að hafa kvótað á facebook eitt kvöldið að ég hafi unnið Landsmót á henni í einum reiðtúrnum á 4 vetur. Sem var náttúrulega slegið fram í gamni en lýsir þó því að hún var einstakt trippi í tamningu og þjálfun.     Stóð til að sýna hana á 4 vetur en hún veiktist á hrossapestinni nokkrum dögum fyrir sýningu og ekkert úr varð. Þannig að núna í vor var hún sýnd í fyrsta sinn í Víðidalnum 5 vetra gömul og fór í frábæran dóm 8,39 fyrir byggingu og 8,50 fyrir hæfileika, aðaleinkunn upp á 8,46.       Ég og Kolka í Vorsýningu í Víðidalnum 2011. Mynd Krissa Auðholtshjáleigu    2 vikum fyrir sýningu var haldinn úttekt á okkur Kolku. Vinkona mín hún Heiða Dís og Jonni fengu heiðurinn... "Hrefna þessi hryssa fer í 8,50, en hún er bara alltof feit!!" já hreinskilna Heiða Dís skafar ekki af hlutunum. Þá fékk ég svona staðfestingu á því að þetta gæti nú farið kannski vel en hvað á ég að gera í fitunni á hryssunni? ... hún er að fara í dóm eftir 2 vikur? Hún þarf nú helst bara að komast í rekstur, ég eyðilegg hana ef ég fer að hossast meira á henni ;/ Brá ég þá á það ráð að hringja í hana Kristbjörgu á Jaðri og skutla hryssunni til hennar, hún er með rekstrar hring sérhannaðan fyrir fitubollur og prinsessur. Fékk hana svo í bæinn og hvíldi í 3 daga og svo beint í sýningu.       Augnakonfektið og Drottninginn Kolka. 8,5 háls, 9,5 bak og lend, 9 samræmi. 8,39 í byggingu. Finnst hún mætti nú alveg fá 9 háls og herðar hóst hóst !!!    Daginn sem ég sýndi var ekki mikið unnið, get viðurkennt það. Ég hafði engan til að hjálpa mér í byggingardóm og því lá ég í símanum í mömmu um að drífa sig heim úr vinnunni og koma með mér í byggingardóm... sem var nú eitt bíó atriði út af fyrir sig. Við mamma saman inn í byggingardóm, drullu stressaðar! Og vorum svo hræddar um að dómararnir myndu ekki finnast hún jafn falleg og okkur ! Þeir sem þekkja mig og mömmu vita að við verðum hálfklikkaðar í stressi svo við vorum örugglega gott skemmtanagildi fyrir dómarana. "Shit mamma helduru að þeim hafi ekki örugglega fundist hún falleg ?" ... kurraði í mér þegar ég labbaði upp í hús með hana....  jújú 8,39 í byggingu og þó fannst mér þeir hefðu alveg getað gefið henni 9 fyrir háls :)    Á Landsmótinu blómstraði hún, þó svo aðstæður væru hrikalegar í fordómi gífurlegt rok og suddi. Þakkaði ég guði fyrir að vera með nokkuð þægt og traust trippi en enginn aðstaða er til að klifra á bak þarna á melunum ef þú þurftir örlítið aðhald.       8,58 í hæfileikum og aðaleinkunn upp á 8,51. Hæst dæmda 5 vetra hryssan á Landsmóti og yfir árið :) Mynd. Jens Einarsson      Þrumufleygur á LM. Eigandi hans er að sjálfsögðu Rósa Valdimarsdóttir.  Mynd: Kolla Gr.     Drottningin Kolka hefur það gott núna út í mýri með vinum sínum.  En Kolka var leidd undir Þrumufleyg frá Álfhólum í sumar og fósturvísirinn var færður yfir í aðra hryssu. Á hún því von á erfingja næsta sumar en hún sjálf verður inni í vetur, væntanlega í drottningar dekri hjá Frú Rósu og til sýnis fyrir gesti og gangandi í Víðidalnum :) Stefnan er jú auðvitað svo tekinn á Landsmót 2012 á heimavelli!    Þetta er ekki í eina skiptið sem hestakaup hafa farið vel hjá frúnni, Sara segir hana ætíð hafa hagnast vel á sér þegar þær hafa haft skipti á hrossum. Sem er hið besta mál enda ekki annað hægt en að hafa kellinguna vel ríðandi.     Eftirmáli    Skrifað af Söru Ástþórsdóttur.    Það má við þetta bæta að Rósa var ekki síður heppin þegar Íkon sjálfur rak á fjörurnar hjá henni, en ég var búin að spotta þennan hest út fyrir vinkonu mína sem vænlegan kandidat í unglinga og ungmennaflokk og þá væntanlega með það í huga að hann yrði geltur.  Hrefna komst á snoðir um þetta, brunaði niður í Kanastaði, prófaði hestinn og gekk frá kaupunum "einn, tveir og bingó", þetta var sko fullkominn hestur fyrir mömmu hennar, en Hrafnar frá Álfhólum,  gamli keppnishesturinn hennar var kominn til ára sinna.   Þetta var árið 2007.  Íkon fékk fáeinar "guggur" til selskaps um sumarið og ég varð að viðurkenna það hvort sem mér líkaði betur eða ver, að folöldin undan honum voru lipur og flott að sjá, og ég síðan hef verið að lauma inn fleirum og fleirum hryssum til hans ;)        "Konni litli" eins og við köllum hann stundum hefur kannski ekki fengið mikla náð fyrir augum kynbótadómara, en er þó með 9 fyrir tölt og hefur farið hátt í töltkeppnum og Rósa verið afar sigursæl á honum, flugrúmur og taktviss, hraðabreytingarnar góðar.     Það vita þó kannski færri að hann fæddist seint í september eða byrjun október, og heilsaðist mjög illa folaldsveturinn, sífellt með drullu og varð hálfgerður vesalingur sem rétt tórði á lífi.  Það er klárt mál að þessi veikindi drógu mjög úr þroska og hann var fremur lítill og ósjálegur framan af aldri.  Hann telst ekki til fótahárra hesta, en er hins vegar að gefa frá sér fótahæð og gott samræmi, sbr Kolku og mörg tryppin undan honum hér myndarleg og ekki að sjá að hann sé heldur að erfa sjö fimmuna fyrir frampartinn mjög sterkt frá sér ;)        Það var ánægjulegt að fá þessa fínu hryssu undan Íkon og Nótt, rígfullorðinni meri sem okkur langaði einmitt í hryssu undan áður en hún færi.        Rósa hélt svo Þyrnirós undir Íkon í fyrra.  Við Hrefna hristum hausinn yfir því í fyrra að vera að spandera svona góðri hryssu undir annarra verðlauna hest, en við steinhöldum kjafti núna ;)        Svo erum við með eina gamla hryssu, Rauðhöttu, í áskrift hjá Íkoni, hún á eiginlega bara falleg folöld með honum. Þessi heitir Rjóður og er veturgamall á myndinni, var seldur folald til Finnlands. Og rauðblesótta hryssan sem er efsta folaldamyndin og hér fyrir neðan Skjóni litli sem hún eignaðist í fyrra :)          Já, litlir ljótir andarungar geta átt fallega svani ;)      Til hamingju með afmælisdaginn Rósa!!!!     </description>
Kindablogg
      <description>Haustið er komið í allri sinni dýrð, já og hefur eiginlega verið alveg dásamlegt framundir þennan tíma.  Eitt af haustverkunum er að smala saman skjátunum og setja litlu fallegu lömbin í "hvíta húsið".   Þau voru reyndar ekkert sérstaklega lítil þetta haustið og meðalviktin af 108 stykkjum sló öll met, 18.7 kíló og gerðin alveg heilum hærri en undanfarin ár, 9.63, fitueinkuninnkannski ekki alveg eins góð, 8.07 en það getur orðið aðeins óhagstætt hlutfallið þarna á milli þegar ekki er um eiginlegan haustbata að ræða, þau koma flest nánast beint af mýrunum og móunum hér en einhver hluti þó búin að koma sér vel fyrir í túni seinni partinnn í ágúst.  Við nennum ekkert að eyða of miklu púðri í þessar rollur með að búa til kál og dekstra þær um of, þær verða bara að vera flottar af náttúrunnar hendi enda er það sérlegt áhugamál mitt þegar á haustinn að þukla læri fram og aftur ;)   Reyndar stóð ég mig ekki alveg nógu vel í hrútaþuklinu núna um daginn vegna tímaleysis og "missti" 3 hrúta sem fóru í E í húsið, hefði nú verið skemmtilegra að láta dæma þá fyrst :/  Sérstaklega af því að það er alltaf að aukast að maður er beðinn um kollótta hrúta, en megin þrorri fjársins er án halda.  Sumir eru þó minna hrifnir af því þegar þeir eru í réttarstörfum hérna og kvarta sáran og skilja ekkert í því að maður skuli ekki vera með höldur á þessu.  Ég svara þá bara á móti, hvernig myndi þér líða við að fæða stórhyrnt mannabarn ;)   En það er alveg gaman að hafa eina og eina stolta hyrnda ær með í hjörðinni til að setja á hana svip.Myndin að ofan er úr myndasafni, og brátt fækkar í mórauðu hjörðinni því Móflekkur gamli skilaði sér ekki af mýri í sumar.  Þannig að það verður að fara að gera ráðstafanir því það er voða auðvelt að týna þessum lit ef maður er ekki annað slagið með mórauðan hrút.Þar sem kindurnar báru heldur seinna í ár en oft áður þá vorum við aðeins hissa á þessum vænleika, en það kom einn með þá skýringu á að við ættum að þakka fyrir að fá þessi fínu eldgos sem gæfu túnunum svona fín "boost" og ættum bara að biðja um eitt á ári.........ehmm veit ekki alveg með það sko, en kannski fáum við eitt enn áður en langt um líður því Katla gamla er eitthvað að hrista sig og reka við þessa dagana, en megi hún samt sem áður sofa sem lengst, allavega ef Eyjafjallajökull er bara sýnishorn af henni, úffffff...Þessi mynd er einmitt tekin við það tilefni þegar Vatnajökull sneri öskutróknum sínum yfir okkur á öðrum eða þriðja degi í vor.Nú, þó að það sé gaman að stunda hrúta og lambaþukl, er það ekki það eina sem á hug manns þessa dagana, því hesthúsið er fullt að vanda, slatti af nýjum trippum í vinnslu og þónokkuð af góðum söluhestum, en það koma fréttir af hestum síðar!  Over and out :)</description>
Liebe Leserinnen und Leser aus Deutschland!
