Fréttir
4.6.2008
Ísbjarnarblús
Heyrði þetta ljóð eftir Baggalútsmenn í útvarpinu í gær og þótti virkilega flott.
Kveðja til ísbjarna og annara innflytjanda.
Þú komst yfir hafið á heiðskírum degi
á hreina Íslands jörð
úr nístingsköldum norðurvegi
að nema Skagafjörð.
Þú stikaðir frjáls um fjallanna sali
um fagra Íslands grund;
velkominn gekkstu um grösuga dali
-gleymdir þér um stund.
Þú örmagna, máttfarinn, lagðist í laut
á ljúfri Íslands fold
uns kyrrðin dreif þig í draumanna skaut
í dúnmjúkri gróðurmold.
Þar sáu þig tortryggnir blauðgeðja bændur
-þeir byggja Íslands lönd.
Vitstola hringdu í vopnfæra frændur
þig vildu þegar í bönd.
Þeir umkringdu þig, sem þekktir ei hlekki
en þvældist um íslenskt hlað.
Þeir skelfast frelsið sem skilja það ekki
-og skjóta í hjartastað
Eldra efni
ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | ALFHOLAR@ALFHOLAR.IS

