Fréttir
2.5.2008
Það er gömul mýta að halda því fram að Landeyjarnar séu ljótar, engin fjöll og ekkert skraut. Hér eru tvær myndir teknar heiman frá mér í kvöldsólinni í apríl og dæmi hver fyrir sig.

Eyjafjallajökull og glyttir í Mýrdalsjökulinn vinstra meginn.

Og drottningin, hún Hekla.
Ég segi fyrir mig að mér finnst alltaf sunnlensku fjöllin flottust og eins og með falleg málverk þá njóta þau sín best þegar horft er á þau úr ákveðinni fjarlægð.
Sauðburður byrjaði hér rétt eftir 20 apríl en þá báru um 15 kindur eftir einnar náttar ævintýri við hrút sem stökk úr hólfi hjá okkur, ekkert smá öflugur tappi! Svo byrjuðu sæðingakindurnar rétt fyrir mánaðarmót og nú hafa tæplega 50 kindur borið. Langflestar tví og þrílemdar eins og þessi sem bar í gær.

Allir að sofa, voða krútt.

Vaknað af værum blundi og best að drífa sig í mjólkina, fyrstur kemur, fyrstur fær!!
Þetta er náttúrulega ljóta ruglið að vera að brasa í þessum rollubúskap og láta það draga frá sér alla orku á versta tíma, en samt... er pínu gaman líka!

Eldra efni
Flettingar í dag: 987
Gestir í dag: 252
Flettingar í gær: 1398
Gestir í gær: 305
Samtals flettingar: 888111
Samtals gestir: 189031
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 21:38:29
ÁLFHÓLAR | SARA ÁSTÞÓRSDÓTTIR | 861 HVOLSVÖLLUR - ÍSLAND | Tel: (+354) 898 8048 | ALFHOLAR@ALFHOLAR.IS