      <description>  Ab sofort gibt es die Neuigkeiten rund um das Gestüt Álfhólar auch in deutscher Sprache. Beiträge aus 2011 sind jetzt dort online. Viel Spaß mit der neuen Seite!</description>
Síðsumarssýningar 2011
      <description>  Síðsumarssýningu lauk á Hellu fyrir viku síðan. Það var varla hægt að segja að við höfum verið stórtæk þar, en við fundum þó fáeinar eftirlegukindur í stóðinu sem voru sýningarhæfar ;)     Gáta Gásku og Þokka Kýrholti dóttir fór í fínan klárhryssudóm, 7.80 í aðaleinkunn. "Þetta var hennar fyrsta ferð" eins og ágætur bóndi að norðan orðaði það þegar klárhryssan hans fór í 7.50 en endaði svo nokkrum misserum síðar í fyrstu verðlaunum!   Gáta fékk 8.5 fyrir tölt, hægt tölt vilja, fegurð í reið, háls og herðar,  bak og lend.Þess má geta að Gáta er að hálfu leiti í eigu hinna hestheppnu Húsafellshesta.IS2006284668 Gáta frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000051645Litur: 1510 Rauður/milli- skjóttRæktandi: Sara ÁstþórsdóttirEigandi: Róbert Veigar Ketel, Sara Ástþórsdóttir, Sigurður Tryggvi SigurðssonF.: IS1997158430 Þokki frá KýrholtiFf.: IS1984163001 Sólon frá Hóli v/DalvíkFm.: IS1986257809 Þörf frá HólumM.: IS1995284672 Gáska frá ÁlfhólumMf.: IS1973135980 Gáski frá HofsstöðumMm.: IS1990284669 Blíða frá ÁlfhólumMál (cm): 138 - 136 - 64 - 147 - 27,5 - 17,0Hófa mál: V.fr.: 8,1 - V.a.: 8,0Sköpulag: 7,0 - 8,5 - 8,5 - 8,0 - 7,0 - 7,0 - 8,5 - 6,0 = 7,86Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 5,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 7,75Aðaleinkunn: 7,80Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 7,5Sýnandi: Sara ÁstþórsdóttirHér er myndband af forsýningunni hennar Gátu.      Saga vinkona sýndi hana Myrkvu sína og hún hækkaði aðeins frá því í fyrra.  Við vinkonurnar vorum samt ekki alveg sáttar við útkomuna og töldum að hún ætti meira inni eftir forsýninguna, ekki síst vegna þess að Saga sýndi mér hryssuna í Víðidal alveg vígalega nokkrum dögum fyrr.  Það var svo úr að Myrkva kom með mér heim að Álfhólum,  og vegna anna hjá Sögu við vinnu og fjölskyldu svona í miðri viku,  ákváðum við að ég myndi fara með hana á yfirlit fyrir hana þar sem hún hækkaði fyrir fegurð í reið og hægt tölt.  Þá vorum við þokkalega sáttar báðar tvær, enda klárhryssan komin með nærri 8.5 á línuna í hæfleikum.  IS2004284670 Myrkva frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000013304Litur: 2500 Brúnn/milli- einlittRæktandi: Sara ÁstþórsdóttirEigandi: Árni Reynir Alfredsson, Saga SteinþórsdóttirF.: IS1998184587 Gustur frá LækjarbakkaFf.: IS1988188239 Gustur frá GrundFm.: IS1989265186 Orka frá BúrfelliM.: IS1986284671 Móna frá ÁlfhólumMf.: IS1979184667 Nátthrafn frá ÁlfhólumMm.: IS1972284671 Silfra frá ÁlfhólumMál (cm): 138 - 135 - 63 - 140 - 27,0 - 17,0Hófa mál: V.fr.: 8,1 - V.a.: 7,9Sköpulag: 7,0 - 7,5 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 7,76Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 5,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 = 7,80Aðaleinkunn: 7,79Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,5Sýnandi: Saga Steinþórsdóttir   Saga er alveg í fluggír með hana Myrkvu og búin að keppa nokkrum sinnum á henni í sumar.  Var meðal annars í A-úrslitum á henni á Suðurlandsmóti á Hellu um daginn í fjórgangi opnum flokki, fjórða sæti ef ég man rétt og skaut gömlum kempum ref fyrir rass ;)  Hún var að sýna sína fyrstu kynbótasýningu í 16 ár núna á Hellu.      En sú sem hlaut hæsta dóminn að þessu sinni af Álfhólahrossunum var hún Indía hennar Hrefnu Maríu. John Kristinn sýndi hana fyrir konuna í 7.92. Indía er dóttir Leiknis frá Vakurstöðum og Svertu frá Álfhólum sem hefur gefið okkur mörg góð hross (Zorró, Trú, Zara, Zonja, Arabía).Hún er opin í ganglagi með mikla útgeislun og mikinn fótaburð. Hún á eflaaust eftir að smella sér yfir áttuna og í 1stu verðlaun á næsta ári með aðeins meiri styrk og þroska og ég veit að Hrefna María stefnir á það með þessa hryssu.Indía er fallega byggð hryssa og hefur hlotið 8,14 í byggingu.  Þessi mynd er tekin á á dómsdegi en eins og sjá má eru hrossin aðeins farin að loðna og verða haustleg.     IS2005284670 Indía frá ÁlfhólumÖrmerki: 352206000061253Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlittRæktandi: Hrefna María ÓmarsdóttirEigandi: Hrefna María ÓmarsdóttirF.: IS1999181675 Leiknir frá VakurstöðumFf.: IS1985157020 Safír frá ViðvíkFm.: IS1988258049 Lyfting frá Ysta-MóiM.: IS1991284671 Sverta frá ÁlfhólumMf.: IS1986186025 Tígur frá ÁlfhólumMm.: IS1981284667 Mugga frá ÁlfhólumMál (cm): 142 - 138 - 65 - 144 - 27,5 - 17,5Hófa mál: V.fr.: 8,9 - V.a.: 8,0Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 7,0 - 8,5 - 8,5 = 8,14Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 6,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 7,5 = 7,76Aðaleinkunn: 7,92Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,0Sýnandi: John Kristinn Sigurjónsson   Hrefnan lét heldur betur til sín taka á síðsumarssýningunni og sýndi Eirvöru frá Hamrahóli, hryssu sem hún hefur þjálfað með hléum frá 4 vetra aldri.  Sú þjálfun skilaði sér heldur betur í dómi, og það sannaði sig og sýndi að það borgar sig að láta þjálfarann sýna hrossið sjálfan ef hann treystir sér í verkefnið og er þokkalega hestfær!  Eirvör fékk hvorki meira né minna en 8.50 fyrir hæfileika, þ.a 9 fyrir tölt og vilja. Aðaleinkunn uppá 8.14 þar sem byggingin dró hana niður, 7.59Eirvör er undan gæðingshryssunni Sabrínu frá Hamrahól og Akk frá Brautarholti.   Hrefna og Eirvör skiluðu hæðsta hæfileika dómi Síðsumarssýninga þetta árið yfir landið. Hrefna er búin að sýna þetta árið 2 hryssur 5 og 6 vetra með yfir 8,50 í hæfileikum og geri aðrir betur :) Eirvör svo tekinn og leidd strax undir hest enda í bullandi látum og fyrir valinu varð frændi hennar Blysfari frá Fremra-Hálsi. Spennandi að sjá útkomuna undan því á næsta ári.   IS2005286613 Eirvör frá HamrahóliÖrmerki: 352098100006497Litur: 3500 Jarpur/milli- einlittRæktandi: Guðjón Tómasson, Valgerður SveinsdóttirEigandi: Guðjón Tómasson, Valgerður SveinsdóttirF.: IS1998137637 Akkur frá BrautarholtiFf.: IS1990157003 Galsi frá SauðárkrókiFm.: IS1988258705 Askja frá MiðsitjuM.: IS1990286021 Sabrína frá HamrahóliMf.: IS1986186021 Helmingur frá HamrahóliMm.: IS1983286406 Kopra frá HamrahóliMál (cm): 139 - 139 - 62 - 143 - 28,5 - 17,5Hófa mál: V.fr.: 8,9 - V.a.: 8,1Sköpulag: 7,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 7,5 - 7,5 - 7,0 - 6,0 = 7,59Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 7,5 - 8,5 - 9,0 - 8,5 - 8,0 = 8,50Aðaleinkunn: 8,14Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,5Sýnandi: Hrefna María Ómarsdóttir   Innilega til hamingju Guðjón og Vala í Hamrahól með hryssuna ykkar.    </description>
Íþróttamót Harðar og Dreyra 2011
      <description>Um helgina var íþróttamót Dreyra og Harðar haldið í Mosfellsbæ á góðum keppnisvelli þeirra Harðarmanna.  Fullt af sterkum hestum skráðum til leiks í öllum flokkum enda síðasta stóra íþróttamót sunnan heiða í bili og alveg 8-9 mánuðir í næsta íþróttamót.  Spurning um að fara að lengja keppnistímabilið?Gjóska átti góðan dag á föstudaginn og fékk 6.93 í forkeppni í fjórgang með heldur sannfærandi sýningu að mér fannst.  Ég ákvað vísvitandi að "gleyma" þyngri hlífunum heima svo ég myndi ekki freistast til að þyngja hana of mikið á mótsstað.  60 gramma "kvartbútts" og átta millimetra skeifur er málið fyrir þessa skvísu, þyngri vikt skapar bara vandræðagang, því eins og sést á þessari mynd þá er ekki mikið rúm fyrir hærri lyftu!Hæga töltið í Gjósku er að verða betra og betra, ég var búin að sprauta hana af stað og ætlaði að halda henni, en ég hugsa að ég sleppi því og taki með henni einn vetur í viðbót, nú loksins þegar merin er komin í eðlileg reiðhestahold og hætt að berjast við fitupúkann sem er búinn að há henni frá því að hún var trippi ;)Skálmandi á brokki í úrslitum.Hóóó.. nóg af "power" í þessariAfar áhugasöm við að týna keppinauta sína uppi á öllum gangtegundum ;)Og þó að hún líti út fyrir að "þokast" (eins og sagt var um ágæta hryssu ;) eftir brautinni á yfirferðinni þá var hún búin að týna uppi tvo keppinauta áður en yfir lauk og samt fannst mér hún vera bara á hálfum snúningi! Það var bara einn galli á gjöf Njarðar....það var full mikið keppnisskap á fetinu fyrir framan dómarana, en slakaði vel á langhliðinni fjær sem dugaði þó ekki til og fet með meðaleinkunn uppá fimm landaði okkur í síðasta sæti í úrslitum, en meðaleinkunn fyrir hina þætti var uppá 7.5, og enduðum aftur með 6.93 út.   Spurning um að fara að sækja reiðkennslu í fetreið ;)Fleiri myndir af Gjósku hérHrefna María er heldur betur búin að hrista uppí stóðhesti sínum Grími frá Vakursstöðum og þau kepptu í B-úrslitum og voru aðeins hársbreidd frá því að vinna sér keppnisrétt í A-úrslitum. Hlutu flotta einkunn í úrslitum 7.00 en 6.77 í forkeppni.   Efnilegur fjórgangari með sterkan grunn, hástígur og fasmikill á brokki.Brúntvístjörnóttur með leist, næstum eins og Fagri-Blakkur, draumaliturinn hennar Hrefnu ;)Svo er spurning hvað henni helst lengi á þessum hesti, því þvert á hið göfuga íslenska ræktunarmakmið, þá eru þessir fjórgangsprammar alveg gríðarlega vinsæl söluvara!  Á meðan eðalfín fimmgangshross enda liggur við á útsölu hjá manni, þá er slegist um fjórgangarana.....skrítið?Fleiri myndir af Grím hérSíðastur í braut á föstudaginn var hann Kraftur frá Strönd, hann er kannski ekki með besta grunnin af fjórgangara að vera....en yfirferðartöltið hjá gæanum....ég fékk næstum gæsahúð í gegnum myndavélalinsuna við að horfa á hann...6.70 í einkunn.Nei það er ekki stertsláttur í Skjóna, hann ber taglið bara svo flott!  Engin furða að þau folöld sem við fengum í sumar sýni ógnar takta á tölti svo eftir því verður tekið.Eins og þessi skjótti sem töltir á slíkri yfirferð líkt og enginn sé morgundagurinn :)  Takið eftir afturfótaskrefinu!Og af því að Kraftur slapp við að mæta í úrslit, þá var ég fljót að nappa honum uppá kerru hjá mér og halda undir hann hryssu sem ég vissi að var í látum um helgina ;)</description>
Meistarar! 
      <description>Harpa Sigríður og Trú frá Álfhólum urðu Íslandsmeistarar í Fjórgangi barna á Íslandsmóti Barna og unglinga í Keflavík á dögunum.  Þær hafa vaxið saman þessar stöllur og flottur endir á ferlinum að landa Íslandsmeistaratitli, því lítill fugl hvíslaði að mér að Trú sé á leiðinni í folaldseign.  Til hamingju með árangurinn, Harpa :)Trú er undan Eldvaka frá Álfhólum sem var undan Andvara frá Ey og Vöku frá Álfhólum, móðirin er Sverta frá Álfhólum undan Tígur frá Álfhólum sem einnig er undan Vöku frá Álfhólum, þannig að þarna er talsverð skyldleikaræktun á bak við.Sömu helgi varð hin sænska Filippa Hellten tvöfaldur Svía meistari á stóðhestinum Rauðskegg frá Brautartungu. Filippa og Rauðskeggur sigruðu bæði fjórgang og slaktaumatölt á sænska Meistarmótinu.  Þau hafa átt mikilli velgengni að fagna alveg frá byrjun en hann var keyptur í gegnum síðuna okkar fyrir tveim árum síðan. Hrefna María byggði Rauðskegg upp í 2 ár og keppti töluvert á honum í Slaktaumatölti og fjórgangi hér heima með góðum árangri áður en hún seldi hann.Við óskum þessum ungu og sannarlega miklu reiðkonum innilega til hamingju með árangur sinn á hrossunum frá okkur. </description>
Skagafjarðarskjóna
      <description>Þannig var mál með vexti að í byrjun Júní kastaði gömul hryssa hjá okkur dauðu folaldi.  Það var greinilegt var að hún tók missinn nærri sér eftir að hafa verið geld árið áður og hafði mikinn áhuga á að stela folaldi frá annari hryssu sem var nýköstuð.  Þá skellti ég inn tilkynningu inná slúðrið á Hestafréttum ef ske skildi að einhver væri í vandræðum með móðurlaust folald, því ég var viss um að sú gamla myndi taka því fagnandi.  Og morgunin eftir fékk ég hringingu frá Móniku á Korná í Skagafirði sem ég er nú kunnug frá því á Hólum í denn og hún var sem sagt með folald sem þeim hafði verið gefið fáeinum dögum fyrr því mamma hennar, Birna, er algert sjení að koma svona móðurleysingjum á legg og Skjóna litla ekki sú fyrsta sem er í fóstri hjá henni.  En eins og þeir vita sem hafa það reynt, er mikil vinna að hugsa um svona kríli og fyrst það var hryssa í boði........... þá voru þau alveg til í að skutla Skjónu litlu suður fyrir heiðar og það vildi svo til að Hrefna María var í Reykjavík, sparaði þeim sporin og hitti þau Móniku, Högna og Birnu í Borgarnesi en Skjóna litla var í aftursætinu í góðu yfirlæti hjá þeim :)Hún kippti sér ekkert upp við þennan langa bíltúr og þótti ekkert sjálfsagðara en að vera ein af fólkinu og það átti eftir að koma í ljós þegar við vorum að setja hana undir að hún hafði mun meiri áhuga á að vera í félagsskap með okkur ;)Það var gott að fá sér sopa þegar loksins var stoppað í Borgarnesi!Og svo var skipt um farartæki........og sú litla var ekki lengi að gera sig heimankomna í skottinu á Crusernum og það var svo brunað niður í Álfhóla og lending þar rétt fyrir miðnætti.  Hrefnu til halds og trausts var Rakel frænka Jónsdóttir.Svo varð spennandi að vita hvort öll fyrirhöfnin myndi vera til einskis og við myndum sitja uppi sjálf með móðurlaust folald.  Gígur gamla var ekki alveg eins hrifin af þessari eins og folaldinu sem hún reyndi að stela kvöldinu áður og það virtist sem móðureðlið væri eitthvað að rjáltlast af henni enda 1 og hálfur sólarhringur frá því hún kastar sínu folaldi þangað tl að Skjóna kemur.  Og Skjóna litla var heldur ekki par hrifin af þessari nýu fóstru sinni og reyndi við öll tækifæri að koma og vera hjá okkur frekar, enda taldi hún sig vera mannabarn en ekki folald lengur ;)En morguninn eftir voru nýju mæðgurnar orðnar nokkuð sáttar hvor við aðra, þótt  Skagafjarðar-Skjóna hafi fagnað mér gríðarlega þegar hún sá mig og elt mig niður á tún en ekki merina þegar ég leiddi þær út í lítið hólf.   En hún áttaði sig fljótlega og þarna er hún orðin þriggja vikna gömul og það er skemmst frá því að segja að hún vill ekkert tala við okkur mannapana lengur ;)Fleiri myndir hérna</description>
English readers
      <description>The English News page has now been updated. News from Landsmót and the Icelandic Sport Championship. Stay tuned, more to come!</description>
Tölt-Tölt-Tölt
      <description>Um helgina fór fram Íslandsmót í Hestaíþróttum í bongóblíðu á Selfossi.   Við Hrefna María tókum þátt og enduðum báðar í A-úrslitum í sitthvorri töltgreininni.       Hrefna var hér áður mjög framarlega í keppni á Rauðskegg sínum í slaktaumatölti, nú er hún búin að dubba upp nýtt hross fyrir þessa grein, hana Indíu Leiknisdóttur frá Álfhólum.  Þær enduðu í sjötta sæti.       Þetta var önnur töltkeppni sumarsins hennar Dívu og við gerðum ágæta ferð þrátt fyrir litla sem enga æfingu á hringvelli þetta sumar þar sem ég ákvað að einblína á kynbótabrautina þetta tímabilið með ágætum árangri eins og áður sagði.       Engu að síður tókst sýningin ágætlega og við fengum 7.9 og eitthvað í forkeppni. 7.93 og í 4-5 sæti var sagt, en vegna villu í útreikningum var ég eitthvað hærri og örugglega í fjórða sæti eftir forkeppni.     Akkelesarhællin hjá okkur í úrslitum var hæga töltið sem var ekki nógu vel útfært en hraðabreytingarnar voru uppá 8.5 og yfirferðin 9 og við fengum 8.39 í úrslitum og 3-4 sæti ásamt Jakobi fyrrverandi skólabróður mínum frá Hólum sem kom á blússi uppúr B-úrslitum.   Kobbi heppni vann svo hlutkestinn og skildi mig eftir í 4 sæti!  En eftir á að hyggja er þetta engu að síður besti árangur hjá okkur Dívu í töltkeppni, því þarna voru samankomnar allar stærstu kanónurnar í töltinu að Tuma undanskildum og hestar sem voru í A-úrsitum á Landsmótinu þurftu að láta sér lynda að vera í B-úrslitum í þetta skiptið.   Skemmtilegt hvað hryssurnar eru að standa sig vel í töltinu þessa dagana en úrsitin voru eftirfarandi:   1. Sigursteinn Sumarliðason og Alfa frá Blesastöðum 1A  9,00.  2. Sigurður Sigurðarson og Kjarnorka frá Kálfholti 8,61 3. Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey 8,39 4. Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum 8,39 5. Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki 8,28 6. Sigurbjörn Bárðarson og Jarl frá Mið-Fossum 8,00   Hérna má sjá öll A-úrslit frá Íslandsmóti:   http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4580426/2011/07/16/       Þar sem ég hef verið aðeins duglegri að uppfæra Smettiskinnuna heldur en heimasíðuna, þá hafa þessi video hér aldrei náð að komast inná heimasíðuna fyrr en nú, en hér má sjá Dívu í forsýningu á Hellu......      ....Og hér er eitt ennþá eldra frá Reiðhallarsýningu í vor þar sem Díva og Kjarnorka komu saman og skemmtu reiðhallargestum :)</description>
Kynbótahross á Landsmóti
      <description>Kolka Íkonsdóttir frá Hákoti og Hrefna María komu langhæstar inná mót í fimm vetra flokknum og það var nokkuð ljóst að þeim þyrfti að mistakast verulega eða önnur hross að bæta töluvert í ef eittvað átti að breytast með toppsætið.En að var ástæðulaust að hafa áhyggjur af þeim stöllum og þær bættu við stóru tölurnar frá því í vor, hækkuðu fegurð í reið uppí 9, og var með fyrir 9 fyrir brokk og vilja fyrir.  Og sigurinn innstimplaður með góðum spretti, 8.58 í hæfileikaeinkunn og 8.51 í aðaleinkunn! Sannarlega glæstur árangur hjá þeim stöllum!Kátar og stoltar mæðgur með Hremsuskjöldinn.  Já, það voru aldeilis happakaup hjá Rósu þegar hún fjárfesti í Kolku 2008, korteri fyrir Bankahrun!Díva var ekki alveg sjálfri sér lík fyrstu dagana eftir að hún kom norður á föstudaginn og vildi liggja meira og minna allan laugardaginn svo mér var ekki alveg farið að lítast á blikuna...En það var þó ekki ástæða til að hafa miklar áhyggjur og hún stóð vel fyrir Tíunni sinni fyrir töltið þó að einhverjar aðrar tölur hafi verið reittar af henni.  Hún var í essinu sínu á yfirlitinu og sýndi töltið sitt í öllum útfærlum og hraða undir dynjandi lófaklappi brekkunnar :) Það þótti kannski sumum skrítið þegar ég skokkaði með Dívu til verðlaunarafhendingar í 7 vetra flokknum þar sem hún varð sjötta í röðinni.  En hún átti eftir að spila stórt hlutverk í tveimur sýningum seinna um daginn og mér þótti það bara einfaldlega of mikið að hnoðast á henni þrisvar sama daginn!Sjarminn Sóllilja lækkaði lítillega frá Hellusýningunni, fékk 9 fyrir tölt og fegurð í reið.Fljúgandi stökk.... hvað skildi hún vera hátt uppi frá jörð, hálfan meter?  Sóllilja hefur fengið 9 fyrir stökk en fékk bara 8.5 á Landsmótinu þó.Þrumufleygur komst ekki á sama flugið og í Hafnarfirði en fékk 9 fyrir tölt og stóð vel fyrir því og.......9 fyrir brokk og hann vakti mikla athygli á yfirlitinu þrátt fyrir að vera ekki í hópi efstu hesta.........og brekkan tók vel við sér þegar hann gekk í sínum stóru og háu skrefum á brokki og tölti eftir brautinni og einhverjir höfðu á orði að þessi hestur hefði alla burði til að fara í 9.5 fyrir tölt og brokk.Því miður var hann eitthvað með sviðskrekk þegar átti að sýna fimmtu gangtegunina fyrir framan dómarana, en á æfingu daginn fyrir yfirlit sýndi hann okkur góðan og töluvert kraftmikinn sprett. Spurning hvort að það sé kannski bara sviðskrekkur í Jonna þegar hann kemur fram fyrir of mikið af fólki ;)En fótahreyfingarnar eru miklar og kannski ekki óeðlilegt að fótaröðunin ruglist aðeins þarna á milli, sérstaklega þegar völlurinn er svona harður eins og hann var á Melunum og sást kannski best þegar úrslitin í A-flokknum voru á sunnudag þegar ansi margir sprettir fóru í vaskinn.   Jonni stóð líka sig vel með Sál frá Ármóti og hún endaði í þriðja sæti í 7 vetra og eldri hryssum.En þó að kynbótasýningarnar væru búnar var "Álfhólhólacrewið" ekki komið í frí og hrossin okkar áttu eftir að spila stóra rullu á föstudagskvöld og laugardaginn og því í nógu að snúast :)   Meira um það síðar!</description>
Tíu tvenna og fleiri góð
      <description>Það þótti sumum brjálaði að fara með hryssu í dóm sem þegar væri komin með tvær níu fimmur, hvað á að sækja meir??? voru meðeigendur mínir spurðir að þegar fréttist að Díva væri skráð í kynbótadóm.  Sem betur fer voru raddirnar í kringum mig mun jákvæðari og ég fékk strax áskoranir eftir sýninguna á Hellu í fyrra að ég yrði að fara með hana aftur og sækja tíuna fyrir töltið.  Get alveg viðurkennt það að það fór um mann glímuskjálfti áður en riðið var í braut, en hugsaði sem svo að hún myndi allavega standa fyrir sínu og líklega hækka fyrir grunngangtegundir sem hún og gerði og fékk 9.5 fyrir tölt og vilja eftir forsýningu eftir smá hnökra í síðustu töltferðinni.Yfirlitið gekk hinsvegar mjög vel og hún marseraði fyrst hrossa í brautinni ferð eftir ferð, spilandi létt og lipur eins og henni er einni lagið og tíurnar lágu flatar fyrir tölt og vija og geðslag! 8.33 í aðaleikunn, 8.54 fyrir hæfileika.  Ætli hún sé þar með ekki með hæstu hæfileikaeinkunn sem klárhross hefur fengið síðan að skalanum var breytt?Svo er stóri höfuðverkurinn.... á að fara í töltið eða kynbótadóm á Landsmóti??? Ef maður nær að halda sama dampi í þjálfuninni og ekkert kemur uppá, ætti ekki að vera nein geimvísindi að láta hana standa undir sínu í kynbótadóm, svo ég viðurkenni alveg að það togar aðeins í........Eftir því sem ég kemst næst er Díva annað hrossið sem nær þeim frábæra árangri að hlotnast þessar 2 dýrmætu tíur í kynbótadóm, bæði fyrir tölt og vilja og geðslag.Dimmir bróðir Dívu fór í góðan dóm og vantaði 1 kommu til að komast inná Landsmót.  Það voru hins vegar ekki hæfileikarnir sem voru þess valdandi því þeir hljóðuðu uppá 8.57, þ.a þrjár níur, fyrir brokk, vilja og fegurð í reið, 8.5 fyrir tölt og stökk, 8 fyrir skeið.Það var nú planið að ríða í hærri skeiðeinkunn, en það kemur bara seinna! Klárhryssan Sóllilja nældi sér í landsmótsfarmiða, fékk 9 fyrir tölt, stökk, vilja, fegurð, og hægt tölt. 9.5 fyrir hægt stökk!   Aðaleinkunn 8.15, 8.16 fyrir byggingu og 8.14 fyrir hæfileika.  Sóllilja er undan Tígursdótturinni og klárhryssunni Sóldögg frá Álfhólum og Berki frá Litlu-Reykjum sem líka var klárhestur, Þorrasonur.  Börkur er sammæðra Þulu frá Litlu-Reykjum sem var eftirtektarverð 1st verðl klárhryssa með 9.5 fyrir hægt tölt.Það er gaman að segja frá því að bleiki liturinn í Sóllilju kemur ekki frá Ófeig frá Flugumýri sem hefur verið hesta öflugastur við að halda álótta litnum á lofti.   Gjóska Höskuldsstaða Hrannarsdóttir og Gásku fékk í aðaleinkunn átta, 9 fyrir tölt, fegurð í reið og hægt tölt, 8.05 fyrir hæfileika og 7.93 fyrir byggingu.Gæska 6 vetra undan Tígur gamla og Gásku stigast vel í byggingu og er með góðan klárhryssuhæfileikadóm, 8.5 fyrir allt nema 8 fyrir stökk og fet. Hún er með 8.23 fyrir byggingu, 7.85 fyrir hæfileika og 8.00 í aðaleinkunn.Gaman að segja frá því að báðar þessar skjóttu hryssur eru gamaldags ættaðar og eiga hvorki Hrafn frá Holtsmúla né Sauðárkrókshross í sínu ættartré og eru því lítið skyldar þeim hrossum sem eru mest áberandi í dag.Sjötta hrossið sem ég sýndi á Hellu var hún Vaka frá Kanastöðum sem er undan Arð frá Brautarholti líkt og Díva.  Þessi hryssa var í léttu sölutrimmi hjá mér í vetur, og ég ákvað með stuttum fyrirvara að snara henni yfir á kynbótavikt og renna henni í gegn.   Það fór bara vel og Vaka kom út með einkuninna 8.04, 8.01 fyrir hæfileika og 8.09 fyrir byggingu. Drífa frá Miðfelli er gríðarstór (148) og gerðarleg hryssa sem kom út með 7.81 í aðaleinkunn.  Þó að hún sé orðin 8 vetra gömul, þá er hún ekki mikið gerð.  Drífa er undan systir Dimmu frá Miðfelli og Flosaættuð í bak og fyrir.Bragadóttirin Eldglóð Gáskudóttir fór í byggingadóm og kom út með einkuninna 8.08.  Viljug og skrefmikil alhliða hryssa, en ekki alveg tilbúin í fullnaðardóm þetta vorið.Get ekki verið annað en sátt með afraksturinn þetta vorið, búin að eignast 3 nýjar 1 verðlauna klárhyssur og Dívan komin í algerlega frábæran hæfileikadóm sem klárhryssa og þokkalega sátt með Dimmirinn þó að ég sé örugglega búin að ríða honum nokkrum sinnum í 8.80 á afleggjaranum heima sko ;)   Var ekkert sérlega brött þegar ég var spurð fyrir rúmum mánuði síðan með hvað ætti að fara í dóm, á kafi í sauðburði, ekkert hross tilbúið, járningarmaðurinn sem ég var búin að finna gufaður upp o.sfr.....En þá er bara að bretta upp ermarnar og járna sjálf, ég á víst að kunna það og flest hrossin 8 og 8.5 fyrir hófa, það má ekki gleymast að það er dýrmætt að hafa hófhirðuna í lagi því einkunn fyrir hófa hefur hátt vægi í byggingardómi.  </description>
Reykjarvíkurmeistaramót
      <description>Reykjavíkurmeistaramótið var haldið um síðustu helgi í blíðskaparveðri, ólíkt því sem var helgina þar á undan þegar allt var á kafi í snjó.  Þó ég hafi ekki hoppað hæð mína í loft upp yfir persónulegum árangri á þessu móti, þá vakti Saga vinkona athygli mína á því hvað það voru mörg hross fá Álfhólum skráð á þetta mót sem er líklega annað sterkasta Íþróttamót ársins með fjöldann allan af skráningum og það er vissulega ánægjulegt fyrir ræktanda að vita til þess að það sé hægt að nota hrossin frá manni í fleira heldur en að ríða fyrir kind ;)Og því má bæta við að það er gleðilegt þegar að hrossin lenda í góðum höndum, hjá metnaðarfullum knöpum sem kappkosta við að gera sitt besta með þau.Ég mætti með Dívu í töltið en það var alveg óhætt að segja, að við vorum ekkert að gera okkar besta miðað við hvernig hún hefur verið undanfarið, en fór þó í einkuninna 7.90 sem væntanlega dugar sem farmiði inná Landsmótið í tölti, tja allavega ef maður tekur mið af einkunnum fyrri ára.  Ég hafði nú reyndar lúmskan grun um að þetta gæti farið svona og svona, því ég var eitthvað að gambla með járninguna á henni stuttu fyrir mót.  Gerði tilraun til að setja hana á botna í lok apríl, en ákvað það fjórum dögum fyrir mót að mér fyndist hún bara mikið betri á gömlu átta millunum sínum, en það var full skammur tími uppá að hlaupa og jafnvægið raskaðist, eðlilega.  Þessi mynd er tekin um miðjan apríl, áður en ég fór út í tilraunastarfsemina ;)   Ég var ekkert að þvæla henni í B-úrslitin enda var sauðburður komin á trilljón hérna í sveitinni og í nógu að snúast!Frumraun Sóllilju í fjórgang skilaði henni í meistaraflokks einkunn 6.37 en dugði ekki í úrslit. Sóllilja er undan Sóldögg og Berki frá Litlu-Reykjum.                                                                                                                    Mynd Þórunn ÞöllGjóska fékk fínar einkunnir í fjórgang fyrir allt nema fet, var dáldið heit á brautinni, kom út í einkunn 6.40. Þetta var líka fyrsta skiptið sem hún keppir í fjórgang.  Gjóska er undan Gásku og Hrannari frá Höskuldsstöðum.Það var glæsilegt "Comeback" hjá Sögu vinkonu eftir 6 ára keppnishlé á hryssunni sinni henni Myrkvu frá Álfhólum 7 vetra, sem er undan hinni öldruðu Mónu frá Álfhólum og Gusti frá Lækjarbakka.  Saga er áhugamaður en fór í fína meistaraflokkseinkunn í þeirra fyrstu keppni, 6.37.  Þær enduðu í öðru sæti í opnum flokki 2 í góðum félagsskap, með fyrstu verðlauna stóðhesta á hvora hönd.  Mér segir svo hugur að nú sé Saga kominn á bragðið og láti finna fyrir sér á fleiri mótum ;)Myrkva var ekki eina afkvæmi Mónu sem var að gera það gott, en hún Þórunn Þöll er að gera flotta hluti með Mózart sem er 13 vetra Tívarssonur.  Þau voru í A-úrslitum í fjórgangi unglinga og samkvæmt síðustu fréttum stóðu þau efst á íþróttamótinu í Herði eftir forkeppni í fjórgangi.  Hörku stelpa hún Þórunn og stefnir að því að koma með Mozart í heimahagana í sumar og vinna hérna á Álfhólum :)Hrefna mátaði Indíu sína á keppnisvellinum í fyrsta skipti og keppnisgreinin slaktaumatölt varð fyrir valinu.  Það gekk svona glimrandi og þær fóru í A-úrslit með einkunina 6.47 eftir forkeppni og enduðu í fjórða sætinu með 6.67. Indía er að stíga upp úr meðslum en hún var illa sleginn í vetur og var frá hátt í 2 mánuði, en hryssan er komin núna á beinu brautina og verður gaman að fylgjast með þeim tveim í sumar.  Ekki bara góð í kyrrstöðu :) ... Indía er falleg hryssa og hefur hlotið 1st verðlaun fyrir byggingu þar af 8,5 fyrir háls og herðar og bak og lend.  Hún er undan Svertu og Leikni frá VakursstöðumHarpa Sigríður gerði góða hluti á Trú í barnaflokki, var í B-úrslitum í fjórgang og A-úrslitum í tölti.  Þess má geta að þær eru efstar í fjórgang á Íþróttamótinu í Herði eftir forkeppni. Trú er undan Svertu eins og Indía og Eldvaka frá Álfhólum og er 11 vetra gömul.Trú er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni og fyrr í vetur festu þau kaup á unghryssunni Arabíu sem er undan Svertu og Leikni frá Vakursstöðum, alsystir Indíu.Alsystir Trú heitir Zara frá Álfhólum og er 7 vetra gömul keppnishryssa hjá Mariu Greve.  Þær voru á Reykjavíkurmeistaramótinu einnig, en eru að gera enn betri hluti uppí Gusti þessa helgina og eru sem stendur fjórðu í tölti með einkuninna 6.77 sem er meistaraflokks einkunn.Zorro frá Álfhólum er gamalreyndur keppnishestur, líka undan Svertu og Ögra frá Hvolsvelli. Þau Guðlaug Jóna fengu einkuninna 6.43 í ungmennaflokki, flott einkunn en dugði ekki í úrslit í þetta skiptið enda mótið fyrna sterkt.Það er svoldið gaman að því hvað þessar ósýndu hryssur, Móna og Sverta eru að gefa frá sér fína keppnishesta, þannig að það má nú ekki alltaf afskrifa þessar ósýndu hryssur sem ræktunar hross ;)Skyggnir frá Álfhólum hefur oft staðið sig vel á mótum með eigandann sinn, Drífu Harðardóttur, þó þau hafi ekki verið í toppslagnum á þessu móti.   Skyggnir er undan Pegasus frá Skyggni og Kolföxu frá Álfhólum sem var af gamla kyninu hér í Álfhólum en er fallin.Það voru semsagt 11 hross frá Álfhólum skráð á Reykjarvíkurmeistaramót, 10 luku keppni og 5 af þeim fengu rétt til að ríða úrslit.  Dimmir var skráður í fimmgang en ég var með samviskubit yfir því að vera svona marga daga að heiman svo ég sleppti því að mæta með kappann.Svo af öðrum hestum tengdum okkur.... allt stóðhestum :) Rósa með Konna sinn, Íkon frá Hákoti.  Rósa var stór uppá sig og vildi ekki fara í áhugamannaflokkinn og skellti sér í opna flokkinn og stóð sig vel að vanda en fór ekki í úrslit að þessu sinni.  Þau hafa gert það gott á mörgum mótum í vetur að vanda og verið í úrslitum í flestum mótum ef ekki unnið þau.Hún Hrefna María eignaðist nýjan hest í fyrrahaust, hann Grím frá Vakurstöðum en hún fékk hann hjá þeim Valdimari og Halldóru á Vakurstöðum. Hrefna tamdi þennan hest á sínum tíma og var alltaf hrifinn af honum og stökk á hann þegar tækifærið bauðst.  Stórættaður stóðhestur undan Gæfu frá Úlfsstöðum og Leikni frá Vakurstöðum.  Hrefna og Grímur gerðu ágæta hluti í sinni fyrstu tilraun á keppnisvellinum og hlutu 6,60 í forkeppni í fjórgangi opnum flokk. Þau námu ekki staðar þar en síðustu fréttir herma að þau rúlluðu upp B-úrslitum í fjórgangi nú á íþróttamótinu í Herði í gærkvöldi. A-úrslit verða riðin nú í dag. Þennan hest spottuðu Hrefna og Jonni út í fyrravetur og keyptu, Kraftur frá Strönd, Kjarksonur.  Þeir Jonni gerðu það gott í slaktaumatölti og enduðu 4 með 7,50 í einkunni í meistaraflokki. Stefnan er að sýna hestinn aftur í kynbótadóm en þess má geta að við væntum þess að fá 4 folöld undan þessum litfagra gæðingi nú í sumar...</description>
Í þjálfun 2011
      <description>Það var nú alltaf meiningin að vera dugleg að taka myndir af þjálfunarhrossum (svo fólk haldi ekki að maður sé bara með eitt hross á járnum), svona fyrst maður væri komin með almenninlega myndavél.  En það er lítið spennandi að taka myndir þegar veðrið er alltaf jafn skítfúlt og það er búið að vera hér mest allan Mars og það sem af er Apríl.Þetta tryppi heitir Gáta og er undan Gásku og Þokka frá Kýrholti.  Hún er klárhryssa á fimmta vetur og hefur verið að koma skemmtilega síðustu vikurnar og það næst vonandi að sýna hana í vor. Húsafellsfélagar eiga helminginn í þessari hryssu.</description>
Allra sterkustu
      <description>   Um síðustu helgi var gammurinn Díva látinn geysa um Svellið í Laugardal, og það tókst bara með miklum ágætum.  Uppskárum þriðja sætið í hörðum slag með einkuninna 8.56 í úrslitum og ég get ekkert verið annað en stolt af henni Dívu "litlu" sem er töluvert yngri í árum talið en skæðustu keppinautarnir.   Og er enn að bæta sig frá síðasta keppnistímabili ef marka má tölur.      Og eins og sjá má af þessum B-úrslitum þá voru engir aukvisar að eigast við þar, sigurvegarar af stærstu Ísmótum vetrarins svo eitthvað sé nefnt. </description>
Díva live!
      <description>Var orðin úrkula vonar yfir því að nokkur hefði náð almenninlegu videoi af okkur Dívu á Orradeginum, en til allrar lukku þá var þarna staddur umboðsaðili Hrímnis, hann Rúnar Þór til að taka mynd af hnökkunum sínum sem voru á sýningunni og við fengum að fljóta með á filmunni ;)By the way, hann á nú alveg hrós skilið fyrir þessa hnakka, líklega eini hnakkurinn sem ég hef tollað í svona lengi án þess að hugsa um að skipta í nýtt.  Reyndar svo húkkt orðin að ég er að spá í að kaupa mér annan alveg eins svo vinnufólkið geti líka verið í almennilegum hnakk ;)</description>
"Arðsemi"
      <description>Hvaða hvatir lágu að baki þegar maður fór með eina af sínum uppáhalds ræktunarhryssum undir ósýndan tveggja vetra folatitt.  Já ef ég gæti nú bara svarað því!Ég man reyndar að ég hugsaði þegar ég var búin að sjá Öskjuafkvæmin Ask og Akk, að fyrst að Askja gæti eignast fótaburðarhesta með tveim lágengustu stóðhestum á Íslandi, þá hlyti hún nú að eiga eitthvað bitastætt með Orranum ;) ( Nú verður örugglega einhver móðgaður við mig, en báðir þessir hestar og þá sérstaklega Galsi hafa alveg verið að skila ágætis hrossum)Arð sá ég fyrst veturgamlan og leist vel á hann, verklegt tryppi, lofthár og sterklegur, og brokkði skrefmikill í háu þúfunum á Kanastöðum. Einhverra hluta vegna fannst mér alveg tilvalið að leiða Miðfells-Dimmu undir hann árið eftir.  Og 2004 fæddist Díva litla sem er búin að vera mér mikill gleðigjafi frá upphafi.Eftir að það kom í ljós að Díva reyndist ætla að verða eitthvað meira en meðalhross, reyndi ég að leiða Dimmu aftur undir Arð fyrir tveimur árum en hafði ekki erindi sem erfiði og fékk hana gelda heim í lok september eftir að hafa verið hjá honum frá miðjum Júlí :(Ekki til mikið af myndum af Dívu í uppvexti og hún var ekkert endilega með eitthvað "showtime" fyrir mann eftir pöntunum.  Þó lyftir hún hér þokkalega í þúfunum sem folald :)Fyrsta afkvæmasýning Arðs var í gærkvöldi í Ölfushöll á stórglæsilegri sýningu sem haldin var til heiðurs Orra gamla frá Þúfu. Þar komu fram með föður sínum 3 Arðsafkvæmi, sem öll komu undir þegar Arður var tveggja og þriggja vetra og eru því á sjötta og sjöunda vetur.Auk Dívu, var þar Blær frá Miðsitju, hestur á sjötta vetri, sem ég varð strax hrifin af á Svínavatni fyrr í þessum mánuði, en hann varð fjórði í A-flokknum þar.  Léttur hestur sem loftar undir.  Þess má geta að eftir að ég spottaði þennan hest út, þá skoðaði ég ættartréð hjá honum og komst að því að hann er af B-línunni frá Hólum, undan hálfsystur Blæju frá Hólum, ofurtöltaranum mikla. Hann er hæst dæmda afkvæmi móður sinnar Björk með 8.25 í aðaleinkunn.Og Skreyting frá Kanastöðum.  Klárhryssa með 9 fyrir tölt og vilja.  Var í A-úrslitum í tölti á Metamótinu síðasta haust og á örugglega eftir að gera eitthvað meira á keppnisvellinum áður en hún fer í folaldseign.  Díva og Skreyting eru ekki bara systur heldur náfrænkur líka.  Skreyting er undan Flosadótturunni Lömbu frá Lambleiksstöðum og Miðfells-Dimma móðir Dívu undan Brönu Flosadóttur.   Það leynir sér ekki ættarsvipurinn og kannski ekki skrítið, að þegar Leó var að fara að leggja á Skreytingu í hesthúsinu hjá mér fyrr í vetur, þá ætlaði ég að bregðast hin versta við og spyrja hvern fjandann hann væri að veltast með Dívu að mér óforspurðri! ;)                                                                                                                           Mynd Örn KarlssonSkyrpt úr hófum á Dívunni í Ölfushöllinni í gærkvöldi.                                                                                                                                                            Mynd BrautarholtshestarArður hefur kannski ekki náð að slá almenninlega í gegn sem einstaklingur, en það má þó þakka fyrir að hann er það sem hann er, eftir að hafa slasast alvarlega á afturfæti á fjórða vetur og ekki hægt að sýna hann fyrr en 7 vetra vegna þess. Það er reyndar alveg undravert hvað hann fæst til að beita sér á gangi svona skaddaður sem hann er og koma vel fyrir. Og það sem meira er, hann er að tikka inn sem góður kynbótahestur, kominn með nokkur hross í góð fyrstu verðlaun, og ekki síst virðist hann ætla að gefa frábær keppnishross sem vegur heldur betur þungt á vogarskálinni.Að veðja á tvævetlinga, getur verið eins og að spila í Lottó en ég vann allavega pottinn í þetta skiptið ;)</description>
Febrúarfréttir og Glens
      <description>  Jæja, það er nú bara tvennt í stöðunni, að skila inn þessu léni sem maður er að borga formúgur af á hverju ári, eða að fara bretta upp ermarnar og reyna að uppfæra reglulega!        En þótt lítið sé um fréttaflutning, er ekki þar með sagt maður hafi haft lítið fyrir stafni undanfarið, nema síður sé.   Ég er samt búin að komast að því að það er ekki nóg að eiga dýra og fína myndavél, ef að enginn er til að taka myndir af manni á hestbaki :o    Þá er ekki annað í stöðunni en að skella sér í bæjarferð og troða sér í "spotlætið" en ég reið nokkra hringi í reiðhöllinni í Víðidal um síðustu helgi með öðrum útskrifuðum reiðkennurum frá Hólaskóla á henni Gjósku minni sem er hægt og rólega að komast í form, en má samt missa svona 50 kíló í viðbót ;)   Líklega eina hrossið sem ég hef verið á sem hefur náð að gefa sjálfri sér á kjaftinn, en það gerðist fyrr í vetur þegar hún var í ægilegu stuði!      Þessari mynd stal ég af Fésinu hennar Rikke Norsku sem var hér á Íslandi í heimsókn í nokkra daga og tók þessa mynd í rigningarsudda hér um daginn, en þetta er hún Sóllilja, undan Berki frá Litlu-Reykjum og Sóldögg minni.     Það munaði nú ekki miklu að það færi illa fyrir henni þessari í haust, en ég fann hana í lok október afar illa til reika og hún hafði greinilega legið í afveltu í nokkurn tíma, en var nýstaðinn upp þegar ég fann hana, mjög þrekuð og ég tók hana að sjálfsögðu heim í meðhöndlun. Þegar ég setti hana út daginn eftir til að viðra sig, gat hún varla gengið, svo miklar harðsperrur var hún með greyið. Hvað það var sem kom henni loksins á lappir veit ég ekki, en grunar þó varginn sem er nú ekki að spyrja að því hvort skepnan sé lifandi eða dauð þegar hann býst til matar.      Vegna þessa áfalls var Sóllilja ekki tekin inn aftur fyrr en um áramót, svo hún fengi góðan tíma til að jafna sig og er bara búin að vera í þjálfun í rúman mánuð þegar þessi mynd er tekin.   Það væri ólíkt tómlegra í hesthúsinu ef Sóllilja væri ekki þar að bjóða manni góðann daginn á morgnanna með sínu vinalega kumri, má ekki til þess hugsa!       Í byrjun febrúar var alveg geggjað útreiðafæri í nokkra daga, hérna tekur Leó hálfsystur Sóllilju til kostanna, Bót sem er á fimmta vetur undan Berki frá Litlu-Reykjum og Synd frá Kollaleiru, hörku gott tryppi með allar fimm gangtegundirnar.   Ég var ekki lítið pirruð á að hafa ekki neinn góðan myndasmið í þessu frábæra færi, gerði eina tilraun við að setja annan á vélina en mig, en gafst upp þegar vantaði ýmist haus eða fætur ;(   Þá rölti ég bara sjálf niður í mýri til að leika mér með nýju cameruna og náði nokkrum skemmtilegum myndum í snjónum!      Eyjafjallajökull skartaði sínu fegursta og lítið við hann sem minnir á gjörningatímabil síðasta vors.     Þetta er yngsta afkvæmi Mónu, og hugsanlega það síðasta, þar sem hún er orðin frekar ellileg greyið, jarpvindóttur hestur undan Fróða frá Staðartungu.  Móna gamla klikkar sjaldan á því að gefa pattaralega klárhesta og hátt hlutfall af vindóttu.         Nei Vindur litli er ekki bara að lyfta í snjónum ;)       Afturhjólaspyrna1       Þessari hryssu hef ég tröllatrú á, en hún er undan Dimmi og Þyrnirós og þá hálfsystir Þrumufleygs.  Hún er lík móður sinni þegar hún var folald á margan hátt, nema það er ívíð betra afturfótaskref í þeirri litlu að sjá (Þá er ég ekki bara að tala um í snjónum) Eitt af örfáu merfolöldum sem fæddust hér í sumar.  Þau fæddust fimm, ég átti fjögur, seldi eitt og þá eru ekki nema þrjú eftir, ekki mikill ríkidómur það!!!  En hestfolöldin..... þau fæddust hvorki meira né minna en 15 hér á bæ, 75%!  Og svona var það í fyrra líka, yfir 70% hestfolaldahlutfall.  Ég verð að fara 3-4 ár aftur í tímann til að finna jafnt hlutfall hesta og hryssna! Það liggur við að maður missi gersamlega áhugann á hrossaræktinni með þessu áframhaldi! Og dýralæknirinn ánægður enda nóg að gera við að klippa kúlur á næstunni!     Gásku og Kappasonurinn er kominn með formið á kristaltært, spurning hvort hann hafi kíkt á FT sýninguna og numið fræðin?    Fyrir tveimur vikum var Þorri blótaður af miklum krafti hér í Njálsbúð og Kjellan fyllti heilt borð af Grúppíum og gæum héðan og þaðan af landinu sem biðu spennt eftir að sjá þá gömlu láta ljós sitt skína á leiklistarsviðinu, en það var hlutverk mitt þetta árið að vera í skemmtinefnd ásamt öðru stórskemmtilegu fólki ;)        Systkinin Fannar og Hrefna með John á milli sín.  Gárungarnir eru farnir að kalla hann John Skúla eftir góðan árangur í tölti í Meistaradeildinni og ekki síst stórsigur á "Tengdamömmubrún" í liðakeppni Höfuðborgarbúa í tölti.  Tengdamömmubrúnn (Það var Daníel Ingi Smárason sem fann uppá þessu frábæra nafni og póstaði á Feisbúkk ;) er sem sagt Íkon frá Hákoti, alveg þrældrjúgur keppnishestur í tölti. Rósa reið meira segja yfir dóttur sína um daginn á Bleika töltinu á honum, ekki skrítið að Hrefna nauði í þeirri gömlu að selja hann, ómögulegt að hafa hana of vel ríðandi ;)       Og hér má sjá hluta af skemmtilegu skemmtinefndinni, þá Tomma Snorra og Danna Smára. Skemmtilegu skemmtinefndinni segi ég, því hópurinn var samheldinn og skemmti sér stórlvel þennan mánuð sem æfingar stóðu yfir.  Það var töluvert stórt hlutfall af hestamönnum í nefnd þetta árið. Og margir sýndu hæfileika sem þeir sýna alla jafna ekki dags daglega. By the way ef ykkur vantar trúbador þá skulið þið hringja í Vigni í Hemlu hann er alveg með þetta, og Tommi getur örugglega sungið með ;)   Hér má einmitt sjá feðgana í Hemlu ná upp rífandi stemmingu í salinn með því að syngja um Gestalistann í afmælisveislu Nautabílsins....Jahá sumir geta alltaf fundið sér partítilefni!   Við lögðum allt undir til að gera eina stóra flugeldasýningu og skemmta sveitungum okkar og við höldum að það hafi tekist!  Allavega voru "grúppíurnar mínar" inná því að þetta hefði verið skemmtilegra en áramótaskaupið ......humm veit ekki hvort ég tek því sem hrósi því mér fannst áramótaskaupið ekkert skemmtilegt í ár ;)  En stemmingin á sviðinu í lokin var geggjuð þegar allir í salnum stóðu upp og tóku undir í lokalaginu sem var ekki af verri endanum, Íslenskuð útgáfa af Fairytale hans Alexanders Rybak! Því miður náðist það ekki á filmu því myndavélin mín varð batteríslaus í lokaatriðinu :/   Og ég ætla hiklaust að kenna þessu Þorrablótsstandi um bloggleti mína undanfarnar vikur, því öll tölvuvinnsla ( og hún var mikil) lá á mér og einnigl á Daníel, sem er algert séní á að finna réttu lögin við atriðin og stílisera eitt og annað.  Ef við Danni verðum atvinnulaus í hestamennskunni þá setjum við bara á stofn Kvikmyndafyrirtæki saman, mohahaha   Læt hér fylgja með stutta video sketsa sem við fléttuðum inní skemmtiatriðin okkar.      Þarna má sjá fréttafólkið frá Asísku sjónvarpsstöðinni sem var í hér í sveitinni í fyrra í leit sinni að venjulegu fólki í Landeyjum. Hvort að nágrannarinir í Fróðholti og Ármóti falla undir þá flokkun, skuluð þið sjálf dæma um ;)        Og áður en Sjónvarpsstöðin yfirgaf klakann, fékk hún að fylgja Lilla í lokatilraun til þess að finna "Venjulega fólkið í landeyjum"   Góða skemmtun ;)        </description>
Á nýju ári
      <description>   "I have a dream".... um að það komi svona jafnfallinn og fallegur snjór ofan á frosnu freðmýrarnar hérna sunnanheiða, eins og kom hér einn dag yfir jólin :)En gleðilegt árið allavegana áður en lengra er haldið!         Og þær buðu sko nýja árið velkomið hún Díva og Þokka og Gáskudóttirin sem sprönguðu um og léku sér á nýársdag sem enginn væri morgundagurinn.  Og ég fékk ágætis tækifæri til að prófa nýju myndavélina sem ég fékk um jólin, vúhú! Jepp góðu útreiðardagarinir í kringum áramótin voru kærkomnir og hrossin alveg í feyknastuði mörg hver, verst að ég hafði engann á myndavélinni þá til að festa það á filmu ;)       Ekki voru tilþrifin lítil hjá hálfsystur Dívu, henni Vöku frá Kanastöðum sem setti sig í hollingu eins og hún væri tilbúin að keppa við þá bestu. Hörkugóð og jafnvíg alhliðahryssa, og ég skil ekkert í því að enginn skuli vera búinn að fjarlægja hana úr hesthúsinu mínu ennþá! Já það er svoldið spes að þau hross sem staldra lengst á sölu eru fimmgangshrossin en klárhrossin eru oftar en ekki farin innan tveggja vikna eftir að þau koma inná síðuna hjá okkur.  Svoldið sérstakt í ljósi þess að alhliða hrossum er núna gert hærra undir höfði eftir vægisbreygingarnar heldur en klárhrossunum sem enda bara í 7,92 í aðaleinkunn fyrir hæfileika en voru með 7.98 áður.  Maður spyr sig hvort að það sé verið að færa ræktunina fjær markaðinum með þessu?  Og til hvers?  Ég nenni samt ekki að fara útí þessa sálma núna, á einhverstaðar risa bloggfærslu um þetta frá því snemma í haust sem ég hef þó ekki nennt að ómaka mig við að klára, kannski geri ég það seinna. En Vakan er góð hvað sem öllum vægisbreytingum líður, enda með brokk eins og klárhestur og mikill reiðhestur að auki!        Fatlaða fólið hún Dimmuborg hálfsystir Dívunnar í móðurlegg, var ekki lítið ánægð með veðurblíðuna og spólaði upp alla brekkuna.  Þetta video tók ég þegar ég var að prófa  videoið á nýju myndavélinni minni og það er nú svona og svona tekið með alltof mikilli zoom linsu í of mikilli nálægð, en vonandi kemst myndefnið til skila engu að síður.   Hún Dimmuborg getur vonandi gefið einhverjum óheppnum eiganda von sem lendir í sömu aðstæðum og ég, hvort á að fella eða eiga.  Ég er allavega alveg hrikalega ánægð með mig að hafa tekið slaginn með henni þótt að það hafi oft verið erfitt að horfa uppá hana.  Hreyfigetan verulega skert en engu að síður fær um að sletta úr hóf ef svo ber undir og stendur upp núorðið án nokkura vandræða þótt hún sé komin slatta langt á leið.  Í fyrra voru miklar tilfæringar við að koma sér á lappir og helst vildi hún bara liggja 80% af sólarhringnum.En verður spennandi að sjá hvort hún kemur frá sér spræku folaldi á komandi sumri, en hún er eins og áður hefur verið sagt, fylfull undan Frosta frá Efri-RauðalækJæja, best að fara að leggjast á bæn og biðja um snjó eða rigningu, því þetta er orðið full mikið af því góða, alger óþarfi að kaffæra norðlendingana í öllum snjónum!   Hrossin hjá manni fara að vera svo mikið tamin á þessari reiðhallarþjálfun, maður er að verða uppiskroppa með æfingar til að kenna þeim til að halda við fjölbreytileikanum!  Jú jú auðvitað er hægt að ríða á túnunum eitthvað, en það er líka bara oft svo rosalega kalt og sum hrossin ekki fullgóð í lungunum ennþá eftir flensuna, búin að setja tvö á Penisilin kúr eftir að þau komu inn, bæði með Bronkítis, Gjóska og Mánasteinn, hann reyndar helmingi verri og tamingin sem átti að vera á honum seinnipartinn í haust hefur  farið útum þúfur.  En hann er kominn undir Back on track núna og þetta hlýtur að fara að lagast, en allavega er maður ekki að taka sénsinn og láta þau mæðast í köldu lofti ef hægt er að komast hjá því og útreiðarfærið lítið spennandi.Ég ætla að minna hesteigendur á Suðurlandi að tékka á vatni í hólfum hjá sér, því þó að það hafi sloppið undanfarin ár, þá er það ekki víst að það sleppi núna, öflugar sprænur eru að frjósa þannig að hrossin komast hvergi nærri vatni, og þegar þetta er farið að hlaupa á vikum... þá er það ekki gott.   </description>
Gleðileg jól!
Undantekningin
      <description>Í mínum eftirlitsferðum um hrossahópinn í haust er einn rauður sem fangar alltaf athygli manns fyrir vasklega framgöngu.  Þetta montrassgat er undan Kappa frá Kommu og Gásku frá Álfhólum.Ég var nú með mínar efasemdir um að pörunin hefði verið gáfuleg þar sem bæði Gáska og Kappi flokkast undir að vera klárhestar og þrátt fyrir að vera heldur höll undir slíka hestgerð, þá trúi ég ekkert endilega á að það sé sniðugt að halda klárhestum hverjum undir annan.  En Gáska er með 9 fyrir tölt og Kappi er kominn með 9.5 og mér sýnist miðað við það sem ég hef séð í þeim rauða að þar vanti ekki töltið þannig að ég er bara sátt með útkomuna.  Kannski það sé bara málið, að hnykkja á góðum klárhryssum með því að halda undir enn betri klárhest, hummm........Og lofthæð hefur hann fengið frá báðum foreldrum sínum þannig að þetta er hið besta mál allt saman.........nema hann er undantekningin sem sannar regluna!  Hann er Rauður!  Ég er orðin góðu vön þegar Gáska á í hlut og hún er alltaf búin að eiga skjótt afkvæmi þangað til núna.  Aldeilis heppin þar til í sumar að "Rauður tíundi" kom í heiminn mér til mikilla vonbrigða.   En maður ríður ekki langt á litnum einum saman og honum til tekna þá er hann dökkrauður og verður vonandi "Vallarvænn".  Rauður tíundi hefur nú ekki fengið nafn ennþá en ætli það liggji ekki best við að kalla hann Garp.  Hann er eini hesturinn sem er til undan Gásku fyrir utan Gáska Geislason sem var seldur til Austurríkis í fyrra.Fleiri myndir hérKeilissonurinn frá því í fyrra sem var í eigu Húsafellshesta hlaut heldur dapurleg örlög.  Honum var forðað hér í vor undan gosi, flóði (sem aldrei kom) og öskufalli.  Ég man eftir því þegar ég setti hann á kerruna að ég sagði við þá félaga að þeir yrðu að passa sérstaklega uppá hann af því að ég ætlaði að fá hann lánaðan tveggja vetra, og hann yrði sá eini úr þeim árgang sem myndi fá að leika sér eitthvað.   En þegar Metamótið var í haust komu þau tíðindi að Skjóni litli væri týndur og eftir dauðaleit fannst hann drukknaður í djúpri gjótu í Flóanum þar sem hann var í hagabeit og er þá annar af fjórum hestum fæddum undan Gásku sem nær ekki að verða eldri en veturgamall.Gáska er líklega að öllum öðrum stóðhryssum hér ólöstuðum, sú ein sú skemmtilegasta til að henda sér á bak og fá sama fílinginn eins og maður hefði tekið útúr henni beislið deginum áður í fullri þjálfun.  Þarna er hún nýkominn úr girðingu frá Kappa og að sjálfsögðu ójárnuð! Í sumar var henni haldið undir Ágústíunus.</description>